REGLUGERÐ varðandi umsóknir um einkaleyfi o.fl. nr. 574/1991,
sbr. rg. nr. 661/1995, 286/1996, 679/1996, 700/1997, 926/2001, 289/2002, 534/2004, 852/2004 og 536/2006.
Innlagning einkaleyfisumsókna og færsla dagbókar. 1. gr.
[Íslenskar einkaleyfisumsóknir eru lagðar inn hjá Einkaleyfastofunni. Alþjóðlegar einkaleyfisumsóknir, sem ná til Íslands, eru afhentar yfirvaldi eða alþjóðlegri
stofnun sem telst réttur viðtakandi samkvæmt samstarfssamningnum um einkaleyfi. Ákvæði um Einkaleyfastofuna sem viðtökuyfirvald er að finna 65. – 70. gr.
Evrópskar einkaleyfisumsóknir, sem taka til Íslands, eru afhentar yfirvaldi eða evrópskri stofnun sem telst réttur viðtakandi samkvæmt evrópska einkaleyfasamningnum. Ákvæði um Einkaleyfastofuna sem viðtökuyfirvald er að finna í 77. – 78. gr.
Ef annað er ekki tekið fram gilda ákvæði þessarar reglugerðar aðeins um: 1) íslenskar einkaleyfisumsóknir og 2) alþjóðlegar einkaleyfisumsóknir, sem hafa verið yfirfærðar skv. 31. gr. einkaleyfalaga
eða teknar til meðferðar skv. 38. gr. laganna, og 3) evrópskar einkaleyfisumsóknir sem hefur verið breytt í landsbundnar umsóknir skv.
88. gr. einkaleyfalaga. ] 1) 1) Rg. nr. 852/2004, 1. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
2. gr. Íslensk einkaleyfisumsókn skal hafa að geyma skriflega beiðni (umsóknarblað) ásamt
fylgigögnum. Umsóknarblaðið skal vera undirritað af umsækjanda eða umboðsmanni hans og skal þar
tilgreina: 1) nafn og heimilisfang umsækjanda og umboðsmanns, ef umsækjandi hefur umboðsmann, 2) nafn og heimilisfang uppfinningamanns, 3) stutt og lýsandi heiti á þeirri uppfinningu sem óskast vernduð með einkaleyfi, 4) hver umsækjenda, ef fleiri en einn sækja sameiginlega um einkaleyfi, fer með
umboð til að taka á móti tilkynningum frá einkaleyfayfirvöldum, 5) að hve miklu leyti umsóknin nær til varðveislu [líffræðilegs efnis] 1) á þann hátt sem
lýst er í 6. mgr. 8. gr. einkaleyfalaganna, [6) hvernig umsækjandi öðlaðist rétt til uppfinningarinnar sé umsækjandi annar en
uppfinningamaður.] 2) [7)] 3)fylgigögn með umsókninni.
Umsókninni skal fylgja: 1) lýsing á uppfinningunni, ásamt teikningum sem nauðsynlegar eru til að uppfinningin skiljist, einkaleyfiskröfur og ágrip, 2) umboð, ef umsækjandi hefur umboðsmann og umboð er ekki veitt á
umsóknarblaðinu, [ ] 4)
Með umsókninni skal fylgja tilskilið umsóknargjald. [Ef uppfinning tekur til líffræðilegs efnis plantna eða dýra, eða notkunar slíks efnis, skal í
umsókn tilgreina landfræðilegan uppruna efnisins sé hann þekktur. Ef landfræðilegur uppruni efnisins er ekki þekktur skal það tekið fram í umsókninni. Vanti upplýsingar um landfræðilegan uppruna efnisins eða sé umsækjanda ekki um hann kunnugt hefur það ekki áhrif á meðferð umsóknarinnar eða réttindi samkvæmt útgefnu einkaleyfi. ] 5)
1) Rg. nr. 534/2004, 1. gr. a) liður (Gildir frá 30.6.2004) 2) Rg. nr. 534/2004, 1. gr. b) liður (Gildir frá 30.6.2004) 3) Rg. nr. 534/2004, 1. gr. c) liður (Gildir frá 30.6.2004) 4) Rg. nr. 534/2004, 1. gr. d) liður (Gildir frá 30.6.2004) 5) Rg. nr. 534/2004, 1. gr. e) liður (Gildir frá 30.6.2004)
3. gr. [Umsóknargögn skulu vera á íslensku, dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Ef lýsing,
einkaleyfiskröfur, ágrip og texti á teikningum eru ekki á íslensku skulu einkaleyfiskröfur, ágrip og texti á þeirri mynd, sem birta skal með, liggja fyrir í íslenskri þýðingu áður en umsókn er gerð aðgengileg. Þegar Einkaleyfastofan telur efnislegan grundvöll fyrir því að veita einkaleyfi, byggt á fyrirliggjandi gögnum, er umsækjanda send tilkynning þess efnis og honum gert að leggja inn samþykkta gerð einkaleyfiskrafna, ágrips og texta á teikningum í íslenskri þýðingu innan fjögurra mánaða. Innan sama tíma skal samþykkt gerð lýsingar liggja fyrir í íslenskri þýðingu eða á ensku. Frest þann má framlengja tvívegis eða að hámarki tólf mánuði. Að þeim tíma liðnum verður umsókn felld úr gildi.
Ákvæði 1. mgr. um frest til að leggja inn þýðingu fyrir veitingu á einnig við um eldri umsóknir.]1)
[Ef gögn eru á öðru tungumáli en um getur í 1. mgr. skal fylgja þýðing á eitthvert þeirra tungumála sem þar eru tilgreind. Einkaleyfastofan getur þó fallið frá kröfu um þýðingu á öðrum gögnum en lýsingu, einkaleyfiskröfum og ágripi og þeim hlutum lýsingar eða einkaleyfiskrafna í íslenskri einkaleyfisumsókn sem ekki teljast grunngögn skv. 1. mgr. 21. gr. eða leyft að þýðing sé á öðrum tungumálum en íslensku, dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Einkaleyfastofan getur krafist þess að löggiltur skjalaþýðandi, eða annar aðili sem einkaleyfayfirvöld viðurkenna, staðfesti þýðinguna. Umsækjandi eða umboðsmaður hans má þó í staðinn, að þvítilskildu að gögnin séu á dönsku, norsku, sænsku, ensku, þýsku eða frönsku, gefa yfirlýsingu um að hinn þýddi texti sé samsvarandi hinum erlendu gögnum.]2)
1) Rg. nr. 536/2006, 1. gr. (Gildir frá 30.6.2006) 2) Rg. nr. 661/1995, 1. gr. (Gildir frá 1.1.1996)
4. gr. Lýsingu, einkaleyfiskröfur og ágrip skal vélrita eða prenta með svörtu letri á hvítan pappír í
stærðinni A4(21 x 29,7 cm). Teikningar skulu gerðar með dökkum eða svörtum línum á hvítan eða ljósan, endingargóðan pappír í stærðinni A4.
Frágangur á lýsingu, einkaleyfiskröfum, teikningum og ágripi skal vera þannig að auðvelt sé að fjölfalda gögnin.
Einkaleyfastofan setur nánari reglur um frágang einkaleyfaskjala og fjölda eintaka.
5. gr.
Óski umsækjandi eftir að gerð verði nýnæmisrannsókn skv. 9. gr. einkaleyfalaganna skal hann skila skriflegri beiðni þar um til Einkaleyfastofunnar innan þriggja mánaða frá umsóknardegi, [ ]1) og greiða tilskilið gjald. Ef einkaleyfisumsóknin er ekki á einhverju því tungumáli sem viðurkennt er af þeirri stofnun sem annast nýnæmisrannsóknina skal fylgja beiðninni þýðing á tungumál sem Einkaleyfastofan ákveður.
Óski umsækjandi að nýnæmisrannsókn skv. 1. mgr. sé gerð hjá einhverri tiltekinni alþjóðastofnun, skal hann tilgreina þá stofnun í beiðninni.
Ef einkaleyfisumsóknin og tilskilin þýðing uppfyllir ekki þær formkröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra einkaleyfisumsókna, innan þess frests sem nefndur er í 1. mgr., er beiðninni vísað frá.
1) Rg. nr. 286/1996, 3. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
6. gr. Einkaleyfastofan færir umsóknardag á innlagðar umsóknir.
7. gr. Einkaleyfastofan heldur dagbók yfir innlagðar einkaleyfisumsóknir. Dagbókin skal vera aðgengileg almenningi. Í dagbókina skal færa eftirtalin atriði varðandi hverja umsókn:
1) umsóknarnúmer, 2) flokkunartákn þess alþjóðaflokks sem umsóknin fellur undir, 3) nafn og heimilisfang umsækjanda, 4) nafn og heimilisfang umboðsmanns, sé hann fyrir hendi, 5) nafn og heimilisfang uppfinningamanns, 6) heiti uppfinningar, 7) hvort umsóknin er íslensk eða alþjóðleg, 8) umsóknardag, ef umsóknin er íslensk, og gildisdag ef hann er annar en
umsóknardagur, 9) alþjóðlegan umsóknardag, ef umsóknin er alþjóðleg, og þann dag sem umsóknin var
yfirfærð skv. 31. gr. einkaleyfalaganna, eða þegar hún telst hafa verið lögð inn skv. 38. gr. laganna,
[10) ef umsókn er evrópsk einkaleyfisumsókn sem breytt hefur verið í landsbundna umsókn, númer evrópsku einkaleyfisumsóknarinnar, umsóknardag hennar samkvæmt evrópska einkaleyfasamningnum og þann dag sem evrópsku einkaleyfisumsókninni var breytt í landsbundna umsókn hér á landi.]2)
[11)]2) heitiviðtökulands fyrri umsóknar, sé forgangsréttar krafist á grundvelli hennar, svo og umsóknardag og umsóknarnúmer þeirrar umsóknar,
[12)]2) númer frumumsóknar, ef umsóknin hefur orðið til við hlutun eða úrfellingu, [13)]2) upplýsingar um hvort nýjar umsóknir hafi orðið til við hlutun eða úrfellingu og
númer viðkomandi umsókna, [14)]2) ef við á, frá og með hvaða degi umsóknin hefur orðið aðgengilegalmenningi skv.
3. mgr. 22. gr. einkaleyfalaganna, [15)]2) alþjóðlegt umsóknarnúmer ef um alþjóðlega einkaleyfisumsókn er að ræða, [16)]2) upplýsingar um gjöld sem greidd hafa verið vegna umsóknarinnar, [[17)]2) upplýsingar um endanlega afgreiðslu umsóknar.]1)
1) Rg. nr. 286/1996, 4. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
2) Rg. nr. 852/2004, 2. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
8. gr. [Einkaleyfastofan útbýr mánaðarlega eða í tengslum við útgáfu [ELS-tíðinda] 2) skv. 49. gr.
yfirlit yfir umsóknir, sbr. 7. gr., þar sem fram koma þær upplýsingar sem um getur í 1., 3., 6.– 11. og 14. lið 3. mgr. 7. gr. auk nafns uppfinningamanns.
Slíkt yfirlit skal fást hjá Einkaleyfastofunni gegn ákveðnu gjaldi ef um sérprent er að ræða.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 5. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 534/2004, 2. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
9. gr. Ef tilkynning berst um eigendaskipti á einkaleyfisumsókn verður nafn nýs umsækjanda því
aðeins fært í dagbók að fyrir liggi sönnun um framsal.
Forgangsréttur. 10. gr.
Til að njóta forgangsréttar skv. 6. gr. einkaleyfalaga þarf umsækjandi að krefjast þess skriflega innan þriggja mánaða frá umsóknardegi hérlendis,[ ]1) ásamt upplýsingum um hvar umsókn sem forgangsréttarkrafa er byggð á var lögð inn, umsóknardag hennar svo og umsóknarnúmer eins fljótt og verða má.
Ef um alþjóðlega einkaleyfisumsókn er að ræða skal krefjast forgangsréttar um leið og umsóknin er lögð inn. Kröfunni skulu fylgja upplýsingar um hvar umsóknin sem skírskotað er til var lögð inn, umsóknardag hennar og, ef um alþjóðlega umsókn er að ræða, a.m.k. eitt af þeim löndum sem hún nær til. Umsækjandi skal, innan 16 mánaða frá forgangsréttardegi, tilkynna númer umsóknar sem hann byggir forgangsrétt sinn á til viðkomandi viðtökuyfirvalda eða til Alþjóðahugverka-stofnunarinnar.
Ef umsóknin er hlutuð sundur, sbr. 22. gr., skal krafa um forgangsrétt fyrir frumumsóknina einnig gildafyrir þær umsóknir sem þannig verða til án sérstakrar beiðni þar um.
[Forgangsrétt skv. 6. gr. einkaleyfalaganna má byggja á umsókn um vernd sem lögð hefur verið inn í ríki sem er aðili að samningnum um Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO). Einnig má byggja forgangsrétt á umsókn um vernd sem lögð er inn í ríki sem ekki er aðili að samningnum um Alþjóðaviðskiptastofnunina ef íslenskar umsóknir um einkaleyfi njóta sambærilegra réttinda í því ríki og löggjöf þar er í aðalatriðum í samræmi við Parísarsáttmálann.]2) 1) Rg. nr. 286/1996, 6. gr., a) liður (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 286/1996, 6. gr., B) liður (Gildir frá 1.6.1996)
11. gr. Umsækjandi sem krafist hefur forgangsréttar skal, innan 16 mánaða frá forgangsréttardegi,
afhenda Einkaleyfastofunni vottorð frá því einkaleyfayfirvaldi sem tók á móti umsókn þeirri sem umsækjandi byggir forgangsrétt sinn á. Í vottorðinu skal tilgreina umsóknardag og nafn umsækjanda. Því skal fylgja afrit af umsókninni, staðfest af viðkomandi einkaleyfastofnun. Einkaleyfastofan setur reglur um frágang afritsins. Ef um alþjóðlega umsókn er að ræða þarf þó ekki að afhenda slík staðfestingarskjöl nema Einkaleyfastofan krefjist þess, sbr. 4. mgr. Í staðinn má skv. reglu 17(1) í reglugerð með Samstarfssáttmálanum senda staðfestingarskjölin til Alþjóðahugverkastofnunarinnar.
[Einkaleyfastofan getur undanþegið umsækjanda þeirri skyldu að afhenda þau skjöl sem nefnd eru í 1. mgr.]1)
Sendi umsækjandi ekki nefnd skjöl á tilskildum tíma fellur réttur hans til forgangsréttar niður.
Hafi Alþjóðahugverkastofnuninni verið sent afrit af umsókn þeirri sem forgangskrafa í alþjóðlegri einkaleyfisumsókn er byggð á getur Einkaleyfastofan aðeins krafist afrits og þýðingar á afritinu í samræmi við reglu 17(2) í reglugerð með Samstarfssáttmálanum.
1) Rg. nr. 286/1996, 7. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
12. gr. Umsókn getur því aðeins orðið grundvöllur forgangsréttarkröfu skv. 10. gr. að hún sé sú
fyrsta þar sem uppfinningunni er lýst. Hafi umsækjandi fyrstu umsóknar, eða framsalshafi, síðar lagt inn umsókn á sama stað er
varðar sömu uppfinningu, getur síðari umsóknin þó orðið grundvöllur forgangsréttarkröfu ef fyrri umsóknin hefur verið afturkölluð við afhendingu hinnar síðari, hún afskrifuð eða henni hafnað áður en hún varð aðgengileg almenningi, og að því tilskildu að engin réttindi eða forgangskrafa sé á henni byggð. Hafi forgangsréttur skapast á grundvelli slíkrar seinni umsóknar er ekki lengur hægt að byggja forgangsréttarkröfu á fyrri umsókninni.
[ ]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 8. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
13. gr. Hægt er að krefjast forgangsréttar fyrir hluta af umsókn. Kröfu um forgangsrétt fyrir eina og
sömu umsókn má byggja á fleiri en einni umsókn jafnvel þótt þær séu frá fleiri en einu ríki.
Einkaleyfiskröfur. 14. gr.
Í einkaleyfiskröfu skal koma fram: 1) heiti uppfinningar, 2) upplýsingar um þá tækni sem nýnæmi uppfinningarinnar miðast við (staða
tækninnar), ef slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar, og 3) upplýsingar um það sem er nýtt og sérstakt við uppfinninguna. Í hverri
einkaleyfiskröfu má aðeins fjalla um eina uppfinningu. Uppfinninguna skal, ef mögulegt er, telja til einhverra eftirtalinna afbrigða: afurð, tæki (búnaður), aðferð eða notkun.
Í einkaleyfiskröfu má ekkert koma fram sem er óviðkomandi uppfinningunni eins og henni er lýst í kröfunni eða hefur hverfandi gildi fyrir þann einkarétt sem sótt er um.
15. gr. Í einkaleyfisumsókn má setja fram fleiri en eina einkaleyfiskröfu. Ef fleiri en ein krafa eru í
sömu umsókn skulu þær tölusettar og þeim raðað niður í númeraröð. Einkaleyfiskrafa getur verið sjálfstæð eða ósjálfstæð. Einkaleyfiskrafa telst ósjálfstæð ef hún
snertir útfærslu uppfinningar sem lýst er í annarri kröfu og felur í sér öll sérkenni þeirrar kröfu. Aðrar einkaleyfiskröfur teljast sjálfstæðar.
Við hverja einkaleyfiskröfu má tengja eina eða fleiri ósjálfstæðar kröfur. Ósjálfstæða kröfu má tengja einni eða fleiri kröfum sem settar hafa verið fram á undan. Skal þá í inngangi kröfunnar vísað til viðeigandi krafna og lýsa síðan frekari sérkennum uppfinningarinnar.
16. gr. Felist margar uppfinningar í sömu umsókn teljast þær háðar hver annarri ef tæknilegt
samband er milli þeirra þannig að eitt eða fleiri sams konar eða samsvarandi tæknileg séreinkenni séu þeim öllum sameiginleg. Með hugtakinu tæknilegt sérkenni er átt við þau tæknilegu atriði í hverri einstakri uppfinningu sem eru frábrugðin því sem þekkt er.
Það álitamál í hve ríkum mæli uppfinningar eru hver annarri háðar skal leitt til lykta án tillits til þess hvort þeirra er getið í einni einkaleyfiskröfu eða fleirum.
Lýsing. 17. gr.
Lýsing á uppfinningu skal einskorðast við það sem glöggvar skilning á uppfinningunni. Ef notuð eru ný eða sjaldgæf hugtök skal útskýra merkingu þeirra. Ekki má nota önnur tákn eða mælieiningar en almennt tíðkast annars staðar á Norðurlöndum.
[Taki einkaleyfisumsóknin til varðveitts sýnis af líffræðilegu efni skv. 6. mgr. 8. gr. einkaleyfalaga skal umsóknin, þegar hún er lögð inn, hafa að geyma allar upplýsingar sem
máli skipta varðandi eiginleika líffræðilega efnisins og umsækjanda er kunnugt um.] 1) 1) Rg. nr. 534/2004, 3. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
17. gr. a [Sýni af líffræðilegu efni] 1) skv. 6. mgr. 8. gr. skal varðveitt hjá stofnun sem nýtur
alþjóðlegrar viðurkenningar til slíkrar varðveislu skv. alþjóðlegum sáttmála sem gerður var í Búdapest 28. apríl 1977 um varðveislu [líffræðilegs efnis] 2) vegna einkaleyfisumsókna (Búdapestsáttmálinn) [eða hjá öðrum varðveislustofnunum sem viðurkenndar eru af Evrópsku einkaleyfastofunni.]4).
Varðveislan skal vera í samræmi við ákvæði Búdapestsáttmálans. Einkaleyfayfirvöld gefa út skrá yfir þær stofnanir sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar til
að varðveita [líffræðilegt efni] 3) skv. Búdapestsáttmálanum. 1) Rg. nr. 534/2004, 4. gr. a) liður (Gildir frá 30.6.2004) 2) Rg. nr. 534/2004, 4. gr. b) liður (Gildir frá 30.6.2004) 3) Rg. nr. 534/2004, 4. gr. c) liður (Gildir frá 30.6.2004) 4) Rg. nr.852/2004, 3. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
17. gr. b Hafi umsækjandi látið [sýni af líffræðilegu efni] 1) í varðveislu skal hann, innan 16 mánaða
frá umsóknardegi eða forgangsréttardegi, sé forgangsréttar krafist, veita einkaleyfayfirvöldum skriflegar upplýsingar um hvaða stofnun sjái um varðveisluna og hvaða varðveislunúmer stofnunin hefur gefið [sýninu] 2). Þegar um alþjóðlegar umsóknir er að ræða skal, innan sama frests, veita Alþjóðahugverkastofnuninni þessar upplýsingar.
Æski umsækjandi þess, áður en frestur sá sem um getur í 1. mgr. er liðinn, að gögn umsóknarinnar verði gerð almenningi aðgengileg fyrr en um getur í 1. og 2. mgr. 22. gr. einkaleyfalaganna skal hann veita upplýsingar skv. 1. mgr. í síðasta lagi um leið og hann leggur fram slíka beiðni. Æski umsækjandi alþjóðlegrar umsóknar þess, áður en frestur sá sem um getur
í 1. mgr.er liðinn, að umsóknin verði gerð opinber skv. b-lið 2. mgr. 21. gr. Samstarfssáttmálans skal hann veita Alþjóðahugverkastofnuninni áðurnefndar upplýsingar í síðasta lagi um leið og hann leggur fram slíka beiðni.
Hafi varðveitt [sýni af líffræðilegu efni] 1) verið flutt frá einni alþjóðlegri varðveislustofnun til annarrar, í samræmi við 1. mgr. 5. reglu í reglugerð með Búdapestsáttmálanum, skal umsækjandi svo fljótt sem honum er unnt, eftir að hafa móttekið kvittun fyrir flutningi [sýnisins]3), tilkynna einkaleyfayfirvöldum flutninginn og upplýsa um nýtt varðveislunúmer [sýnisins] 3).
Til að sanna réttmæti veittra upplýsinga skv. 1. og 3. mgr. geta einkaleyfayfirvöld krafist þess að umsækjandi leggi fram afrit af kvittun sem varðveislustofnunin hefur gefið út vegna varðveislu [sýnisins] 3).
1) Rg. nr. 534/2004, 5. gr. a) liður (Gildir frá 30.6.2004) 2) Rg. nr. 534/2004, 5. gr. b) liður (Gildir frá 30.6.2004) 3) Rg. nr. 534/2004, 5. gr. c) liður (Gildir frá 30.6.2004)
17. gr. c [Ný varðveisla [sýnis af líffræðilegu efni] 1) skv. 7. mgr. 8. gr. einkaleyfalaga skal vera í
samræmi við ákvæði Búdapestsáttmálans um nýja varðveislu. Ný varðveisla skal hefjast innan 3ja mánaða frá þeim degi sem eigandi [sýnisins] 2) fékk
tilkynningu frá varðveislustofnuninni um að ekki væri hægt að afhenda sýnishorn af [varðveittu líffræðilegu efni] 2).
Hafi varðveislustofnun samkvæmt Búdapestsáttmálanum hætt störfum sem alþjóðleg varðveislustofnun fyrir þá tegund [líffræðilegs efnis] 2) sem varðveislan tók til, eða uppfylli hún ekki lengur tilskildar kröfur um varðveislustofnanir, og hafi eigandi [sýnisins] 2) ekki fengið vitneskju um þetta innan 6 mánaða frá því að Alþjóðahugverkastofnunin birti tilkynningu þar um getur ný varðveisla þó hafist innan 9 mánaða frá birtingu þeirrar tilkynningar.
Hafi varðveislustofnun, sem viðurkennd er af Evrópsku einkaleyfastofunni, hætt störfum sem varðveislustofnun fyrir þá tegund líffræðilegs efnis sem varðveislan tók til, eða uppfylli hún ekki lengur tilskildar kröfur um varðveislustofnanir og hafi eigandi sýnisins ekki fengið vitneskju um þetta innan 6 mánaða frá því að Evrópska einkaleyfastofan birti tilkynningu þar um, getur ný varðveisla þó hafist innan 9 mánaða frá birtingu þeirrar tilkynningar.
Umsækjandi skal, innan 4 mánaða frá þeim degi sem [nýtt sýni af líffræðilegu efni var lagt]3) inn hjá annarri stofnun, afhenda einkaleyfayfirvöldum afrit af kvittun um varðveisluna frá hinni nýju varðveislustofnun. Ef frestur sá sem um getur í 1. og 2. mgr. 17. gr. b rennur út síðar nægir þó að afhenda afrit af kvittuninni innan þess frests. Um leið og afrit af kvittuninni er afhent skal veita upplýsingar um númer umsóknar eða einkaleyfis sem [sýnið] 3) tilheyrir.]4)
1) Rg. nr. 534/2004, 6. gr. a) liður (Gildir frá 30.6.2004) 2) Rg. nr. 534/2004, 6. gr. b) liður (Gildir frá 30.6.2004) 3) Rg. nr. 534/2004, 6. gr. c) liður (Gildir frá 30.6.2004) 4) Rg. nr. 852/2004, 4. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
[17. gr. d Hafi umsókn að geyma amínósýru- eða kirnaraðir, skal listi yfir raðirnar fylgja lýsingu.
Listinn skal gerður í samræmi við þar til gerðan staðal Alþjóðahugverkastofnunarinnar.
Einkaleyfastofan getur ákveðið að listi skv. 1. mgr. skuli einnig lagður inn á rafrænu formi. Sé listinn lagður inn á rafrænu formi skal umsækjandi gefa yfirlýsingu um að rafrænu upplýsingarnar séu þær sömu og fram koma á listanum skv. 1. mgr.
Einkaleyfastofunni er heimilt að ákveða að listi skv. 1. mgr. skuli eingöngu lagður inn á rafrænu formi.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 5. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
Ágrip. 18. gr.
Í ágripi af íslenskri einkaleyfisumsókn skal vísa til lýsingar og einkaleyfiskrafna, eins og þau eru í grunngögnum, sbr. 1. mgr. 21. gr. og 1. mgr. 24. gr. Í ágripinu skal koma fram heiti uppfinningar. Einnig skal í ágripinu lýsa greinilega því tæknilega vandamáli sem uppfinningin fjallar um, hvernig henni er í grundvallaratriðumætlað að stuðla að lausn þess og hvert er aðalnotkunarsvið uppfinningarinnar. Ef mögulegt er skal ágripið liggja fyrir í endanlegri gerð áður en umsóknin er gerð aðgengileg almenningi skv. 2. mgr. 22. gr. einkaleyfalaga.
[Hafi alþjóðleg nýnæmisrannsóknarstofnun viðurkennt ágrip af alþjóðlegri umsókn eða evrópskri einkaleyfisumsókn sem breytt hefur verið í landsbundna umsókn ber að leggja það til grundvallar.]1) Að öðrum kosti ákveða einkaleyfayfirvöld einnig frágang á ágripi þessara umsókna í samræmi við 1. mgr.
1) Rg. nr. 852/2004, 6. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
Breytingar á einkaleyfisumsókn. 19. gr.
Ekki má breyta einkaleyfiskröfu á þann hátt að hún nái til einhvers sem ekki á sér stoð í grunngögnum, sbr. 1. eða 2. mgr. 21. gr. og 1. mgr. 24. gr. Ef einkaleyfiskröfu er breytt með því að bæta við nýjum atriðum skal umsækjandi samtímis gera grein fyrir hvar þau eigi stoð í grunngögnum.
Eftir að einkaleyfayfirvöld hafa greint frá niðurstöðu nýnæmisrannsóknar má ekki bæta í viðkomandi umsókn einkaleyfiskröfum vegna uppfinningar er telst óháð þeim uppfinningum sem áður innlagðar kröfur tóku til.
Ekki má, án samþykkis umsækjanda, greina frá niðurstöðum nýnæmisrannsóknar alþjóðlegrar einkaleyfisumsóknar fyrr en liðinn er frestur sá sem um getur í 53. gr.
Umsækjandi má því aðeins gera breytingar eða bæta við lýsingu og teikningar að slíkt sé talið nauðsynlegt skv. 8. gr. einkaleyfalaganna. Slíkar breytingar eða viðbætur má ekki gera ef þær leiða til þess að í einkaleyfiskröfunum felist annað eða meira en það sem rekja má til grunngagnanna.
20. gr. Ef gerðar eru breytingar á einkaleyfiskröfum eða settar eru fram viðbótarkröfur skal leggja
fram nýtt eintak af kröfum, nema einkaleyfayfirvöld heimili í hverju tilviki að annar háttur sé á hafður. Í hinu nýja eintaki skulu allar kröfur sem eftir standa settar fram í réttri röð.
21. gr. [[Grunngögn í íslenskri einkaleyfisumsókn, einkaleyfisumsókn sem tekin er til meðferðar
skv. 38. gr. einkaleyfalaga og evrópskri einkaleyfisumsókn sem óskað er eftir að verði breytt í landsbundna umsókn, teljast lýsing, teikningar og kröfur sem liggja fyrir á íslensku, dönsku,
norsku, sænsku eða ensku á umsóknardegi.]5) [ ]1) Liggi gögn þessi ekki fyrir á áðurnefndum tímamörkum skal sú lýsing, ásamt viðeigandi teikningum og kröfum, sem lögð er fram síðar í íslenskri, danskri, norskri, sænskri eða enskri þýðingu, teljast grunngögn að svo miklu leyti sem efni umsóknarinnar kemur greinilega fram í þeim gögnum sem lágu fyrir á umsóknardegi.
Grunngögn í alþjóðlegri einkaleyfisumsókn, sem yfirfærð er í samræmi við 31. gr. einkaleyfalaganna, teljast þýðing á dönsku, norsku, sænsku eða ensku, á lýsingu, teikningum og kröfum eða þýðing á íslensku á kröfum, með þeim breytingum sem gerðar eru á þýðingunni innan frests sem veittur er skv. 73. gr. [ ]2) Hafi umsækjandi samþykkt að alþjóðleg umsókn verði tekin til afgreiðslu innan þess frests sem kveðið er á um í 73. gr., sbr. 34. gr. einkaleyfalaga, og ákvörðun er tekin um [að veita einkaleyfi á grundvelli hennar]3) eða hafna henni, þá telst lýsing, teikningar og einkaleyfiskröfur viðkomandi umsóknar, eins og þau gögn lágu fyrir þegar viðkomandi ákvörðun var tekin, vera grunngögn.
Sé þess getið við innlagningu einkaleyfisumsóknar að umsókn, er varðar sömu uppfinningu, hafi áður verið lögð inn erlendis og númer hennar og umsóknardagur er tilgreindur, skal líta svo á að staðfest afrit, sem síðar er lagt fram af þeirri umsókn, hafi borist á umsóknardegi íslensku umsóknarinnar.]4)
1) Rg. nr. 286/1996, 9. gr., a) liður. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 286/1996, 9. gr., b) liður. (Gildir frá 1.6.1996) 3) Rg. nr. 286/1996, 9. gr., c) liður. (Gildir frá 1.6.1996) 4) Rg. nr. 661/1995, 2. gr. (Gildir frá 1.1.1996) 5) Rg. nr. 852/2004, 7. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
Hlutun og úrfelling. 22. gr.
Ef fleiri en einni uppfinningu er lýst í grunngögnum getur umsækjandi hlutað umsóknina sundur í fleiri umsóknir. Að beiðni umsækjanda má telja að ný umsókn varðandi uppfinningu sem byggist á upprunalegu umsókninni (frumumsókn), sé lögð inn sama dag og frumumsóknin. Þegar slík hlutun er gerð má nýja umsóknin ekki ná til annars en þess sem frumumsóknin hefði mátt taka til í samræmi við 2. mgr. 19. gr. einkaleyfalaganna á þeim tíma sem nýja umsóknin var lögð inn. [ ]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 10. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
23. gr. Ef uppfinning sem ekki á sér stoð í grunngögnum umsóknar kemur fram í viðbót við lýsingu
eða einkaleyfiskröfur eða á annan hátt má að beiðni umsækjanda líta svo á að ný umsókn, sem felld hefur verið úr upphaflegri umsókn (frumumsókn), hafi verið lögð inn á sama tíma og skjal þar sem uppfinningin kemur fram barst einkaleyfisyfirvöldum.
Slík úrfelling getur þó aðeins átt sér stað í samræmi við 2. mgr. 19. gr. einkaleyfalaganna og að því tilskildu að í hinni nýju umsókn sé aðeins sótt um einkaleyfi fyrir því sem fram kom í gögnum frumumsóknarinnar eins og þau lágu fyrir í viðkomandi skjali er það var afhent.
24. gr. Við hlutun og úrfellingu skal líta á lýsingu þá sem lögð er inn með nýrri umsókn, ásamt
teikningum og einkaleyfiskröfum, sem grunngögn.
Því aðeins skal litið svo á að ný umsókn verði til við hlutun eða úrfellingu að það komi fram við innlagningu umsóknarinnar. Geta skal upphaflegu umsóknarinnar í þeim umsóknum sem verða til við hlutun eða úrfellingu.
Birting einkaleyfisumsókna. 25. gr.
Ef einkaleyfisumsókn er gerð aðgengileg almenningi skv. 22. gr. einkaleyfalaganna áður en [einkaleyfi hefur verið veitt]1) skal prenta ágripið svo fljótt sem endanlegt orðalag þess hefur verið ákveðið. Einkaleyfayfirvöld geta einnig látið prenta aðra hluta umsóknarinnar með ágripinu. Afrit þessara prentuðu gagna skulu fást hjá einkaleyfayfirvöldum gegn tilskildu gjaldi.
Í auglýsingu sem birt skal þegar umsókn verður almenningi aðgengileg skal koma fram númer umsóknarinnar og alþjóðaflokkar, umsóknardagur, gildisdagur, ef hann er annar en umsóknardagur, heiti uppfinningar og nafn og heimilisfang umsækjanda og uppfinningamanns. Ef krafist er forgangsréttar skal í auglýsingunni tilgreina hvar umsóknin sem forgangsrétturinn er byggður á var lögð inn, umsóknardag hennar og umsóknarnúmer. Taki umsóknin til [varðveitts sýnis af líffræðilegu efni]2) skal það koma fram í auglýsingunni. Hafi umsækjandi krafist þess, í samræmi við 7. mgr. 22. gr. einkaleyfalaganna, að sýnishorn af [varðveittu líffræðilegu efni]2) verði aðeins látið af hendi til sérstakra sérfræðinga, skal það einnig koma fram í auglýsingunni.
Hafi þýðingu á lýsingu og kröfum alþjóðlegrar einkaleyfisumsóknar verið breytt áður en frestur skv. 53. gr. rann út og eftir að umsóknin hefur verið gerð aðgengileg almenningi skal birta auglýsingu um það.
1) Rg. nr. 286/1996, 11. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 534/2004, 7. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
25 gr. a Beiðni skv. 1. lið 8. mgr. 22. gr. einkaleyfalaganna, um afhendingu sýnishorns af [varðveittu
líffræðilegu efni]1), skal bera fram í samræmi við reglu 11 í reglugerð með Búdapestsáttmálanum.
Sé beiðni lögð fram, sbr. 1. mgr., áður en endanleg ákvörðun hefur verið tekin um umsóknina, sem varðveitt [sýni]2) tilheyrir, skal sá sem óskar eftir að fá sýnishornið skuldbinda sig gagnvart umsækjanda til að nota það einungis til rannsókna þar til endanleg ákvörðun hefur verið tekin um umsóknina. Jafnframt skal viðkomandi skuldbinda sig til að heimila engum öðrum aðgang að sýnishorninu fyrr en endanleg ákvörðun hefurverið tekin um umsóknina eða verði einkaleyfi veitt, ekki fyrr en það er fallið úr gildi.
Sé beiðni lögð fram skv. 1. mgr., um afhendingu sýnishorns af [varðveittu sýni af líffræðilegu efni] 3) sem tilheyrir einkaleyfi, skal sá sem óskar að fá sýnishorn afhent skuldbinda sig gagnvart einkaleyfishafanum til að heimila ekki öðrum aðgang að sýnishorninu fyrr en einkaleyfið er fallið úr gildi.
Sá sem óskar eftir að fá afhent sýnishorn skal taka á sig sömu skuldbindingar varðandi eintök sem leidd eru af sýnishorninu og hafa haldið sömu einkennum sem mikilvæg eru við notkun uppfinningarinnar.
Beiðni um sýnishorn skal fylgja skrifleg yfirlýsing um að sá sem um sýnishornið biður skuldbindi sig til að hlíta ofangreindum skilyrðum.
1) Rg. nr. 534/2004, 8. gr., a) liður (Gildir frá 30.6.2004) 2) Rg. nr. 534/2004, 8. gr., b) liður (Gildir frá 30.6.2004)
3) Rg. nr. 534/2004, 8. gr., c) liður (Gildir frá 30.6.2004)
25. gr. b Beiðni skv. 7. mgr. 22. gr. einkaleyfalaganna, þess efnis að einungis skuli afhenda sérfróðum
mönnum sýnishorn, skal afhenda einkaleyfayfirvöldum eigi síðar en um leið og umsóknin er gerð aðgengileg almenningi skv. 22. gr. laganna.
Einkaleyfayfirvöld halda skrá yfir þá einstaklinga sem að þeirra mati teljast sérfróðir og lýst hafa sig reiðubúna sem slíkir til að taka á móti sýnishornum. [Í samræmi við 49. gr.]1) skal auglýsa nöfn þeirra einstaklinga sem færðir eru í skrána.
Ef einungis er heimilt að afhenda sérfræðingi sýnishorn, svo sem lýst er í 1. mgr., skal í beiðninni geta nafns þess sérfræðings sem tekur verkefnið að sér. Jafnframt skal fylgja skrifleg yfirlýsing sérfræðingsins þarsem hann skuldbindur sig gagnvart umsækjanda að því marki sem getið er í 2. og 4. mgr. 25. gr. a. Í þessu tilviki þarf sá sem ber fram óskina ekki sjálfur að gefa yfirlýsingu.
Velja má annaðhvort sérfræðing úr skrá einkaleyfayfirvalda eða annan sem umsækjandi í viðkomandi tilviki samþykkir.
1) Rg. nr. 286/1996, 12. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
25. gr. c [Enda þótt gefin hafi verið út yfirlýsing skv. 25. gr. a og b er heimilt vegna nýrrar
einkaleyfisumsóknar að leggja inn til varðveislu sýni af líffræðilegu efni sem leitt er af sýnishorni er hefur verið afhent ef varðveisla afleidda sýnisins er nauðsynleg vegna nýju umsóknarinnar.] 1)
1) Rg. nr. 534/2004, 9. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
25. gr. d Hafi komið fram beiðni um afhendingu sýnishorns, og sé ekkert því til fyrirstöðu samkvæmt
einkaleyfalögum eða reglugerð þessari, gefa einkaleyfayfirvöld út vottorð um afhendinguna. Einkaleyfayfirvöld senda beiðnina um afhendingu sýnishornsins og vottorðið til þeirrar stofnunar sem varðveitir [líffræðilega efnið]1). Samtímis senda einkaleyfayfirvöld umsækjanda eða einkaleyfishafa afrit af beiðninni og vottorðinu.
Telji einkaleyfayfirvöld ókleift að gefa út vottorð skv. 1. mgr. skulu þau tilkynna það þeim aðila sem óskað hefur eftir afhendingunni. Sá aðili getur skotið þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar innan tveggja mánaða frá tilkynningu einkaleyfayfirvalda. Ákvörðun áfrýjunarnefndar í þessu efni verður ekki skotið til dómstóla.
1) Rg. nr. 534/2004, 10. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
Meðferð einkaleyfisumsókna. 26. gr.
[Einkaleyfisumsóknir þarf að rannsaka með tilliti til nýnæmis og einkaleyfishæfis, sbr. 2. gr. einkaleyfalaga.
Við nýnæmisrannsókn skal tekið tillit til alls sem þekkt er, þ. á m. birtra einkaleyfisumsókna, sem gerðar hafa verið aðgengilegar almenningi, og einkaleyfa, sem og annarra tiltækra
upplýsinga og gagna ef það telst nauðsynlegt. Heimilt er að byggja á niðurstöðum erlendra stofnana sem rannsakað hafa nýnæmi og einkaleyfishæfi.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 8. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
27. gr. Einkaleyfastofunni er skv. 69. gr. einkaleyfalaga heimilt að gera saming við erlenda
einkaleyfastofnun varðandi aðstoð við rannsókn á nýnæmi og einkaleyfishæfi umsókna. Einkaleyfastofunni er einnig heimilt að leita álits utanaðkomandi sérfræðinga ef það telst
nauðsynlegt til að geta tekið afstöðu til einkaleyfis-umsóknar.
28. gr. Einkaleyfastofan getur krafist þess að umsækjandi leggi inn líkan, sýnishorn o.þ.h. eða láti
gera rannsóknir eða tilraunir, telji þau það nauðsynlegt til að geta tekið afstöðu til einkaleyfisumsóknarinnar.
29. gr. Umsækjanda sem sótt hefur um einkaleyfi erlendis jafnframt því að sækja um hér á landi er,
með þeim takmörkunum sem lýst er í 2. ml. 3. mgr. 69. gr. einkaleyfalaganna, skylt, ef einkaleyfayfirvöld krefjast þess, að veita upplýsingar um hvað viðkomandi stofnun hafi tilkynnt honum í sambandi við nýnæmi eða einkaleyfishæfni umsóknarinnar að öðru leyti. Geri einkaleyfayfirvöld kröfu um það er umsækjanda skylt að upplýsa hjá hvaða einkaleyfastofnunum hann hefur sótt um einkaleyfi fyrir uppfinningunni og skila inn afriti eða endurriti af því sem honum hefur verið tilkynnt um varðandi nýnæmi eða einkaleyfishæfi uppfinningarinnar að öðru leyti og að gera grein fyrir bréfaskiptum við viðkomandi einkaleyfastofnun, eða að gefa yfirlýsingu um að hann hafi ekki fengið slíkar upplýsingar.
Verði umsóknir rannsakaðar hjá erlendum einkaleyfayfirvöldum í samræmi við ákvæði 3. mgr. 69. gr. einkaleyfalaganna má Einkaleyfastofan, á grundvelli samkomulags við viðkomandi einkaleyfayfirvöld um skipti á upplýsingum um einkaleyfishæfi, fresta umfjöllun um umsókn, sem er samsvarandi umsókn sem áður hefur veriðlögð inn hjá hinum erlendu einkaleyfayfirvöldum, þar til sú umsókn hefur fengið þá meðhöndlun sem samkomulagið kveður á um.
Einkaleyfastofan má afhenda erlendum einkaleyfayfirvöldum, sem samkomulag hefur verið gert við skv. ofangreindum ákvæðum, skjöl sem varða umsókn sem ekki hefur verið gerð almenningi aðgengileg ef viðkomandi yfirvöld hafa skuldbundið sig til að láta þau ekki verða almenningi aðgengileg.
30. gr. [Einkaleyfayfirvöld setja nánari reglur um fresti og framlengingu þeirra við meðhöndlun einkaleyfisumsókna. Því aðeins má þó veita frest á veitingu einkaleyfis að ákvörðun um veitinguna hafi verið tekin áður en viðkomandi umsókn er gerð aðgengileg almenningi í samræmi við 2. og 3. mgr. 22. gr. einkaleyfalaganna. Má þá, að beiðni umsækjanda, fresta veitingu einkaleyfisins þar til umsóknin er gerð almenningi aðgengileg í samræmi við áðurnefndar reglur.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 14. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
[Veiting einkaleyfa o.fl.]1)
31. gr. [Lýsingu, ásamt teikningum, einkaleyfiskröfum og ágripi, skv. 20. gr. einkaleyfalaganna
(einkaleyfisskjal) skal útbúa til útgáfu að tilhlutan einkaleyfayfirvalda eins fljótt og auðið er eftir að samþykkt hefur verið að veita einkaleyfi og, ef við á, þegar nothæf gögn liggja fyrir í íslenskri þýðingu, skv. 3. gr. þessarar reglugerðar og 38. og 90. gr. augl. ell. Í einkaleyfisskjali skal tilgreina útgáfudag og eftirfarandi atriði:]2)
1) [umsóknarnúmer og skráningarnúmer einkaleyfis ásamt heiti uppfinningar]4), 2) nafn og heimilisfang umsækjanda, 3) nafn og heimilisfang umboðsmanns umsækjanda, sé hann fyrir hendi, 4) nafn og heimilisfang uppfinningamanns, 5) [alþjóðaflokka]5), 6) sé umsóknin íslensk, umsóknardag ásamt gildisdegi, ef hann er annar en
umsóknardagur, 7) sé umsóknin alþjóðleg, alþjóðlegan umsóknardag og þá dagsetningu þegar umsóknin
var yfirfærð samkv. 31. gr. einkaleyfalaganna eða telst lögð inn skv. 38. gr. sömu laga,
[8) sé umsóknin evrópsk einkaleyfisumsókn sem breytt hefur verið í landsbundna umsókn, númer evrópsku einkaleyfisumsóknarinnar, umsóknardag hennar samkvæmt evrópska einkaleyfasamningnum og þann dag sem evrópsku einkaleyfisumsókninni var breytt í landsbundna umsókn hér á landi,]6)
[9)]6) upplýsingar um forgangsrétt ásamt upplýsingum um hvar umsókn sú sem forgangsréttur er byggður á sé lögð inn og umsóknardag og númer þeirrar umsóknar,
[10)]6) sé umsóknin alþjóðleg, alþjóðlegt umsóknarnúmer, [11)]6) númer frumumsóknar, sé umsóknin orðin til við hlutun eða úrfellingu, [12)]6) [upplýsingar um varðveislustofnun og varðveislunúmer sýnis af líffræðilegu efni ef slíkt sýni er varðveitt vegna einkaleyfisins,] 3) [13)]6) heimildargögn sem dregin hafa verið fram.
1) Rg. nr. 286/1996, 15. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 286/1996, 16. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 3) Rg. nr. 534/2004, 11. gr. (Gildir frá 30.6.2004) 4) Rg. nr. 852/2004, 9. gr., a) liður (Gildir frá 1.11.2004) 5) Rg. nr. 852/2004, 9. gr., b) liður (Gildir frá 1.11.2004) 6) Rg. nr. 852/2004, 9. gr., c) liður (Gildir frá 1.11.2004)
32. gr. [Í auglýsingu um veitingu skv. 20. gr. einkaleyfalaga skal koma fram heiti uppfinningar
ásamt þeim upplýsingum sem getið skal í einkaleyfisskjali skv. 31. gr. að undanskildum heimildargögnum sem dregin hafa verið fram.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 17. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
[Andmæli.]1) 33. gr.
[Andmæli skulu vera skrifleg og í þeim skal koma fram: 1) nafn og heimilisfang andmælanda,
2) skráningarnúmer þess einkaleyfis (einkaleyfisnúmer) sem andmælt er, nafn einkaleyfishafa og
3) umfang andmæla og þær forsendur sem andmælin byggjast á og jafnframt skal gera á tæmandi heiti uppfinningar, hátt grein fyrir staðreyndum, sönnunargögnum og málsatvikum er málið varða,
4) nafn og heimilisfang umboðsmanns, sé hann fyrir hendi. Andmæli og síðari athugasemdir ásamt tilheyrandi fylgigögnum frá andmælanda og
einkaleyfishafa skulu lögð inn í tveimur eintökum, nema einkaleyfayfirvöld ákveði annað í einstökum tilvikum. Ef einkaleyfishafi er andmælandi skulu andmælin og síðari athugasemdir þó aðeins lögð inn í einu eintaki.
Hafi andmælandi umboðsmann skal leggja fram umboð.]2) 1) Rg. nr. 286/1996, 18. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 286/1996, 19. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
34. gr. [Uppfylli andmæli ekki skilyrði 3. tl. 1. mgr. 33. gr. innan andmælafrestsins skal vísa
andmælunum frá. Hið sama á við ef einkaleyfi, sem er andmælt, er ekki tilgreint í andmælunum eða ef ekki er unnt að sannreyna frá hverjum andmælin eru.
Ef andmælin eru, að liðnum andmælafresti, að öðru leyti ekki í samræmi við ákvæði 1.-2. tl. og 4. tl. 1. mgr. 33. gr., beina einkaleyfayfirvöld þeim tilmælum til andmælanda að bæta úr þeim ágalla innan eins mánaðar. Verði andmælandi ekki við þeim tilmælum innan þessa frests skal vísa þeim frá.
Andmæla skal getið í einkaleyfaskrá. Um auglýsingu á framkomnum andmælum fer eftir ákvæðum 40. gr. að liðnum andmælafresti ef andmælum hefur ekki verið vísað frá.]1)
1) Rg. nr. 286/1996, 20. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
35. gr. [Að liðnum andmælafresti er eintak af andmælum og tilheyrandi fylgigögnum sent
einkaleyfishafa og honum gefinn kostur á að koma fram með athugasemdir og ef við á leggja fram breytta lýsingu, kröfur og teikningar.
Svari einkaleyfishafi andmælum ákveða einkaleyfayfirvöld hvort frekari bréfaskipti milli aðila séu nauðsynleg.]1)
1) Rg. nr. 286/1996, 21. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
36. gr. [Ákveði einkaleyfayfirvöld að einkaleyfi skuli lýst ógilt er það tilkynnt til aðila. Það sama á
við ef einkaleyfayfirvöld ákveða að einkaleyfi skuli standa óbreytt.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 22. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
37. gr. [Telji einkaleyfayfirvöld að einkaleyfi geti staðið í breyttri mynd er aðilum málsins tilkynnt
um það. Þá er einkaleyfishafa gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum sínum, innan 2 mánaða, geti hann ekki fallist á breytingar á texta einkaleyfisins eins og ætlunin er að hann verði.
Fallist einkaleyfishafi á breytingarnar, ákveða einkaleyfayfirvöld að einkaleyfið skuli standa í þeirri mynd. Andmælanda er tilkynnt um þessa ákvörðun.
Fallist einkaleyfishafi ekki á breytingarnar, getur meðferð andmælamálsins haldið áfram ef einkaleyfayfirvöld telja ástæðu til. Ef ekki er talin ástæða til að halda meðferðinni áfram, er ákveðið að einkaleyfið skuli standa í hinni breyttu mynd. Málsaðilum er tilkynnt um þessa ákvörðun.
Þegar endanleg ákvörðun hefur verið tekin um að einkaleyfi skuli standa í breyttri mynd, er þeim tilmælum beint til einkaleyfishafans að greiða tilskilið gjald fyrir útgáfu á nýju einkaleyfisskjali og, ef þörf er á, skila inn gögnum sem eru hæf til fjölföldunar. Gögnin skulu vera í fullkomnu samræmi við þau gögn sem einkaleyfayfirvöld hafa samþykkt og skal einkaleyfishafi afhenda yfirlýsingu þess efnis. Greiði einkaleyfishafi tilskilið útgáfugjald er litið svo á undir öllum kringumstæðum að hann fallist á að einkaleyfið skuli standa í breyttri mynd. Ef hann greiðir ekki tilskilið útgáfugjald, er einkaleyfið lýst ógilt.
Í úrskurði um að einkaleyfi skuli standa í breyttri mynd skal hinn breytti texti einkaleyfisins koma fram.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 23. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
38. gr. [Útgáfa á nýju einkaleyfisskjali, sem hefur að geyma lýsingu, einkaleyfiskröfur og teikningar
í breyttri mynd, skv. 23. gr. einkaleyfalaga, skal gerð að tilhlutan einkaleyfayfirvalda og hefjast eins fljótt og auðið er eftir að útgáfugjaldið hefur verið greitt. Einkaleyfisskjalið skal að öðru leyti hafa að geyma þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 31. gr.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 24. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
39. gr. [Auglýsa skal úrskurð í andmælamáli skv. 5. mgr. 23. gr. einkaleyfalaga þegar andmælin eru
endanlega til lykta leidd. Jafnframt skal geta um úrskurðinn í einkaleyfaskrá.]1) 1) Rg. nr. 286/1996, 25. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
40. gr. [Í auglýsingu um framkomin andmæli og um úrskurð í málinu skal tilgreina nafn
einkaleyfishafa, umsóknardag og umsóknarnúmer, skráningarnúmer einkaleyfis og alþjóðaflokka, heiti uppfinningar og útgáfudag einkaleyfisins. Í auglýsingu um framkomin andmæli skal einnig tilgreina nafn andmælanda.]1)
1) Rg. nr. 286/1996, 26. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
41. gr. [Berist einkaleyfayfirvöldum, á meðan einkaleyfisumsókn er til meðferðar, skrifleg ábending
sem þýðingu hefur fyrir mat á umsókninni skal gera umsækjanda aðvart þar um. Þeim sem sent hefur slíka ábendingu skal bent á að unnt sé að andmæla einkaleyfinu ef til veitingar þess kemur. Þetta á þó ekki við ef ábendingin varðar betri rétt til uppfinningarinnar.]1)
1) Rg. nr. 286/1996, 27. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
Nánari reglur um einkaleyfisumsóknir. [42. gr.]1)
Einkaleyfayfirvöld setja nánari reglur varðandi umsóknir um einkaleyfi og meðferð þeirra. 1) Rg. nr. 286/1996, 28. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
Einkaleyfaskráin o.fl. [43. gr.]1)
[Einkaleyfayfirvöld halda skrá yfir einkaleyfi, veitt af Einkaleyfastofunni, og einnig yfir evrópsk einkaleyfi sem öðlast hafa gildi hér á landi.]2)
1) Rg. nr. 286/1996, 28. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 852/2004, 10. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
[44. gr.]1) [Vegna einkaleyfa, sem Einkaleyfastofan veitir, skal eftirfarandi koma fram í
einkaleyfaskrá:]4) 1) umsóknarnúmer og skráningarnúmer einkaleyfis ásamt alþjóðaflokkum, 2) nafn og heimilisfang einkaleyfishafa, 3) nafn og heimilisfang umboðsmanns, sé hann fyrir hendi, 4) nafn og heimilisfang uppfinningamanns, 5) a) umsóknardagur, ef einkaleyfi er veitt á grundvelli íslenskrar umsóknar og sá
dagur sem einkaleyfisvernd telst hefjast (gildisdagur), ef hann er annar en umsóknardagur, b) alþjóðlegur umsóknardagur, ef einkaleyfið er veitt á grundvelli alþjóðlegrar umsóknar, eða sá dagur sem umsóknin telst lögð inn skv. 3. mgr. 38. gr. einkaleyfalaga, [c) ef umsóknin er evrópsk einkaleyfisumsókn sem breytt hefur verið í landsbundna umsókn, númer evrópsku einkaleyfisumsóknarinnar, umsóknardagur hennar samkvæmt evrópska einkaleyfasamningnum og sá dagur sem evrópsku einkaleyfisumsókninni var breytt í landsbundna umsókn hér á landi,] 5) [d)] 5) sá dagur sem gögn varðandi umsóknina voru gerð almenningi aðgengileg, [[e)] 5) sá dagur þegar einkaleyfið var veitt.]2)
6) ef krafist er forgangsréttar, upplýsingar um hvar umsókn sem forgangsréttarkrafa er byggð á var lögð inn og umsóknardagur og -númer hennar,
7) alþjóðlegt umsóknarnúmer, ef einkaleyfið er veitt á grundvelli alþjóðlegrar einkaleyfisumsóknar,
8) heiti uppfinningar, 9) [upplýsingar um varðveislustofnun og varðveislunúmer sýnis af líffræðilegu efni ef
slíkt sýni er varðveitt vegna einkaleyfisins.] 3) 1) Rg. nr. 286/1996, 29. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 286/1996, 29. gr., a) og b) liður. (Gildir frá 1.6.1996) 3) Rg. nr. 534/2004, 12. gr. (Gildir frá 30.6.2004) 4) Rg. nr. 852/2004, 11. gr., a) liður (Gildir frá 1.11.2004) 5) Rg. nr. 852/2004, 11. gr., b) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[44. gr. a Evrópsk einkaleyfi, sem taka til Íslands, skulu færð í einkaleyfaskrá þegar Evrópska
einkaleyfastofan hefur birt tilkynningu um veitingu einkaleyfis eða tekið ákvörðun um að staðfesta einkaleyfi í breyttri útgáfu og umsækjandi hefur lagt inn þýðingar og greitt útgáfugjald skv. 1. mgr. 77. gr. einkaleyfalaga.
Að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. eru eftirfarandi upplýsingar færðar í einkaleyfaskrá: 1) sá dagur sem Evrópska einkaleyfastofan birti tilkynningu um veitingu einkaleyfis,
2) sá dagur sem Einkaleyfastofan tók við þýðingum og gjöldum skv. 1. mgr. 77. gr. einkaleyfalaga, auk birtingardagsetningar auglýsingar skv. 3. mgr. 77. gr. einkaleyfalaga,
3) umsóknardagur og, ef um hlutunarumsókn er að ræða, sá dagur sem hlutunarumsóknin var lögð inn, og
4) upplýsingar þær sem um getur í 1. – 3., b- og d-lið 5., 6. og 9. tölul. 44. gr. Hafi Evrópska einkaleyfastofan birt tilkynningu um þá ákvörðun að evrópskt einkaleyfi, sem
tekur til Íslands, skuli staðfest í breyttri útgáfu skal dagsetning tilkynningarinnar færð í skrána. Leggi einkaleyfishafi inn nýjar þýðingar og greiði gjald skv. 1. mgr. 77. gr. einkaleyfalaga innan frests skv. 1. mgr. 81. gr. skal fært í einkaleyfaskrána hvenær það var gert og hvenær Einkaleyfastofan birti auglýsingu þess efnis.
Hafi skilyrði um þýðingar og gjöld skv. 3. mgr. ekki verið uppfyllt innan tilskilins frests skv. 1. mgr. 81. gr. skulu upplýsingar þess efnis færðar í skrána.
Hafi Evrópska einkaleyfastofan tekið ákvörðun um að takmarka, fella niður eða ógilda evrópskt einkaleyfi sem tekur til Íslands skulu upplýsingar þess efnis færðar í skrána.
Afhendi einkaleyfishafi leiðrétta þýðingu á einkaleyfi og greiði tilskilið gjald skv. 1. mgr. 86. gr. einkaleyfalaga skal fært í skrána hvenær framangreint átti sér stað og hvenær Einkaleyfastofan birti auglýsingu þess efnis.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 12. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
[45. gr. Í auglýsingu um veitingu einkaleyfis skv. 20. gr. einkaleyfalaga skal koma fram nafn
einkaleyfishafa, númer umsóknar og einkaleyfis ásamt alþjóðaflokkum, heiti uppfinningar og útgáfudegi.]1)
1) Rg. nr. 286/1996, 30. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
[46. gr.]1) Þegar árgjöld hafa verið greidd, eða frestur er veittur á greiðslu þeirra, skal skrá það í
einkaleyfaskrána eða aðra sérstaka skrá yfir greiðslur árgjalda. Þegar einkaleyfi fellur úr gildi skv. 51. gr. einkaleyfalaga skal færa í einkaleyfaskrána frá
hvaða tíma einkaleyfið telst fallið úr gildi. Ef lögð er fram skrifleg beiðni skv. 72. gr. einkaleyfalaga þess efnis að árgjöld teljist greidd
á réttum tíma skal það skráð í einkaleyfaskrána. Niðurstaða málsins skal ennfremur skráð í einkaleyfaskrána.
1) Rg. nr. 286/1996, 31. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
[47. gr.]1) Tilkynning um málshöfðun til ógildingar einkaleyfi, um framsal einkaleyfis eða vegna
nauðungarleyfis, í samræmi við 1. mgr. 63. gr. einkaleyfalaganna, skal færð í einkaleyfaskrána. Þegar einkaleyfayfirvöldum hefur borist endurrit dóms skv. 65. gr. einkaleyfalaga skal skrá
það í einkaleyfaskrána. Meginniðurstöðu endanlegs dóms skal færa í einkaleyfaskrána. Úrskurð um að einkaleyfi sé fallið niður skv. 54. gr. einkaleyfalaganna skal færa í
einkaleyfaskrána. 1) Rg. nr. 286/1996, 31. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
[48. gr.]1)
Í tilkynningu um aðilaskipti að einkaleyfi eða veitingu nytjaleyfis skv. 44. gr. einkaleyfalaga skal koma fram nafn og heimilisfang rétthafa, frá hvaða tíma hann öðlast réttinn og hvenær aðilaskiptin fóru fram eða nytjaleyfi var veitt. Samkvæmt beiðni skal skrá í einkaleyfaskrána hver réttur einkaleyfishafa er til að veita frekari nytjaleyfi. Ef ekki er unnt að taka ákvörðun strax um birtingu tilkynningar um aðilaskipti að einkaleyfi eða veitingu nytjaleyfis skal þess getið í einkaleyfaskránni að beiðni um slíka birtingu hafi verið sett fram.
Tilkynning um breytingu á umboðsmanni svo og breytingu á nafni eða heimilisfangi einkaleyfishafa skal færð í einkaleyfaskrána.
Hafi einkaleyfayfirvöldum borist upplýsingar um að varðveitt [líffræðilegt efni] 3) sem tengist einkaleyfi hafi verið flutt, sbr. 3. mgr. 17. gr. b, eða þau fengið afrit af kvittun vegna nýrrar varðveislu, sbr. 3. mgr. 17. gr. c, skal athugasemd um flutninginn eða hina nýju varðveislu færð í einkaleyfaskrána.
[Beiðnir, skv. 1. og 2. mgr., um innritun í skrá skulu vera skriflegar og þeim skal fylgja tilheyrandi skjal varðandi breytinguna.]2)
1) Rg. nr. 286/1996, 32. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 286/1996, 32. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 3) Rg. nr. 534/2004, 13. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
Tilkynningar frá einkaleyfayfirvöldum. 49. gr.1)
[Allar auglýsingar og tilkynningar varðandi einkaleyfi eða einkaleyfisumsóknir, sem birta skal almenningi samkvæmt lögum eða reglugerðum, eru birtar í ELS-tíðindum sem Einkaleyfastofan gefur út.
Heimilt er að gefa ELS-tíðindi út og dreifa þeim á rafrænan hátt, þar á meðal á netinu. Verði útgáfa ELS-tíðinda eingöngu rafræn skulu þeir sem þess óska áfram geta keypt
útprentun tíðindanna hjá Einkaleyfastofunni gegn greiðslu kostnaðar af útprentun þeirra og sendingu.]2)
1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 534/2004, 14. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
[Viðbótarvernd fyrir lyf og plöntuvarnarefni.]1) [50. gr.
Í kafla þessum er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir: 1) viðbótarvottorð: vottorð um viðbótarvernd fyrir lyf eða plöntuvarnarefni, 2) reglugerðir ESB: reglugerðir ESB-ráðsins nr. 1768/1992 um útgáfu viðbótarvottorðs
um vernd lyfja og reglugerð ESB-ráðsins nr. 1610/1996 um útgáfu viðbótarvottorðs um vernd plöntuvarnarefna, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XVII. viðauka, liðum 6 og 6 a, við EES-samninginn um hugverkaréttindi, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins.
51. gr. Umsókn um viðbótarvernd skal leggja inn skriflega til Einkaleyfastofunnar á þar til gerðu
eyðublaði sem fæst afhent hjá stofnuninni.
Umsóknarblaðið skal vera undirritað af umsækjanda eða umboðsmanni hans. Auk þess sem tilgreint er í 8. gr. reglugerða ESB, skal umsókn hafa að geyma upplýsingar
um hver umsækjenda, ef fleiri en einn sækja sameiginlega um viðbótarvernd, fer með umboð til að taka á móti tilkynningum frá einkaleyfayfirvöldum.
Að beiðni einkaleyfayfirvalda skal umsækjandi veita þær viðbótarupplýsingar um afurðina sem nauðsynlegar eru við meðferð umsóknarinnar.
Dagsetning sem nefnd er í lið iv, a-lið, 1. mgr. 8. gr. og d-lið, 2. mgr., 9. gr. reglugerða ESB, telst vera sú dagsetning þegar heilbrigðisyfirvöld undirrita markaðsleyfið.
Ef umsækjandi hefur umboðsmann skal fylgja skriflegt umboð. Með umsókninni skal fylgja tilskilið umsóknargjald.
52. gr. Tilkynning um umsókn um viðbótarvernd skal birt í [ELS-tíðindum] 1) sem Einkaleyfastofan
gefur út. Tilkynningin skal hafa að geyma þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 2. mgr. 9. gr. reglugerða ESB ásamt umsóknarnúmeri og umsóknardegi.
1) Rg. nr. 534/2004, 15. gr. (Gildir frá 30.6.2004)
53. gr. Umsókn um viðbótarvernd skal vera á íslensku. Ef gögn með umsókn eru á öðru tungumáli
en íslensku, dönsku, norsku, sænsku eða ensku skal fylgja þýðing á eitthvert þessara mála. Einkaleyfastofan getur þó fallið frá kröfu um þýðingu á fylgiskjölum. Einkaleyfastofan getur krafist þess að löggiltur skjalaþýðandi, eða annar aðili sem einkaleyfayfirvöld viðurkenna, staðfesti þýðinguna.
54. gr. Umsókn um viðbótarvernd má ekki breyta þannig að sótt sé um viðbótarvottorð fyrir aðra
afurð en tilgreind var upphaflega í umsókninni eða viðbótarvottorð samkvæmt öðru grunneinkaleyfi.
55. gr. Einkaleyfastofan heldur dagbók yfir innlagðar umsóknir. Í dagbókina skal færa eftirtalin
atriði: 1) upplýsingar sem taldar eru upp í a-e-lið í 2. mgr. 9. gr. reglugerða ESB, 2) umsóknarnúmer og umsóknardag, 3) nafn og heimilisfang umboðsmanns, hafi umsækjandi umboðsmann, 4) bréf er varða umsóknina og gjöld sem greidd hafa verið, 5) upplýsingar er varða afgreiðslu umsóknarinnar.
Dagbókin og einkaleyfisskjölin eru aðgengileg almenningi.
56. gr. Við meðferð umsóknar geta einkaleyfayfirvöld tekið tillit til hvers konar upplýsinga sem þau
eiga aðgang að. Einkaleyfayfirvöld kanna ekki hvort skilyrði í d-lið í 3. gr. reglugerða ESB sé uppfyllt.
57. gr.
Um fresti í 3. mgr. 10. gr. reglugerðanna gilda ákvæði 2. og 3. mgr. 15. gr. laganna og 16. gr. Fyrir endurupptöku skal greiða tilskilið gjald.
58. gr. Við birtingu um veitingu viðbótarvottorðs samkvæmt 1. mgr. 11. gr. reglugerðanna skal, auk
þeirra upplýsinga er þar er getið, tilgreina númer umsóknar um viðbótarvottorð, umsóknardag og skráningarnúmer vottorðsins.
Viðbótarvottorð skal hafa að geyma þær upplýsingar sem um getur í 1. mgr.
59. gr. Einkaleyfastofan heldur skrá um veitt viðbótarvottorð. Í skrána skal færa þær upplýsingar,
sem um getur í 58. gr. og breytingar á þeim. Upplýsingar samkvæmt 47. og 48. gr. skulu einnig færðar í skrá yfir viðbótarvottorð.
60. gr. Verði umsókn um viðbótarvottorð endanlega hafnað eða hún afskrifuð skal birta tilkynningu
þar um ásamt þeim upplýsingum sem um getur í 4. gr.
61. gr. Árgjöld skal greiða fyrir hvert ár sem byrjar að líða eftir að gildistími grunneinkaleyfisins er
liðinn. Árgjald gjaldfellur síðasta dag fyrsta almanaksmánaðar í gjaldári. Árgjald má greiða í fyrsta
lagi þremur mánuðum fyrir gjalddaga. Árgjald má, með tilskilinni hækkun, greiða innan sex mánaða frá gjalddaga.
62. gr. Verði umsókn um viðbótarvottorð endanlega hafnað eða hún afskrifuð getur umsækjandi
skotið þeirri ákvörðun Einkaleyfastofu til áfrýjunarnefndar innan tveggja mánaða frá því að honum var tilkynnt um ákvörðunina.Ef áfrýjunarnefnd staðfestir ákvörðun Einkaleyfastofu getur umsækjandi borið þá ákvörðun undir dómstóla. Ákvæði 25. gr. einkaleyfalaga gilda eftir því sem við á um slík málskot.
Ákvörðun um veitingu viðbótarvottorðs er ekki unnt að skjóta til áfrýjunarnefndar. Hver sem er geturhöfðað dómsmál til ógildingar viðbótarvottorði.
Sá er höfðar mál í samræmi við 2. mgr. skal samtímis tilkynna það Einkaleyfastofunni. Ákvæði 63. gr. einkaleyfalaga gilda um slík mál eftir því sem við á.
[63. gr. Umsækjandi um viðbótarvottorð, sem hefur ekki heimilisfesti hér á landi, skal hafa
umboðsmann, búsettan á EES-svæðinu, sem getur komið fram fyrir hans hönd í öllu því er varðar umsóknina. Nafn og heimilisfang umboðsmanns skal fært í einkaleyfaskrá.]1)
1) Rg. nr. 289/2002, 1. gr. (Gildir frá 1.4.2002)
64. gr. [Ákvæði 72. gr. einkaleyfalaga eiga við um glataðan rétt þegar frestir reglugerða ESB hafa
ekki verið virtir, eftir því sem við getur átt. Endurveiting getur einnig átt sér stað þegar viðbótarvottorð hefur fallið úr gildi samkvæmt c-lið í 14. gr. reglugerða ESB.
Fyrir beiðni um endurveitingu skal greiða tilskilið gjald.]1) 1) Rg. nr. 700/1997, 16. gr. (Gildir frá 2.1.1998)
Móttaka alþjóðlegra einkaleyfisumsókna. [65. gr.]1)2)
Einkaleyfastofan veitir viðtöku alþjóðlegum einkaleyfisumsóknum frá umsækjendum sem eru íslenskir ríkisborgarar, eru búsettir hér á landi, stunda atvinnurekstur eða teljast lögaðilar hér.
Sama gildir ef fleiri en einn leggja í sameiningu inn alþjóðlega umsókn og a.m.k. einn umsækjenda uppfyllir skilyrði 1. mgr.
1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. (Gildir frá 2.1.1998)
[66. gr.]1)2) Sem viðtökuaðili tekur Einkaleyfastofan við alþjóðlegum einkaleyfisumsókn-um, yfirfer þær
og framsendir í samræmi við ákvæði alþjóðlega Samstarfssáttmálans um einkaleyfi og reglugerða við hann.
Umsækjandi skal greiða einkaleyfayfirvöldum, sem viðtökuaðila, eftirtalin gjöld skv. reglugerð við Samstarfssáttmálann.
1) grunngjald skv. reglu 15(1) í fyrrnefndri reglugerð, innan mánaðar frá móttöku umsóknar,
2) [yfirfærslugjald]3) skv. reglu 15(1) í fyrrnefndri reglugerð, innan árs frá alþjóðlegum umsóknardegi, eða frá forgangsréttardegi, sé krafist forgangs-réttar, þó þannig að ávallt megi í síðastnefnda tilvikinu greiða gjaldið innan mánaðar frá móttöku umsóknar,
3) gjald fyrir nýnæmisrannsókn skv. reglu 16(1) í fyrrnefndri reglugerð,innan mánaðar frá viðtöku umsóknar,
4) gjald fyrir meðferð einkaleyfayfirvalda, sem viðtökuaðila umsókna, skv. reglu 14 í fyrrnefndri reglugerð, innan mánaðar frá viðtöku umsóknar,
5) gjald fyrir útgáfu og sendingu forgangsréttarskjala í samræmi við reglu 17(1)(b) í fyrrnefndri reglugerð, innan frests sem settur er í reglu 17(1)(a) í sömu reglugerð.
Hafi gjöld skv. 1.– 4. tl. 2. mgr. ekki verið að fullu greidd á réttum tíma eða innan hins veitta frests tekur ákvæði reglu 16 bis. í reglugerð við Samstarfssáttmálann gildi.
1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998) 3) Augl. nr. 166/1996 (Gildir frá 23. mars1995)
[67. gr.]1)2) [Alþjóðleg einkaleyfisumsókn sem lögð er inn til einkaleyfayfirvalda hér á landi skal afhent í
einu eintaki. Umsóknin skal vera á dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Upplýsingar á umsóknarblaði mega vera á ensku þótt önnur gögn séu á einhverju fyrrnefndra tungumála.]3)
1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998) 3) Rg. nr. 661/1995, 3. gr. (Gildir frá 1.1.1996)
[68. gr.]1)2)
Færa skal sérstaka dagbók yfir alþjóðlegar umsóknir sem lagðar eru inn hjá einkaleyfayfirvöldum. Dagbókin er ekki aðgengileg almenningi.
1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998)
[69. gr.]1) Hafi umsækjandi ekki heimilisfesti hér á landi skal hann hafa umboðsmann, búsettan á EES
svæðinu, sem getur komið fram fyrir hans hönd í öllu því er varðar umsóknina. Nafn og heimilisfang umboðsmanns skal fært í einkaleyfaskrá.
1) Rg. nr. 289/2001, 2. gr. (Gildir frá 11.4.2002)
[70. gr.]1)2) Einkaleyfayfirvöld skulu í samræmi við Samstarfssáttmálann og reglugerðir við hann senda
alþjóðlegar einkaleyfisumsóknir til Alþjóðahugverkastofnunarinnar. 1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998)
Yfirfærsla á alþjóðlegri einkaleyfisumsókn o.fl. [71. gr.]1)2)
Þegar alþjóðleg umsókn er yfirfærð í samræmi við 31. gr. einkaleyfalaganna skal geta nafns umsækjanda, númers hinnar alþjóðlegu umsóknar, umsóknardags og forgangsréttardags ef við á. Sömuleiðis skal þess getið hvar alþjóðlega umsóknin var lögð inn.
1) Rg. nr. 286/1996, 33. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998)
[72. gr.]1)2) [Ef lýsing, einkaleyfiskröfur, ágrip og texti á teikningum í alþjóðlegri umsókn er ekki á
íslensku, dönsku, norsku, sænsku eða ensku skal þýðing á þessum gögnum á eitthvert fyrrgreindra tungumála lögð inn við yfirfærslu umsóknarinnar í samræmi við 31. gr. ell. eða við endurskoðun ákvörðunar skv. 1. mgr. 38. gr. laganna. Sé þýðingin á öðru tungumáli en íslensku skal afhenda þýðingu á íslensku í samræmi við ákvæði 3. gr. sem einnig á við varðandi þýðingar á öðrum umsóknargögnum.]3)
[Einkaleyfayfirvöld geta sett reglur til að takmarka skyldu til að afhenda þýðingu ef aðeins hluti alþjóðlegrar umsóknar er yfirfærður til landsins.]4)
1) Rg. nr. 286/1996, 34. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. (Gildir frá 2.1.1998) 3) Rg. nr. 286/1996, 34. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 4) Rg. nr. 679/1996, 2. gr. (Gildir frá 1.1.1997)
[73. gr. Frestur skv. 34. gr. einkaleyfalaga rennur út samtímis fresti vegna yfirfærslu skv. 1. mgr. 31.
gr. sömu laga.]1) 1) Rg. nr. 289/2002, 3. gr. (Gildir frá 11.4.2002)
[74. gr.]1)2)
Hafi umsækjandi alþjóðlegrar umsóknar uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru skv. ákvæðum 31. gr. einkaleyfalaga en einkaleyfayfirvöld ekki fengið tilkynningu frá Alþjóðahugverkastofnuninni um að hún hafi tekið við umsókninni ber einkaleyfayfirvöldum að gera stofnuninni viðvart.
1) Rg. nr. 286/1996, 35. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998)
[75. gr.]1)2) Tilkynningar skv. 1. eða 3. mgr. 36. gr. eða 37. gr. einkaleyfalaga skal senda umsækjanda í ábyrgðarbréfi.
1) Rg. nr. 286/1996, 35. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. (Gildir frá 2.1.1998)
[76. gr.]1)2) Frestur til að óska eftir að ákvörðun verði endurskoðuð skv. 2. mgr. 38. gr. einkaleyfalaga
rennur út 2 mánuðum eftir að viðtökuyfirvöld eða Alþjóðahugverkastofnunin hefur tilkynnt umsækjanda um ákvörðun sem fjallað er um í 1. mgr. 38. gr. laganna.
Geti umsækjandi sannað að meira en 7 dagar hafi liðið frá dagsetningu ákvörðunar skv. 1. mgr. þar til honum barst hún í hendur lengist fresturinn um þann dagafjölda umfram 7 sem liðinn er frá dagsetningu ákvörðunar til móttöku hennar.
1) Rg. nr. 286/1996, 35. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. Gildir frá 2.1.1998)
[Evrópskar einkaleyfisumsóknir, einkaleyfi o.fl.] 1) 1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
[77. gr. Þegar evrópsk einkaleyfisumsókn er lögð inn hjá Einkaleyfastofunni er umsóknardagur
færður á umsóknargögn, gefin út kvittun fyrir móttöku gagna og Evrópsku einkaleyfastofunni tilkynnt að Einkaleyfastofan hafi tekið við umsókn, sbr. 2. og 3. mgr. 24. gr. framkvæmdareglugerðar við evrópska einkaleyfasamninginn (á ensku: Implementing Regulations to the Convention on the Grant of European Patents).
Einkaleyfastofan framsendir umsókn til Evrópsku einkaleyfastofunnar í samræmi við 77. gr. evrópska einkaleyfasamningsins og viðeigandi ákvæði framkvæmdareglugerðarinnar.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., a) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[78. gr. Þegar Einkaleyfastofan tekur við beiðni frá umsækjanda, í samræmi við 2. mgr. 136. gr.
evrópska einkaleyfasamningsins, um að evrópskri einkaleyfisumsókn verði breytt í landsbundna umsókn framsendir Einkaleyfastofan þegar í stað beiðnina ásamt afriti af umsókninni til einkaleyfayfirvalda í þeim löndum sem tilgreind eru í beiðninni.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., b) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[79. gr.
Þegar evrópsk einkaleyfisumsókn hefur verið framsend Einkaleyfastofunni í samræmi við 136. gr. evrópska einkaleyfasamningsins tilkynnir Einkaleyfastofan umsækjanda það svo fljótt sem auðið er.
Innan þriggja mánaða frá þeim degi, sem Einkaleyfastofan sendi tilkynningu skv. 1. mgr., skal umsækjandi greiða tilskilið umsóknargjald og afhenda þýðingu af umsókninni í samræmi við 1. mgr. 3. gr.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., c) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[80. gr. Einkaleyfastofan heldur sérstaka dagbók yfir þær evrópskar einkaleyfisumsóknir sem þýðing
hefur verið afhent fyrir í samræmi við 83. gr. einkaleyfalaganna. Dagbókin er aðgengileg almenningi.
Í dagbókina skal færa eftirtalin atriði: 1) númer umsóknar hjá Evrópsku einkaleyfastofunni, 2) nafn og heimilisfang umsækjanda, 3) þann dag sem þýðing eða leiðrétt þýðing var afhent Einkaleyfastofunni, 4) dagsetningu birtingar tilkynningar um afhendingu þýðingar eða leiðréttrar þýðingar, 5) umsóknardag umsóknar, 6) þær upplýsingar sem um getur í 4. – 6., 13. og 16. – 17. tölul. 3. mgr. 7. gr., 7) ef umsókn er hlutunarumsókn, þann dag sem hlutunarumsóknin var lögð inn.
Ef þýðing er lögð inn og gjald greitt skv. 1. mgr. 77. gr. einkaleyfalaga er sú dagsetning og dagsetning auglýsingar skv. 3. mgr. 77. gr. færðar í dagbókina.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., d) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[81. gr. Umsækjandi skal leggja inn hjá Einkaleyfastofu þýðingar og greiða útgáfugjald skv. 1. mgr.
77. gr. einkaleyfalaga innan fjögurra mánaða frá þeim degi sem Evrópska einkaleyfastofan hefur birt tilkynningu um veitingu einkaleyfis eða tekið ákvörðun um að staðfesta einkaleyfið í breyttri útgáfu.
Með þýðingu skv. 1. mgr. 77. gr. einkaleyfalaga skulu fylgja upplýsingar um númer einkaleyfis og nafn og heimilisfang umsækjanda eða einkaleyfishafa. Ef skilyrði þessu er ekki fullnægt skal litið svo á að þýðingin hafi ekki verið lögð inn.
Ef skilyrðum skv. 1. mgr. er ekki fullnægt öðlast evrópska einkaleyfið ekki gildi hér á landi.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., e) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[82. gr. Með þýðingu skv. 83. gr. einkaleyfalaga skulu fylgja upplýsingar um númer umsóknar, nafn
umsækjanda og heimilisfang. Sé skilyrði þetta ekki uppfyllt skal litið svo á að þýðingin hafi ekki verið lögð inn.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., f) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[83. gr. Í auglýsingu, sem birt er um afhendingu þýðinga skv. 77. gr. einkaleyfalaga, skulu koma
fram upplýsingar þær sem getið er um í 2. mgr. 81. gr., auk upplýsinga um tækniflokkun einkaleyfis, heiti uppfinningar, umsóknardag og þann dag sem Evrópska einkaleyfastofan birti
tilkynningu um veitingu einkaleyfis eða töku ákvörðunar um að staðfesta einkaleyfið í breyttri útgáfu. Ef krafist er forgangsréttar skal koma fram hvar forgangsréttarumsókn var lögð inn, svo og umsóknardagur og umsóknarnúmer þeirrar umsóknar.
Í auglýsingu, sem birt er um afhendingu þýðingar skv. 83. gr. einkaleyfalaga, skulu koma fram upplýsingar þær sem getið er um í 82. gr., auk upplýsinga um tækniflokkun umsóknar, heiti uppfinningar og umsóknardag. Ef krafist er forgangsréttar skal koma fram hvar forgangsréttarumsókn var lögð inn, svo og umsóknardagur og umsóknarnúmer þeirrar umsóknar.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., g) liður (Gildir frá 1.11.2004)
[84. gr. Sé þýðing leiðrétt skv. 86. gr. skal afhenda nýtt eintak af allri þýðingunni þar sem greinilega
kemur fram í hverju leiðréttingarnar felast. Leiðréttingu skulu fylgja upplýsingar um númer einkaleyfis eða umsóknar og nafn og heimilisfang einkaleyfishafa eða umsækjanda.
Ef skilyrðum skv. 1. mgr. er ekki fullnægt er litið svo á að hin leiðrétta þýðing hafi ekki verið afhent.
Í auglýsingu, sem birt er skv. 1. mgr. 86. gr. einkaleyfalaga, skulu koma fram þær upplýsingar sem getið er um í 2. mgr. 81. gr., auk upplýsinga um tækniflokkun einkaleyfis, heiti uppfinningar og þann dag sem Einkaleyfastofan móttók hina leiðréttu þýðingu.
Í auglýsingu, sem birt er skv. 2. mgr. 86. gr. einkaleyfalaga, skulu koma fram þær upplýsingar sem getið er um í 82. gr., auk upplýsinga um tækniflokkun umsóknar, heiti uppfinningar og þann dag sem Einkaleyfastofan móttók hina leiðréttu þýðingu.]1)
1) Rg. nr. 852/2004, 13. gr., h) liður (Gildir frá 1.11.2004)
Varahlutir og tæki í loftför. [85. gr.]1)2) 3)
Varahluti og tæki í loftför má flytja til landsins án tillits til einkaleyfa vegna viðgerða á loftförum frá öðrum ríkjum sem aðild eiga að alþjóðaflugsamningnum frá 7. desember 1944 (Chicagosamningurinn, sbr. augl. nr. 45/1947). Það er skilyrði að ríkin séu annaðhvort aðilar að Parísarsáttmálanum eða hafi einkaleyfalöggjöf þar sem viðurkenndar eru uppfinningar ríkisborgara annarra landa, sem aðild eiga að fyrrgreindum alþjóðaflugsamningi, og sem verndar þess konar uppfinningar með löggjöf sem samræmist Parísarsáttmálanum.
1) Rg. nr. 286/1996, 35. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. (Gildir frá 2.1.1998) 3) Rg. nr. 852/2004, 13. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
Gildistaka. [86. gr.]1)2) 4)
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 17 20. mars 1991 og tekur gildi hinn 1. janúar 1992.
Ákvæði er varða rannsóknir á einkaleyfishæfi alþjóðlegra umsókna skv. Samstarfssáttmálanum taka gildi þegar Ísland fullgildir sáttmálann.
Reglugerð nr. 59/1966, með síðari breytingum, gildir fyrir umsóknir sem lagðar eru inn fyrir gildistöku laga nr. 17/1991 með þeim undantekningum sem af 78. gr. þeirra laga leiðir.
[ ]3) 1) Rg. nr. 286/1996, 35. gr. (Gildir frá 1.6.1996)
_____________________________
2) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. (Gildir frá 2.1.1998) 3) Rg. nr. 286/1996, 36. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 4) Rg. nr. 852/2004, 13. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
[[87. gr.]1) 3) Umsókn um einkaleyfi fyrir sérstakri aðferð við tilreiðslu lækningalyfja, sem lögð hefur
verið inn eftir 1. janúar 1995, er heimilt að breyta þannig að hún nái einnig til afurðarinnar sem slíkrar, sbr. 2. mgr. 75. gr. einkaleyfalaga. Breytingin má þó ekki ná til einhvers sem ekki á sér stoð í grunngögnum, sbr. 19. gr.
Beiðni um breytingu skv. 1. mgr. skal lögð inn hjá einkaleyfayfirvöldum fyrir 1. janúar 1997.]2)
1) Rg. nr. 700/1997, 17. gr. (Gildir frá 2.1.1998) 2) Rg. nr. 286/1996, 37. gr. (Gildir frá 1.6.1996) 3) Rg. nr. 852/2004, 13. gr. (Gildir frá 1.11.2004)
Ákvæði til bráðabirgða. 1.
Ákvæði 3. gr. varðandi þýðingar á lýsingu, einkaleyfiskröfum og ágripi í einkaleyfisumsóknum taka gildi sem hér segir:
a) í umsóknum sem lagðar eru inn á tímabilinu 1. janúar 1992 til 1. janúar 1996 mega lýsing, einkaleyfiskröfur og ágrip vera á íslensku, dönsku, norsku, sænsku eða ensku, sbr. þó b- og c-lið. Liggi þessi gögn ekki fyrir á íslensku getur Einkaleyfastofan þó krafist þýðingar, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.
b) í umsóknum sem lagðar eru inn á erlendu máli eftir 1. janúar 1993 skulu ágrip og einkaleyfiskröfur liggja fyrir í íslenskri þýðingu áður en umsókn er lögð fram.
c) fyrir umsóknir sem lagðar eru inn eftir 1. janúar 1994 gilda ákvæði í b-lið einnig um lýsingu.
Ákvæði 3. greinar varðandi þýðingar taka að fullu gildi fyrir umsóknir sem lagðar eru inn eftir 1. janúar 1996.
2. Fyrir umsóknir sem lagðar eru inn á tímabilinu 1. janúar 1992 til 1. janúar 1996 skulu
ákvæði 1. mgr. 21. gr. gilda varðandi það hvað teljast grunngögn í umsóknum, þótt lýsing, ásamt teikningum og einkaleyfiskröfum, sé á ensku, sbr. a-lið í bráðabirgðaákvæði nr. 1.
Ákvæði 1. gr. 21. gr. taka að fullu gildi fyrir umsóknir sem lagðar eru inn eftir 1. janúar 1996.
Gildistökuákvæði reglugerða nr. 661/1995, 286/1996, 697/1996,700/1997, 926/2001, 289/2002, 534/2004,
852/2004 og 536/2006 um breytingar á rg. nr. 574/1991
Reglugerð nr. 661/1995
11. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr.17/1991 með síðari breytingum og öðlast
gildi 1. janúar 1996.
Reglugerð nr. 286/1996
73. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 17/1991 með síðari breytingum og öðlast
gildi 1. júní 1996.
74. gr. Reglugerð þessi á við um einkaleyfisumsóknir sem lög nr. 17/1991, með síðari breytingum
taka til og eru til meðferðar hjá einkaleyfayfirvöldum við gildistöku hennar, með eftirfarandi undantekningum:
1) Hafi verið send tilkynning um að fallist sé á framlagningu umsóknar fyrir gildistöku reglugerðar þessarar fer um meðferð þeirrar umsóknar eftir ákvæðum rg. ell. og augl. ell. eins og þau voru fyrir 1. júní 1996.
2) Ákvæði, er varða tilfærslu gildisdags og frest til að leggja inn hlutaða umsókn, í rg. ell. og augl. ell. eins og þau voru fyrir 1. júní 1996 skulu eiga við umsóknir sem lagðar voru inn fyrir gildistöku reglugerðar þessarar.
75. gr. Um umsóknir, er taka til lækningalyfja og lagðar voru inn, eða teljast hafa verið lagðar inn,
fyrir 1. janúar 1995, gilda áfram ákvæði í Viðauka II. í auglýsingu nr. 575/1991.
Reglugerð nr. 697/1996
7. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 17/1991, með síðari breytingum, og öðlast
gildi 1. janúar 1997.
Reglugerð nr. 700/1997
18. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í lögum nr. 17/1991 , um einkaleyfi, með síðari
breytingum, öðlast gildi 2. janúar 1998.
Reglugerð nr. 926/2001
2. gr.
Reglugerð þessi tekur til allra einkaleyfisumsókna sem lagðar eru inn frá og með 1. janúar 2002.
3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 69. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, öðlast þegar
gildi.
Reglugerð nr. 289/2002:
4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 69. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, með síðari
breytingum, öðlast þegar gildi.
Reglugerð nr. 534/2004:
16. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 69. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, með síðari
breytingum, öðlast þegar gildi.
Reglugerð nr. 852/2004:
14. gr. Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 69. og 90. gr. laga nr. 17/1991 um
einkaleyfi, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. nóvember 2004.
Reglugerð nr. 536/2006:
2. gr. Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 69. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, með
síðari breytingum, öðlast þegar gildi.