À propos de la propriété intellectuelle Formation en propriété intellectuelle Respect de la propriété intellectuelle Sensibilisation à la propriété intellectuelle La propriété intellectuelle pour… Propriété intellectuelle et… Propriété intellectuelle et… Information relative aux brevets et à la technologie Information en matière de marques Information en matière de dessins et modèles industriels Information en matière d’indications géographiques Information en matière de protection des obtentions végétales (UPOV) Lois, traités et jugements dans le domaine de la propriété intellectuelle Ressources relatives à la propriété intellectuelle Rapports sur la propriété intellectuelle Protection des brevets Protection des marques Protection des dessins et modèles industriels Protection des indications géographiques Protection des obtentions végétales (UPOV) Règlement extrajudiciaire des litiges Solutions opérationnelles à l’intention des offices de propriété intellectuelle Paiement de services de propriété intellectuelle Décisions et négociations Coopération en matière de développement Appui à l’innovation Partenariats public-privé Outils et services en matière d’intelligence artificielle L’Organisation Travailler avec nous Responsabilité Brevets Marques Dessins et modèles industriels Indications géographiques Droit d’auteur Secrets d’affaires Académie de l’OMPI Ateliers et séminaires Application des droits de propriété intellectuelle WIPO ALERT Sensibilisation Journée mondiale de la propriété intellectuelle Magazine de l’OMPI Études de cas et exemples de réussite Actualités dans le domaine de la propriété intellectuelle Prix de l’OMPI Entreprises Universités Peuples autochtones Instances judiciaires Ressources génétiques, savoirs traditionnels et expressions culturelles traditionnelles Économie Égalité des genres Santé mondiale Changement climatique Politique en matière de concurrence Objectifs de développement durable Technologies de pointe Applications mobiles Sport Tourisme PATENTSCOPE Analyse de brevets Classification internationale des brevets Programme ARDI – Recherche pour l’innovation Programme ASPI – Information spécialisée en matière de brevets Base de données mondiale sur les marques Madrid Monitor Base de données Article 6ter Express Classification de Nice Classification de Vienne Base de données mondiale sur les dessins et modèles Bulletin des dessins et modèles internationaux Base de données Hague Express Classification de Locarno Base de données Lisbon Express Base de données mondiale sur les marques relative aux indications géographiques Base de données PLUTO sur les variétés végétales Base de données GENIE Traités administrés par l’OMPI WIPO Lex – lois, traités et jugements en matière de propriété intellectuelle Normes de l’OMPI Statistiques de propriété intellectuelle WIPO Pearl (Terminologie) Publications de l’OMPI Profils nationaux Centre de connaissances de l’OMPI Série de rapports de l’OMPI consacrés aux tendances technologiques Indice mondial de l’innovation Rapport sur la propriété intellectuelle dans le monde PCT – Le système international des brevets ePCT Budapest – Le système international de dépôt des micro-organismes Madrid – Le système international des marques eMadrid Article 6ter (armoiries, drapeaux, emblèmes nationaux) La Haye – Le système international des dessins et modèles industriels eHague Lisbonne – Le système d’enregistrement international des indications géographiques eLisbon UPOV PRISMA UPOV e-PVP Administration UPOV e-PVP DUS Exchange Médiation Arbitrage Procédure d’expertise Litiges relatifs aux noms de domaine Accès centralisé aux résultats de la recherche et de l’examen (WIPO CASE) Service d’accès numérique aux documents de priorité (DAS) WIPO Pay Compte courant auprès de l’OMPI Assemblées de l’OMPI Comités permanents Calendrier des réunions WIPO Webcast Documents officiels de l’OMPI Plan d’action de l’OMPI pour le développement Assistance technique Institutions de formation en matière de propriété intellectuelle Mesures d’appui concernant la COVID-19 Stratégies nationales de propriété intellectuelle Assistance en matière d’élaboration des politiques et de formulation de la législation Pôle de coopération Centres d’appui à la technologie et à l’innovation (CATI) Transfert de technologie Programme d’aide aux inventeurs WIPO GREEN Initiative PAT-INFORMED de l’OMPI Consortium pour des livres accessibles L’OMPI pour les créateurs WIPO Translate Speech-to-Text Assistant de classification États membres Observateurs Directeur général Activités par unité administrative Bureaux extérieurs Avis de vacance d’emploi Achats Résultats et budget Rapports financiers Audit et supervision
Arabic English Spanish French Russian Chinese
Lois Traités Jugements Parcourir par ressort juridique

Islande

IS119

Retour

Lög nr. 88/2008 frá 12. júní 2008 um meðferð sakamála (Breytt með:b Lög nr. 47/2020 frá 28. maí 2020)

 X2008088.dvi

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 1

2008 nr. 88 12. júní Lög um meðferð sakamála 1)

1) Lögunum var breytt með l. 47/2020, III. kafla; breytingarnar taka gildi 1. des.

2020 skv. 17. gr. s.l.

Tóku gildi 1. janúar 2009, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða VII og VIII. Breytt með: L. 156/2008 (tóku gildi 31. des. 2008). L. 70/2009 (tóku gildi 30. júní 2009 nema 1.–3. gr., 12.–26. gr. og brbákv. V og VI sem tóku gildi 1. júlí 2009, 4. gr. sem tók gildi 1. sept. 2009 og brbákv. IV sem tók gildi 16. júní 2009; komu til fram- kvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr., sbr. og l. 97/2009 (tóku gildi 3. sept. 2009)). L. 80/2009 (tóku gildi 7. ágúst 2009). L. 123/2009 (tóku gildi 30. des. 2009). L. 52/ 2010 (tóku gildi 12. júní 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 82/2011 (tóku gildi 1. sept. 2011 nema brbákv. sem tók gildi 30. júní 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 168/2011 (tóku gildi 30. des. 2011). L. 15/2013 (tóku gildi 9. mars 2013). L. 116/2013 (tóku gildi 15. nóv. 2013). L. 103/2014 (tóku gildi 4. nóv. 2014). L. 47/2015 (tóku gildi 1. jan. 2016 nema brbákv. og 22. og 23. gr. sem tóku gildi 15. júlí 2015). L. 78/2015 (tóku gildi 1. ágúst 2015). L. 15/2016 (tóku gildi 31. mars 2016). L. 23/2016 (tóku gildi 5. apríl 2016). L. 49/2016 (tóku gildi 1. jan. 2018; um lagaskil sjá 78. gr., sbr. l. 117/2016, 76. gr., l. 53/2017, 4. gr., og l. 90/2017, 8. gr.). L. 99/2016 (tóku gildi 24. sept. 2016). L. 103/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017). L. 117/2016 (tóku gildi 1. jan. 2018, nema 52., 53., 75., 76. og 79.–81. gr. sem tóku gildi 28. okt. 2016). L. 34/2017 (tóku gildi 16. júní 2017). L. 53/2017 (tóku gildi 20. júní 2017). L. 90/2017 (tóku gildi 29. des. 2017). L. 17/2018 (tóku gildi 13. apríl 2018). L. 67/2018 (tóku gildi 26. júní 2018). L. 141/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019). L. 18/2019 (tóku gildi 3. apríl 2019). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 75/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 76/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 79/2019 (tóku gildi 6. júlí 2019; koma til framkvæmda skv. fyrirmælum í brbákv., sbr. einnig l. 25/2020, 20. gr.). L. 118/2019 (tóku gildi 11. okt. 2019). L. 141/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 32/2020 (tóku gildi 9. maí 2020). L. 47/2020 (taka gildi 1. des. 2020 nema 3. og 6. gr. sem tóku gildi 5. júní 2020).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dóms- málaráðuneyti sem fer með lög þessi.

1. þáttur. Almennar reglur um meðferð sakamála.

I. kafli. [Gildissvið laganna og dómendur í héraði og fyrir Landsrétti.]1)

1) L. 49/2016, 36. gr.

1. gr. Þau mál öll, sem handhafar ákæruvalds höfða til refsing-

ar lögum samkvæmt, skulu sæta meðferð eftir ákvæðum laga þessara nema öðruvísi sé fyrir mælt í lögum.

Sama á við um mál til þess að koma fram refsikenndum viðurlögum, svo sem öryggisgæslu og öðrum öryggisráðstöf- unum, upptöku eigna, sviptingu réttinda og ómerkingu um- mæla, ef ákæruvaldið á sókn sakar, þótt ekki sé krafist refs- ingar í málinu.

2. gr. Einnig skulu sæta meðferð samkvæmt lögum þessum mál

til úrlausnar kröfu um framsal sakamanns og fullnustu er- lends refsidóms hér á landi og meðferð erinda frá erlendum dómstólum og yfirvöldum um aðgerðir hér á landi í tengsl- um við sakamál. Þar að auki þau mál sem sæta skulu meðferð sakamála samkvæmt öðrum lögum.

Einkaréttarkröfur má hafa uppi og dæma í sakamáli sam- kvæmt ákvæðum XXVI. kafla laga þessara. Sama gildir um kröfur allsherjarréttar eðlis, svo sem kröfur um skatta, brott- nám ólögmæts ástands eða bann við ólögmætri starfsemi.

3. gr. Í héraði eiga mál samkvæmt lögum þessum undir hina

reglulegu héraðsdómstóla. Einn dómari skipar dóm í hverju máli [í héraði]1) nema

svo standi á sem í 3.–5. mgr. segir. [Ef deilt er um staðreyndir og dómari telur þurfa sérkunn-

áttu í dómi til að leysa úr getur hann kvatt til einn með- dómsmann sem hefur slíka kunnáttu og ákveður dómstjóri þá hvaða héraðsdómari skipi dóm í málinu með dómsformanni og hinum sérfróða meðdómsmanni. Þó er dómara heimilt að

kveðja til tvo meðdómsmenn ef hann telur þurfa sérkunnáttu í dómi á fleiri en einu sviði.]1)

. . . 1)

[Ef mál er annars umfangsmikið, brot sem ákært er fyrir getur varðað 10 ára fangelsi eða meira]1) eða sakarefni mjög mikilvægt frá almennu sjónarmiði getur dómstjóri ákveðið að þrír héraðsdómarar skipi dóm í málinu eða tveir héraðs- dómarar með einum sérfróðum meðdómsmanni.

1) L. 49/2016, 32. gr.

[3. gr. a. Ef sérfróður meðdómsmaður hefur tekið þátt í meðferð

máls fyrir héraðsdómi sem fengið hefur efnislega úrlausn þar og enn er deilt um staðreyndir fyrir Landsrétti sem forseti telur þurfa sérkunnáttu í dómi til að leysa úr getur forseti að eigin frumkvæði eða samkvæmt ábendingu dómsformanns í málinu kvatt til einn meðdómsmann sem hefur slíka sérkunn- áttu og skipar hann þá dóm í máli með tveimur dómurum við Landsrétt. Hafi málinu þegar verið úthlutað til þriggja dóm- ara Landsréttar ákveður forseti hver þeirra víki. Telji forseti þörf á sérkunnáttu á fleiri en einu sviði við úrlausn máls og ekki er völ á meðdómsmanni með sérþekkingu á báðum eða öllum sviðum, getur hann kallað til tvo sérfróða meðdóms- menn til að taka þátt í meðferð þess með þremur dómurum við Landsrétt. Jafnframt getur hann ákveðið, ef mál er um- fangsmikið, brot sem ákært er fyrir getur varðað 10 ára fang- elsi eða meira, eða sakarefni mjög mikilvægt frá almennu sjónarmiði og dómur hefur verið fjölskipaður í héraði, að þrír dómarar við Landsrétt skipi dóm með tveimur sérfróð- um meðdómsmönnum eða að fimm dómarar við Landsrétt skipi dóm.]1)

1) L. 49/2016, 33. gr.

4. gr. Þá eina má kveðja til setu í dómi sem sérfróða meðdóms-

menn er hafa nægilegan þroska og andlegt og líkamlegt heil- brigði, eru íslenskir ríkisborgarar, lögráða og orðnir 25 ára, hafa forræði á búi sínu og hafa hvorki [hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að þeir urðu fullra 18 ára]1) né sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem dómarar verða almennt að njóta.

Hverjum þeim sem fullnægir skilyrðum 1. mgr. er skylt að verða við kvaðningu til starfa sem sérfróður meðdómsmað- ur. Þetta gildir þó ekki um hæstaréttardómara, starfsmenn Hæstaréttar, [landsréttardómara, starfsmenn Landsréttar],2)

héraðsdómara og aðstoðarmenn þeirra, ráðherra, ráðuneyt- isstjóra, biskupa, presta og forstöðumenn í viðurkenndum trúfélögum [og skráðum lífsskoðunarfélögum],2) umboðs- mann Alþingis, ríkissaksóknara, héraðssaksóknara, sýslu- menn, [tollyfirvöld]3) og lögreglustjóra og löglærða starfs- menn þeirra [eða]2) lögmenn og fulltrúa þeirra.

[Um val á sérfróðum meðdómsmönnum að öðru leyti fer eftir lögum um dómstóla.]2)

1) L. 141/2018, 10. gr. 2) L. 49/2016, 34. gr. 3) L. 141/2019, 49. gr.

5. gr. Meðdómsmenn skulu taka sæti í dómi ekki síðar en

við upphaf aðalmeðferðar máls. Dómari skal að öðru jöfnu greina aðilum frá því með fyrirvara hverja hann hyggist kveðja til setu í dómi sem sérfróða meðdómsmenn, þannig að aðilum gefist kostur á að gera athugasemdir ef þeir telja efni til.

Bókað skal um kvaðningu meðdómsmanna í máli þegar þeir taka fyrst sæti í dómi. . . . 1)

2 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Meðdómsmenn taka þátt í málsmeðferð og [samningu dóms]2) og hafa sömu réttindi og bera sömu skyldur og dóms- formaður í því máli. Dómsformaður stýrir þó dómi, kveður einn upp úrskurði um annað en frávísun máls, gefur út kvaðn- ingar og tilkynningar, heldur þing til uppkvaðningar dóms, annast gerð og staðfestingu dómsgerða og kemur fram út á við fyrir hönd dómsins.

Dómsformaður ákveður þóknun sérfróðra meðdóms- manna [eftir reglum sem dómstólasýslan setur].1)

1) L. 49/2016, 35. gr. 2) L. 78/2015, 17. gr.

6. gr. Dómari, þar á meðal meðdómsmaður, er vanhæfur til að

fara með mál ef: a. hann er sakborningur, brotaþoli eða fyrirsvarsmaður

þeirra, b. hann hefur gætt réttar sakbornings eða brotaþola í mál-

inu, c. hann hefur borið eða verið kvaddur til að bera vitni um

atvik málsins af réttmætu tilefni eða verið mats- eða skoðun- armaður um sakarefnið,

d. hann er eða hefur verið maki sakbornings eða brota- þola, skyldur eða mægður þeim í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur þeim með sama hætti vegna ættleið- ingar,

e. hann tengist eða hefur tengst fyrirsvarsmanni sakborn- ings eða brotaþola eða málflytjanda með þeim hætti sem seg- ir í d-lið,

f. hann tengist eða hefur tengst vitni í málinu með sama hætti og segir í d-lið ellegar mats- eða skoðunarmanni,

g. fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður sem eru falln- ar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa.

Dómari skal enn fremur víkja sæti í máli eftir útgáfu ákæru ef hann hefur fallist á kröfu um að ákærði sæti gæslu- varðhaldi skv. 2. mgr. 95. gr.

7. gr. Dómari gætir að hæfi sínu til að fara með mál af sjálfs-

dáðum, en aðili getur einnig krafist að hann víki sæti. Dóms- formaður gætir með sama hætti að hæfi sérfróðra meðdóms- manna.

Dómari eða dómsformaður, ef dómur er fjölskipaður, kveður upp úrskurð um kröfu aðila um að hann eða með- dómsmenn víki sæti, svo og ef hann eða þeir víkja sæti af sjálfsdáðum. Ef þrír héraðsdómarar skipa dóm kveða þeir þó allir upp slíkan úrskurð.

Þótt dómari hafi vikið sæti ber honum að gera ráðstafan- ir sem eru nauðsynlegar til að halda máli í réttu horfi þar til annar dómari tekur við því. Á þeim tíma getur hann einnig látið af hendi afrit af málskjölum og staðfest dómsgerðir.

II. kafli. Þinghöld, þingbækur o.fl. 8. gr. Dómari stýrir þinghaldi og gætir þess að það sé háð eftir

réttum reglum. Hann ákveður í hverri röð mál verða tekin fyr- ir. Enginn má taka til máls nema með leyfi dómara og getur hann, að undangenginni aðvörun, tekið orðið af manni sem heldur sig ekki við efni máls.

. . . 1) 1)

L. 76/2019, 17. gr.

9. gr. Dómþing skulu haldin á föstum þingstöðum. Rétt er þó

að heyja dómþing á öðrum stað ef það þykir heppilegra, svo sem í fangelsi eða á sjúkrahúsi, ef taka þarf skýrslu af manni sem þar er staddur. [Nú þarf að taka skýrslu af brotaþola,

yngri en 15 ára, og skal það þá gert í sérútbúnu húsnæði fyrir skýrslutöku af börnum nema hagsmunir brotaþolans krefjist þess að annar háttur verði á hafður. Enn fremur getur dómari ákveðið að skýrsla skuli tekin af vitni, yngra en 15 ára, í slíku sérútbúnu húsnæði.]1)

1) L. 78/2015, 18. gr.

10. gr. Þinghöld skulu háð í heyranda hljóði. Dómari getur þó

ákveðið, að eigin frumkvæði eða eftir kröfu ákæranda, sak- bornings eða brotaþola, að þinghald fari fram fyrir luktum dyrum, að öllu leyti eða að hluta, ef það er háð utan reglulegs þingstaðar, sakborningur er yngri en 18 ára eða hann telur það annars nauðsynlegt:

a. til hlífðar sakborningi, brotaþola, vandamanni þeirra, vitni eða öðrum sem málið varðar,

b. vegna nauðsynjar sakbornings, brotaþola, vitnis eða annars sem málið varðar á því að halda leyndum atriðum varðandi hagsmuni í viðskiptum eða samsvarandi aðstöðu,

c. vegna hagsmuna almennings eða öryggis ríkisins, d. af velsæmisástæðum, e. til að halda uppi þingfriði, f. meðan á rannsókn máls stendur og hætta þykir á sak-

arspjöllum ef þing væri háð fyrir opnum dyrum, g. meðan vitni gefur skýrslu án þess að það þurfi að skýra

frá nafni sínu í heyranda hljóði, sbr. 8. mgr. 122. gr. Við þingfestingu máls er dómara heimilt að ákveða í eitt

skipti fyrir öll að þinghöld í málinu skuli vera lokuð, enda sé ákvörðunin færð til bókar þar sem greint skal frá því af hverri ástæðu það sé gert. Á sama hátt tekur dómari ákvörðun um lokun einstaks þinghalds. Sá sem sættir sig ekki við ákvörðun dómara getur krafist þess að hann kveði upp úrskurð um það hvort þinghöld eða einstakt þinghald skuli háð fyrir luktum dyrum.

Þótt þinghald sé háð í heyranda hljóði er dómara rétt að takmarka fjölda áheyrenda við þá sem rúmast á þingstað með góðu móti. Dómari getur einnig meinað þeim aðgang sem eru yngri en 15 ára eða þannig á sig komnir að návist þeirra samræmist ekki góðri reglu við þinghald eða hætta er á að nærvera þeirra valdi því að sakborningur eða vitni skýri ekki satt frá.

Dómara er rétt að vísa manni úr þinghaldi ef návist hans horfir til truflunar þingfriði eða framkoma hans er óviðeig- andi í orði eða verki. Ef um sakborning er að ræða, fyr- irsvarsmann hans, ákæranda, verjanda eða réttargæslumann skal dómari þó að jafnaði áminna hann og gefa honum kost á að bæta ráð sitt áður en af brottvísun verður. Ákvörðun dóm- ara um að víkja manni úr þinghaldi má framfylgja með lög- regluvaldi ef með þarf. Bókað skal um brottvikningu manns ef sakborningur, fyrirsvarsmaður hans eða málflytjandi á í hlut.

Nú telur dómari að nægilegt sé til þess að tryggja þá hags- muni sem búa að baki 1. mgr. að leggja bann við opinberri frásögn af þinghaldi skv. 2. mgr. 11. gr. og skal hann þá grípa til þess úrræðis í stað þess að loka þinghaldi.

11. gr. [Óheimilt er öðrum en dómstólum að hljóðrita eða taka

myndir í þinghaldi. Jafnframt er óheimilt að streyma hljóði eða mynd úr þinghaldi eða greina frá því sem sakborning- ur eða vitni skýrir frá við skýrslutöku meðan á henni stend- ur. Dómari getur veitt undanþágu frá banni við öllu fram- angreindu ef sérstaklega stendur á. Ef tekið hefur verið upp hljóð eða teknar myndir í þinghaldi án leyfis dómara er

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 3

óheimilt að birta þær hljóðupptökur eða myndir. Sama gildir um birtingu hljóð- og myndupptakna af munnlegum fram- burði sem dómstóll hefur annast.]1)

Óheimilt er að skýra frá því sem gerist í lokuðu þinghaldi án leyfis dómara. Þótt þinghald sé háð í heyranda hljóði getur dómari bannað að skýrt verði frá því sem gerist þar ef ætla má að frásögn geti leitt til sakarspjalla eða valdið vandamönnum sakbornings, brotaþola eða öðrum sem ekki eru fyrir sökum hafðir þjáningum eða verulegum óþægindum. Ákvörðun um slíkt bann má vera tímabundin. Skal dómari skrá hana í þing- bók og kynna hana viðstöddum.

Brot gegn 1. og 2. mgr. varðar sektum, sbr. [1. mgr. 241. gr.]2) Enn fremur má dómari meina þeim sem brotið hefur gegn þeim ákvæðum um aðgang að þinghaldi, hvort sem er í sama máli eða öðrum málum.

1) L. 76/2019, 18. gr. 2) L. 17/2018, 1. gr.

12. gr. Þingmálið er íslenska. Nú gefur maður skýrslu fyrir dómi sem kann ekki íslensku

nægilega vel og skal þá ákæruvaldið sjá um að kalla til lög- giltan dómtúlk. Sé ekki kostur á löggiltum dómtúlki er dóm- ara rétt að samþykkja að annar hæfur maður annist þýðingu, en sá skal þá undirrita heit í þingbók um að hann muni rækja starfann eftir bestu getu og ber honum að staðfesta þýðingu sína fyrir dómi ef hún er vefengd.

Skjali á erlendu tungumáli skal að jafnaði fylgja þýðing á íslensku að því leyti sem byggt er á efni þess í máli nema dómari telji sér fært að þýða það. Þýðing skjals skal að jafn- aði gerð af löggiltum skjalaþýðanda. Sé ekki kostur á lög- giltum skjalaþýðanda má leggja fram þýðingu annars hæfs manns, en honum ber að staðfesta hana fyrir dómi ef hún er vefengd.

[Nú gefur maður skýrslu fyrir dómi sem reiðir sig á ís- lenskt táknmál til samskipta og skal þá ákæruvaldið sjá um að kalla til táknmálstúlk. Um heit slíks manns og staðfestingu fer eftir ákvæðum 2. mgr.]1)

Ef maður, sem á að gefa skýrslu fyrir dómi, er ekki [fylli- lega]1) fær um að eiga orðaskipti á mæltu máli [eða íslensku táknmáli]1) skal ákæruvaldið sjá um að kalla til kunnáttu- mann til aðstoðar. Um heit slíks manns og staðfestingu fer eftir ákvæðum 2. mgr. Dómari getur þó ákveðið í stað þess að eftir atvikum verði spurningar lagðar fyrir hlutaðeiganda eða hann svari þeim skriflega fyrir dómi.

[Þann einn má kveðja til sem dómtúlk, táknmálstúlk, þýð- anda eða kunnáttumann sem er orðinn 20 ára að aldri. Að auki má dómtúlkur, táknmálstúlkur eða kunnáttumaður ekki vera vanhæfur til að taka starfann að sér, sbr. 6. gr. Dómari ákveður þóknun til handa dómtúlki, táknmálstúlki, þýðanda eða kunnáttumanni og greiðist þóknunin og annar kostnaður vegna starfa hans úr ríkissjóði.]1)

1) L. 18/2019, 4. gr.

13. gr. Við [Landsrétt og]1) hvern héraðsdómstól skulu vera þing-

bækur til afnota í sakamálum. [Dómara er rétt að rita á tölvu það sem væri ella fært í slíka bók, en það sem skráð er með þeim hætti skal þá varðveita á rafrænu formi þannig að það sé öruggt og aðgengilegt.]2)

Þegar dómþing er háð skal rita skýrslu í þingbók um það sem þar fer fram. Í þingbók skal jafnan skráð hvar og hve- nær þinghald fer fram, nafn dómara sem fer með það mál sem fyrir er tekið, gögn sem lögð eru fram, hverjir taki þátt í þinghaldi og koma fyrir dóm og hvað hafi verið afráðið um

rekstur máls, svo og ákvarðanir dómara og úrskurði sem hann kveður upp jafnharðan undir rekstri máls. Einnig er rétt að bóka um yfirlýsingar af hendi aðila sem hafa ekki komið fram skriflega. Ef önnur ákvæði þessara laga mæla ekki fyrir um að bókað verði um tiltekin atriði ákveður dómari hvað verði annars skráð í þingbók og undirritar það sem hefur verið bók- að að loknu þinghaldi. Málflytjendur geta þó jafnan krafist þess að bókaðar verði stuttar athugasemdir þeirra. Ef dóm- ari telur ástæðu til er honum rétt að kynna þeim sem mæta í þinghald efni bókunar í heild eða að hluta og gefa hlutað- eigendum kost á að undirrita hana. Þrátt fyrir það sem að framan segir skal ekki færa til bókar nafn og önnur persónu- einkenni vitnis, sem gefur skýrslu fyrir dómi án þess að það þurfi að skýra frá nafni sínu í heyranda hljóði, sbr. 8. mgr. 122. gr., heldur skulu þær upplýsingar varðveittar með þeim hætti sem þar er kveðið á um.

[Það sem kemur fram við munnlega sönnunarfærslu skal tekið upp í hljóði og mynd. Dómari getur þó í undantekn- ingartilfellum ákveðið að taka upp eða skrá útdrátt sinn af framburði en hlutaðeigandi skal þá gefinn kostur á að koma að athugasemdum um það sem er haft eftir honum og um framkvæmd skýrslutökunnar.]1)

1) L. 49/2016, 38. gr. 2) L. 76/2019, 19. gr.

14. gr. Við [Landsrétt og]1) hvern héraðsdómstól skal haldin

dómabók sem hefur að geyma dóma, svo og úrskurði sem fela í sér niðurstöðu máls, undirritaða af dómara.

1) L. 49/2016, 39. gr.

15. gr. Skjöl, sem eru lögð fram í dómi, skulu vera í frumriti séu

þau tiltæk. Þau skulu merkt í áframhaldandi töluröð og vott- uð um framlagningu. Sá sem leggur fram skjal skal láta í té þann fjölda eftirrita af því sem dómari mælir fyrir um og af- hendir jafnframt öðrum aðilum máls eftirrit, svo og brotaþola ef mætt er af hans hálfu í málinu.

[Dómabækur, þingbækur, framlögð skjöl og hljóð- og myndupptökur skal varðveita í skjalasafni hlutaðeigandi dómstóls þar til þau verða afhent Þjóðskjalasafni.]1)

Frumrit skjals verður ekki afhent öðrum en þeim sem á réttmætt tilkall til þess. Meðan máli er ólokið verður frum- rit skjals þó ekki afhent nema brýn nauðsyn krefji og dómari telji að láta megi það af hendi gegn því að afrit komi í stað þess.

Hljóðritanir, myndbönd og mynddiska skv. 3. mgr. 13. gr. skal varðveita í minnst þrjú ár frá lokum dómsmáls.

1) L. 49/2016, 40. gr.

16. gr. Ákærði og brotaþoli eiga rétt á að fá afrit af málskjölum

án endurgjalds um leið og mál hefur verið þingfest, sbr. þó 1. mgr. 47. gr. Eftir þingfestingu er dómara skylt gegn greiðslu gjalds að láta öðrum þeim, sem þess óskar, í té staðfest afrit af ákæru og greinargerð ákærða, ef hún hefur verið lögð fram, svo fljótt sem við verður komið. Þó skal synja um að láta í té afrit af þeim hlutum þessara skjala sem hafa að geyma upplýsingar um einka-, fjárhags- eða viðskiptahagsmuni ein- staklinga ellegar lögpersóna sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari nema sá samþykki sem í hlut á. Enn fremur ef mik- ilvægir almannahagsmunir krefjast þess, svo sem ef um er að ræða upplýsingar um öryggi ríkisins eða varnarmál ellegar samskipti þess við önnur ríki eða alþjóðastofnanir.

Aðilar máls og brotaþoli eiga rétt á að fá staðfest endurrit úr þingbók eða dómabók endurgjaldslaust.

4 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Dómara er enn fremur skylt gegn greiðslu gjalds að láta öðrum þeim, sem þess óskar, í té staðfest endurrit úr dóma- bók og af úrskurðum og ákvörðunum sem færðar hafa verið í þingbók. Áður en þau endurrit eru afhent skal, ef sérstök ástæða er til, afmá úr þeim atriði sem eðlilegt er að leynt fari með tilliti til almanna- eða einkahagsmuna, þar á meðal at- riði úr endurritum af úrskurðum og ákvörðunum ef það hefði í för með sér hættu á sakarspjöllum að þau kæmust til vitund- ar almennings. Hið sama á við ef dómar eða aðrar úrlausnir eru birtar opinberlega, svo sem á vefsíðum.

[Meðan mál er rekið fyrir Landsrétti eða í héraði, unnt er að skjóta því til æðra dóms eða mál er rekið þar fyrir dómi er dómara skylt endurgjaldslaust að afhenda aðilum máls af- rit hljóðupptöku skv. 3. mgr. 13. gr. eða leyfa þeim að hlýða á slíkar upptökur eða horfa á myndupptökur, svo fljótt sem við verður komið eftir að þess er óskað.]1) Eftir þann tíma má verða við ósk þess efnis ef sérstakar ástæður mæla með því. Dómara er skylt gegn greiðslu gjalds að láta brotaþola í té eftirgerð af hljóð- eða myndupptökum eða leyfa honum að hlýða á slíkar upptökur ef honum er þörf á því til þess að geta gætt hagsmuna sinna. [Dómstólasýslan setur nánari reglur um afhendingu afrita af hljóðupptökum og um aðgang að myndupptökum.]1)

Dómara er heimilt að krefjast fyrirframgreiðslu áætlaðs gjalds skv. 1., 3. og 4. mgr.

Telji dómari óheimilt eða óskylt að verða við ósk um afrit eða eftirrit ellegar leyfi til að hlýða á upptöku kveður hann upp úrskurð um það ef þess er krafist.

[Nú er meðferð máls endanlega lokið fyrir héraðsdómi og tekur þá dómstjóri ákvörðun um afhendingu afrits skv. 1. og 3. mgr. eða kveður upp úrskurð skv. 6. mgr. [Forseti æðri dóms tekur slíka ákvörðun eða kveður upp úrskurð þeg- ar meðferð máls er endanlega lokið fyrir þeim dómi.]1)]2)

1) L. 76/2019, 20. gr. 2) L. 78/2015, 19. gr.

17. gr. Við [Landsrétt og]1) hvern héraðsdómstól skal haldin skrá

yfir þau mál sem koma þar til úrlausnar samkvæmt lögum þessum.

[Dómstólasýslan setur nánari reglur2) um eftirfarandi at- riði fyrir Landsrétt og héraðsdómstóla]:1)

a. málaskrár, b. þingbækur, þar á meðal [rafræna færslu þeirra],3)

c. búnað til hljóðritunar og [myndupptöku]3) í þinghöld- um,

d. dómabækur, e. varðveislu málskjala, hljóðritana [og myndupptaka],3)

f. [aðgang almennings að endurritum af dómum og úr þingbók, svo og að framlögðum skjölum, þ.m.t. um brott- nám upplýsinga úr þeim, eftir að máli hefur verið endanlega lokið],1)

[g. form og frágang dómskjala, þar á meðal hámarkslengd ákæru og greinargerðar ákærða].3)

1) L. 49/2016, 42. gr. 2) Rgl. 189/2009. 3) L. 78/2015, 20. gr.

III. kafli. Ákæruvaldið. 18. gr. Ákærendur eru ríkissaksóknari, héraðssaksóknari og lög-

reglustjórar. Að auki, í umboði þeirra, vararíkissaksóknari, varahéraðssaksóknari, saksóknarar, aðstoðarsaksóknarar og saksóknarfulltrúar, svo og löglærðir aðstoðarlögreglustjórar.

Hlutverk ákærenda er að tryggja, í samvinnu við lögreglu, að þeir sem afbrot fremja verði beittir lögmæltum viðurlög- um. Þeir taka ekki við fyrirmælum frá öðrum stjórnvöldum

um meðferð ákæruvalds nema sérstaklega sé kveðið á um það í lögum.

Ákærendur skulu vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar. Þeim ber jafnframt að hraða meðferð mála eftir því sem kostur er.

[Ákærendur eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.]1) Tekur þetta til upplýsinga um einkahagi manna sem eðlilegt er að leynt fari, upplýsinga sem varða starfshætti ákæruvalds og lögreglu og fyrirhugaðar aðgerðir í þágu rannsóknar, og annarra upplýsinga sem leynt skulu fara samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

1) L. 71/2019, 5. gr.

19. gr. [Ráðherra]1) hefur eftirlit með framkvæmd ákæruvalds og

getur krafist þess að ríkissaksóknari láti í té gögn og greinar- gerð um meðferð einstakra mála.

Þau sérákvæði í lögum skulu haldast þar sem kveðið er á um að mál skuli því aðeins höfða að [ráðherra]2) mæli svo fyrir. Þegar svo stendur á leggur ráðherra samþykki sitt á ákæru og áfrýjun og getur að auki gefið ríkissaksóknara fyr- irmæli um meðferð máls, þar á meðal um rannsókn þess.

1) L. 126/2011, 490. gr. 2) L. 162/2010, 194. gr.

20. gr. Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds og ber

ábyrgð á ákvörðunum þeirra sem við embætti hans starfa. Skal hann skipaður ótímabundið í embætti af [ráðherra]1) og fullnægja lagaskilyrðum til skipunar í dómaraembætti við Hæstarétt. Skal hann enn fremur njóta sömu lögkjara og hæstaréttardómarar, eftir því sem við verður komið.

Ríkissaksóknari hefur embættisskrifstofu í Reykjavík. Honum til aðstoðar eru vararíkissaksóknari, sem ráðherra skipar ótímabundið, svo og saksóknarar sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Skal vararíkissaksóknari fullnægja sömu lagaskilyrðum og ríkissaksóknari, en saksóknarar skilyrðum til skipunar í embætti héraðsdómara. Ríkissaksóknari ræður annað starfslið við embætti sitt, þar á meðal saksóknarfull- trúa sem lokið hafa embættis- eða meistaraprófi í lögfræði.

[Laun vararíkissaksóknara nema 1.545.462 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 335.020 kr. á mánuði. Laun annarra saksóknara hjá ríkissaksóknara nema 1.358.535 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 335.020 kr. á mánuði.

Laun skv. 3. mgr. skulu taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkis- ins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.]2)

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) L. 79/2019, 10. gr.

21. gr. Ríkissaksóknari gefur út almennar reglur og fyrirmæli um

meðferð ákæruvalds. Hann hefur jafnframt eftirlit með fram- kvæmd ákæruvalds hjá öðrum ákærendum.

Ríkissaksóknari höfðar sakamál ef brot varðar X. kafla al- mennra hegningarlaga, svo og þau mál önnur þar sem [ráð- herra]1) tekur ákvörðun um saksókn, sbr. 2. mgr. 19. gr. Ef sú háttsemi sem um ræðir felur í sér annað eða önnur brot fer

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 5

ríkissaksóknari með ákæruvald vegna þeirra. Ríkissaksókn- ari getur endranær tekið saksókn í sínar hendur, þar á meðal gefið út ákæru eða tekið við sókn máls fyrir dómi hvenær sem hann telur þess þörf.

Ríkissaksóknari getur gefið öðrum ákærendum fyrirmæli um einstök mál sem þeim er skylt að hlíta. Hann getur kveð- ið á um rannsókn máls, mælt fyrir um framkvæmd hennar og fylgst með henni.

[Ríkissaksóknari tekur ákvörðun um áfrýjun héraðsdóms til Landsréttar og um að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar. Einnig tekur hann ákvörðun um kæru til Landsréttar og [um kæru til]2) Hæstaréttar í málum sem hann hefur höfðað.]3)

[Ríkissaksóknari sker úr um valdsvið héraðssaksóknara gagnvart öðrum ákærendum ef vafi rís um það. Ríkissaksókn- ari getur enn fremur falið héraðssaksóknara að fara með mál sem ekki fellur undir 23. gr. eða falið öðrum ákæranda að fara með mál sem þar fellur undir, svo sem ef rannsókn er þegar hafin á því.]4)

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) L. 76/2019, 21. gr. 3) L. 49/2016, 43. gr. 34) L. 47/2015,

1. gr.

22. gr. [Ráðherra]1) skipar héraðssaksóknara ótímabundið og er

embættisskrifstofa hans í Reykjavík. Honum til aðstoðar eru varahéraðssaksóknari, sem ráðherra skipar ótímabundið, svo og saksóknarar sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Ráð- herra ákveður fjölda saksóknara að höfðu samráði við rík- issaksóknara. Skulu héraðssaksóknari, varahéraðssaksóknari og saksóknarar fullnægja skilyrðum til skipunar í embætti héraðsdómara. Héraðssaksóknari ræður annað starfslið við embætti sitt, þar á meðal aðstoðarsaksóknara og saksókn- arfulltrúa sem lokið hafa embættis- eða meistaraprófi í lög- fræði.

Héraðssaksóknari ber ábyrgð á ákvörðunum þeirra sem við embætti hans starfa. Hann skiptir verkum með varahér- aðssaksóknara og saksóknurum og úthlutar þeim málum. Við embættið skal vera sérstök deild skatta- og efnahagsbrota og skal sá eða þeir saksóknarar sem þar starfa bera starfsheiti sem kennt er við málaflokkinn. Héraðssaksóknari getur skipt embættinu í fleiri deildir eftir málaflokkum eða umdæmum.

[Laun héraðssaksóknara nema 1.553.322 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylg- ir nema 382.880 kr. á mánuði. Laun varahéraðssaksóknara nema 1.429.472 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yf- irvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 335.020 kr. á mán- uði. Laun saksóknara sem jafnframt stýrir sviði eða skrifstofu nema 1.393.396 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yf- irvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 335.020 kr. á mán- uði. Laun annarra saksóknara hjá héraðssaksóknara nema 1.358.535 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 335.020 kr. á mánuði.

Laun skv. 3. mgr. skulu taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkis- ins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.]2)

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) L. 79/2019, 11. gr.

23. gr. [Héraðssaksóknari höfðar sakamál ef um er að ræða eftir-

greind brot á almennum hegningarlögum: a. brot á ákvæðum XI. kafla laganna, öðrum en 99. og

101. gr., b. brot á ákvæðum XII.–XIV. kafla laganna, c. brot á ákvæðum XV. kafla laganna, öðrum en 148. gr.

ef brot tengist broti þar sem lögreglustjóri höfðar mál, d. brot á ákvæðum XVI. kafla laganna, e. brot á ákvæðum XVII. kafla laganna, öðrum en 155.–

158. gr., f. brot á ákvæðum XVIII.–XXI. kafla laganna, g. brot á ákvæðum XXII. kafla laganna, öðrum en 206. og

210. gr. a, h. brot á ákvæðum XXIII. kafla laganna, öðrum en 215.

gr. ef brot tengist broti á umferðarlögum, og 217. gr., 1. mgr. 218. gr., [218. gr. b]1) og 219. gr.,

i. brot á ákvæðum XXIV. kafla laganna, j. brot á ákvæðum XXVI. kafla laganna, sem hann rann-

sakar samkvæmt lögreglulögum. Héraðssaksóknari höfðar enn fremur sakamál vegna ann-

arra brota sem hann rannsakar samkvæmt lögreglulögum. [Ef rannsókn á því broti sem héraðssaksóknari fer með

skv. 1. og 2. mgr. leiðir til þess að rannsakað er annað eða önnur brot sama sakbornings sem ákæruvald héraðssaksókn- ara nær alla jafna ekki til getur hann höfðað mál vegna brot- anna en ella gerir lögreglustjóri það.]2)

Að svo miklu leyti sem það fer ekki í bága við fyrir- mæli ríkissaksóknara skv. 3. mgr. 21. gr. getur héraðssak- sóknari gefið lögreglustjórum fyrirmæli um frekari rannsókn einstakra mála sem lögreglustjórar hafa sent héraðssaksókn- ara til ákvörðunar um saksókn, mælt fyrir um framkvæmd hennar og fylgst með henni.

Héraðssaksóknari getur borið undir ríkissaksóknara álita- efni varðandi saksókn eða málsmeðferð að öðru leyti, svo sem ef hann telur að lögreglustjóri eigi að höfða mál, hann telur sig vanhæfan eða mál er vandasamt úrlausnar.

Nú hefur héraðssaksóknari ákveðið að falla frá saksókn skv. 2.–4. mgr. 146. gr. og ber honum þá að tilkynna ríkis- saksóknara það. Ef ríkissaksóknari telur að ekki hafi verið efni til að falla frá saksókn getur hann, innan tveggja mánaða frá því að sú ákvörðun var tekin, lagt fyrir héraðssaksóknara að höfða mál.

Héraðssaksóknari tekur ákvörðun um kæru til [Landsrétt- ar]3) í máli sem hann hefur til rannsóknar eða hann hefur höfðað.]4)

1) L. 23/2016, 7. gr. 2) L. 76/2019, 22. gr. 3) L. 49/2016, 44. gr. 4) L. 47/2015, 2.

gr.

24. gr. Lögreglustjórar höfða önnur sakamál en þau sem ríkissak-

sóknari eða héraðssaksóknari höfðar skv. 2. mgr. 21. gr. og 1. og 2. mgr. 23. gr., sbr. þó 3. mgr. þeirrar greinar.

Lögreglustjóri getur borið undir [ríkissaksóknara]1) álita- efni varðandi saksókn eða málsmeðferð að öðru leyti, svo sem ef hann telur að mál eigi að höfða í öðru umdæmi, hann telur sig vanhæfan eða mál er vandasamt úrlausnar.

[Nú hefur lögreglustjóri ákveðið að falla frá saksókn skv. 2.–4. mgr. 146. gr. og ber honum þá að tilkynna ríkissak- sóknara það. Ef ríkissaksóknari telur að ekki hafi verið efni til að falla frá saksókn getur hann, innan tveggja mánaða frá því að sú ákvörðun var tekin, lagt fyrir héraðssaksóknara eða lögreglustjóra að höfða mál.

Lögreglustjóri sem stýrt hefur rannsókn brots höfðar sakamál vegna þess nema ríkissaksóknari eða héraðssak-

6 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

sóknari höfði mál eða annað leiði af reglum um varnarþing skv. VI. kafla. Í því tilviki tekur ríkissaksóknari ákvörðun um hvaða lögreglustjóri skuli höfða mál eða hvort héraðs- saksóknari geri það.

Lögreglustjóri tekur ákvörðun um kæru til [Landsréttar]2)

í máli sem hann hefur til rannsóknar eða hann hefur höfð- að.]1)

[Laun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu nema 1.750.000 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 350.000 kr. á mánuði. Laun lögreglustjórans á Suðurnesjum nema 1.450.000 kr. á mán- uði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 290.000 kr. á mánuði. Laun lögreglustjórans á Austurlandi, lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, lögreglu- stjórans á Norðurlandi vestra, lögreglustjórans á Suðurlandi, lögreglustjórans á Vestfjörðum og lögreglustjórans á Vestur- landi nema 1.435.894 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 478.600 kr. á mánuði. Laun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum nema 1.321.030 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 363.736 kr. á mánuði.

Laun skv. 6. mgr. skulu taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkis- ins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.]3)

1) L. 47/2015, 3. gr. 2) L. 49/2016, 44. gr. 3) L. 79/2019, 12. gr., sbr. einnig brbákv.

í s.l.

25. gr. Í héraði flytur ríkissaksóknari, vararíkissaksóknari eða

saksóknari þau mál sem ríkissaksóknari höfðar. Hann getur falið héraðssaksóknara eða lögreglustjóra flutning máls fyrir héraðsdómi og fer þá um mál eftir 2. eða 3. mgr. Þá getur ríkissaksóknari falið héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmanni flutning máls í héraði og hefur hann þá sömu réttarstöðu og ákærandi.

Í héraði flytur héraðssaksóknari, varahéraðssaksóknari, saksóknari, aðstoðarsaksóknari eða saksóknarfulltrúi þau mál sem héraðssaksóknari höfðar. [Þá má ríkissaksóknari]1)

fela lögreglustjóra, héraðsdómslögmanni eða hæstaréttarlög- manni að flytja mál í héraði á sama hátt og segir í 1. mgr.

Í héraði annast lögreglustjórar flutning þeirra mála sem þeir höfða. Þeir geta falið aðstoðarlögreglustjóra, aðstoð- arsaksóknurum eða saksóknarfulltrúum við embætti sín að flytja þessi mál. Lögreglustjórum er heimilt að fela öðrum lögreglustjórum að sækja þing í máli.

Ríkissaksóknari sækir mál fyrir [Landsrétti og]2) Hæsta- rétti, sbr. þó 5. mgr. Hann getur falið vararíkissaksóknara, héraðssaksóknara, [varahéraðssaksóknara],1) saksóknara eða hæstaréttarlögmanni að flytja þau mál. Sé hæstaréttarlög- manni falið að flytja mál fyrir [Landsrétti eða]2) Hæstarétti hefur hann sömu skyldur og ákærandi.

Héraðssaksóknari og lögreglustjórar flytja þau kærumál fyrir [Landsrétti]3) sem þeir fara með [skv. 7. mgr. 23. gr.]1)

og 5. mgr. 24. gr. Þeim er heimilt að fela öðrum löglærð- um starfsmönnum sínum flutning þessara mála, eftir því sem segir í 2. eða 3. mgr.

1) L. 47/2015, 4. gr. 2) L. 49/2016, 45. gr. 3) L. 49/2016, 44. gr.

26. gr. Ef ríkissaksóknari væri vanhæfur til að fara með mál sem

dómari skv. 6. gr. skal hann víkja sæti. Setur [ráðherra]1) þá annan löghæfan mann til að fara með það mál. [Nú telur rík- issaksóknari sig vanhæfan til að fara með ótilgreind mál á afmörkuðu sviði um tiltekinn tíma og setur þá [ráðherra]1)

annan löghæfan mann til að gegna hlutverki ríkissaksóknara í slíkum málum.]2)

Ef héraðssaksóknari væri vanhæfur til að fara með mál sem dómari skv. 6. gr. skal hann víkja sæti. Felur ríkissak- sóknari þá öðrum löghæfum manni að fara með það mál.

[Ef lögreglustjóri væri vanhæfur til að fara með mál sem dómari skv. 6. gr. skal ríkissaksóknari fela héraðssaksóknara eða öðrum lögreglustjóra að fara með málið.

Nú hefur ákæra verið gefin út og skal dómari þá, annað- hvort að eigin frumkvæði eða samkvæmt kröfu aðila, vísa máli frá dómi ef hann telur að ákærandi hafi verið vanhæfur til að höfða málið eða lögreglustjóri vanhæfur til að rannsaka það.

Nú er maður á sama hátt og áður greinir vanhæfur til með- ferðar einstaks máls fyrir dómi og má hann þá ekki flytja það sem ákærandi. Dómari úrskurðar um hæfi hans. Ef dómari telur hann vanhæfan til að fara með málið skal ríkissaksókn- ari eða eftir atvikum héraðssaksóknari sjálfur annast flutning þess eða fela öðrum löghæfum manni að gera það.]3)

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) L. 80/2009, 4. gr. 3) L. 47/2015, 5. gr.

IV. kafli. Sakborningur og verjandi. 27. gr. Sakborningur er sá maður sem borinn er sökum eða grun-

aður um refsiverða háttsemi. Enn fremur sá lögaðili sem er sakaður eða grunaður um að bera ábyrgð á slíkri háttsemi.

Ef sakborningur er ólögráða kemur lögráðamaður fram sem fyrirsvarsmaður hans eftir því sem þörf krefur. Lögráða- maður tekur ákvarðanir fyrir hönd hins ólögráða sem hann er ekki talinn bera skynbragð á eða fær um að taka.

Ef sakborningur er lögaðili koma stjórnendur fram sem fyrirsvarsmenn hans, einir eða fleiri í sameiningu, eftir því sem leiðir af almennum reglum. Verði því við komið skal sá maður ekki fara með fyrirsvar sem sakaður er um sams konar brot og lögaðilinn.

Fyrirsvarsmenn skv. 2. og 3. mgr. hafa sömu réttarstöðu og væru þeir sjálfir bornir sökum eða grunaðir um refsiverða háttsemi.

28. gr. Sakborningur á rétt á að fá upplýsingar um sakarefni áður

en skýrsla er tekin af honum út af því eða við handtöku ef til hennar kemur.

Sakborningur sem handtekinn hefur verið í þágu rann- sóknar máls á rétt á að hafa samband við lögmann þegar eftir handtöku, sömuleiðis nánustu vandamenn sína nema sérstök ástæða sé til að ætla að það muni torvelda rannsókn málsins. Í því tilviki skal lögregla, svo fljótt sem kostur er, tilkynna nán- ustu vandamönnum sakbornings að hann hafi verið handtek- inn og hvar hann sé vistaður. [Ráðherra]1) setur í reglugerð2)

nánari ákvæði um hvenær synja má handteknum manni um að hafa samband við nánustu vandamenn sína.

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) Rg. 651/2009, sbr. 652/2020.

29. gr. Sakborningi er heimilt að halda sjálfur uppi vörnum í máli

kjósi hann það og sé hann hæfur til þess að mati dómara eða lögreglu. Í því tilviki skal veita sakborningi, sem er ólöglærð-

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 7

ur, leiðbeiningar um formhlið máls eftir því sem nauðsyn ber til.

30. gr. Skylt er lögreglu að verða við ósk sakbornings um að til-

nefna honum verjanda ef hann hefur verið handtekinn í þágu rannsóknar máls.

Heimilt er lögreglu endranær eftir ósk sakbornings að til- nefna honum verjanda við rannsókn máls áður en til máls- höfðunar kemur ef ástæða er til þess með tilliti til eðlis brots og aðstæðna að öðru leyti. Þá getur lögregla tilnefnt sak- borningi verjanda þótt hann hafi ekki óskað þess ef hann er ekki bær til að gæta hagsmuna sinna sem skyldi við rannsókn máls. Bera má þá ákvörðun undir dómara.

Tilnefning verjanda skv. 1. mgr. fellur sjálfkrafa úr gildi þegar sakborningur er látinn laus eða leiddur fyrir dómara skv. 94. gr. Að öðrum kosti fellur tilnefning úr gildi með úr- skurði dómara, sbr. 3. málsl. 2. mgr., þegar mál er höfðað ellegar rannsókn er hætt eða mál fellt niður með öðrum hætti.

31. gr. Skylt er dómara að verða við ósk sakbornings um skipun

verjanda ef þess hefur verið krafist að hann sæti gæsluvarð- haldi eða öðrum ráðstöfunum skv. XIV. kafla laga þessara ellegar ef mál hefur verið höfðað gegn honum.

Enn fremur er skylt að skipa ákærða verjanda ef í málinu fer fram aðalmeðferð samkvæmt ákvæðum XXV. kafla nema ákærði hafi sjálfur valið sér verjanda skv. 32. gr. og vilji ekki fá hann skipaðan sem slíkan eða óski eftir að flytja mál sitt sjálfur skv. 29. gr.

Heimilt er dómara að skipa sakborningi verjanda þótt hann hafi ekki óskað þess ef hann er að mati dómara ekki fær um að gæta hagsmuna sinna sem skyldi við meðferð máls fyrir dómi.

Ef lögregla neitar eða lætur hjá líða að tilnefna sakborn- ingi verjanda skv. 30. gr. getur hann leitað atbeina dómara og óskað eftir því að honum verði skipaður verjandi.

Skipun verjanda fellur sjálfkrafa úr gildi þegar [dómur]1)

er kveðinn upp ellegar rannsókn er hætt eða mál fellt niður með öðrum hætti.

Nú er [dómi]1) áfrýjað og fer þá um skipun verjanda fyrir [æðri dómi]1) skv. 5. mgr. 201. gr.

1) L. 49/2016, 46. gr.

32. gr. Sakborningi er á öllum stigum . . . 1) máls heimilt að ráða

á sinn kostnað lögmann til að gæta hagsmuna sinna. Lögmaður sem sakborningur hefur ráðið sér án atbeina

dómara eða lögreglu hefur sömu réttindi og skyldur og verj- andi eftir því sem við á. Meðan á rannsókn máls stendur má þó takmarka rétt hans til að ræða við sakborning, vera við- staddur skýrslutöku, kynna sér gögn og fylgjast með fram- vindu rannsóknar ef hætta er á að hún torveldist við það.

1) L. 52/2010, 3. gr.

33. gr. Dómara eða lögreglu ber, þegar skylt er eða heimilt að

skipa eða tilnefna sakborningi verjanda, að vekja athygli hans á þeim rétti.

Verjandi skal skipaður eða tilnefndur úr hópi lögmanna. Áður en verjandi er skipaður eða tilnefndur skal gefa sak-

borningi kost á að benda á lögmann til að fara með þann starfa. Við skipun eða tilnefningu verjanda skal að jafnaði fara eftir ósk sakbornings, sbr. þó 4. og 5. mgr. Enn fremur getur dómari eða lögregla neitað að skipa eða tilnefna þann

verjanda sem óskað er eftir ef uggvænt þykir að hann muni hindra rannsókn málsins á ólögmætan hátt.

Ekki má skipa eða tilnefna þann verjanda sem gegnt hef- ur starfi matsmanns eða kann að verða kvaddur til að gefa skýrslu sem vitni í máli ellegar er að öðru leyti svo viðriðinn mál eða aðila að hætta sé á að hann geti ekki gætt hagsmuna sakbornings sem skyldi.

Nú eru fleiri en einn maður hafðir fyrir sökum í sama máli og er þá heimilt að skipa eða tilnefna sama mann verjanda beggja eða allra ef telja má að hagsmunir þeirra rekist ekki á.

34. gr. Nú óskar sakborningur eftir því að skipun eða tilnefning

verjanda verði afturkölluð og nýr verjandi skipaður eða til- nefndur og skal þá verða við slíkri ósk nema hætta sé á að málið tefjist af þeim sökum.

Ef ætla má að verjandi muni hindra eða hafi hindrað rann- sókn máls með ólögmætum hætti eða hafi brotið gegn starfs- skyldum sínum á annan hátt getur ákærandi eða lögregla leit- að atbeina dómara og krafist þess að hann verði leystur frá störfum og annar skipaður í hans stað. Verjandinn getur kraf- ist þess að dómari úrskurði um þá kröfu.

35. gr. Hlutverk verjanda er að draga fram í málinu allt sem verða

má skjólstæðingi hans til sýknu eða hagsbóta og gæta réttar hans í hvívetna.

Verjandi skal sjálfur sinna starfsskyldum sínum, þar á meðal annast flutning máls. Honum er þó heimilt að láta full- trúa sinn eða annan lögmann vera viðstaddan skýrslutöku og rannsóknarathafnir, svo og sækja einstök þinghöld fyrir sína hönd meðan á rannsókn máls eða meðferð stendur.

Þagnarskylda hvílir á verjanda um það sem skjólstæðing- ur hans kann að hafa trúað honum fyrir um afstöðu sína til brots þess sem um er að tefla, svo og um önnur þau atriði sem hann hefur komist að í starfa sínum og ekki eru almenn- ingi þegar kunn.

36. gr. Verjanda er heimilt að tala einslega við skjólstæðing sinn

um hvað eina sem málið varðar. Meðan á rannsókn stendur er verjanda ætíð heimilt að

vera viðstaddur þegar tekin er skýrsla af skjólstæðingi hans. Verjanda er og heimilt að vera viðstaddur skýrslutöku af öðr- um sakborningum og vitnum í máli skjólstæðings síns ef það þykir hættulaust vegna rannsóknar málsins.

Eftir að ákæra hefur verið gefin út á verjandi rétt á því að vera viðstaddur öll þinghöld í máli og ber dómara að tilkynna honum um þau. Verjandi á jafnframt rétt á að vera viðstadd- ur þinghöld meðan á rannsókn stendur nema hætta sé á að rannsóknin torveldist við það, sbr. 1. mgr. 104. gr.

37. gr. Verjandi skal jafnskjótt og unnt er fá afrit af öllum skjöl-

um máls sem varða skjólstæðing hans, svo og aðstöðu til að kynna sér önnur gögn í málinu. Lögregla getur þó neit- að að veita verjanda aðgang að einstökum skjölum eða öðr- um gögnum í allt að þrjár vikur frá því að þau urðu til eða komust í vörslur hennar ef hún telur að það geti skaðað rann- sókn málsins. Af sömu ástæðu er lögreglu heimilt að neita verjanda um afrit af einstökum skjölum meðan á rannsókn máls stendur. Bera má synjun undir dómara.

Nú hefur lögregla krafist skýrslutöku fyrir dómi skv. b-lið 1. mgr. 59. gr. og getur þá dómari framlengt frest skv. 1. mgr. í allt að fimm vikur svo að unnt verði að ljúka skýrslutöku innan hans.

8 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Enn fremur getur lögregla synjað verjanda um aðgang að einstökum skjölum og öðrum gögnum meðan á rannsókn máls stendur ef öryggi ríkisins eða almennings er í húfi elleg- ar brýnir einkahagsmunir annarra en skjólstæðings hans eða samskipti við yfirvöld í öðrum ríkjum standa því í vegi. Bera má þá synjun undir dómara.

Þegar verjandi hefur fengið aðgang að gögnum máls er honum heimilt að láta skjólstæðingi sínum í té eintak af þeim eða kynna honum þau með öðrum hætti.

Lögregla skal gefa verjanda færi á að fylgjast með fram- vindu rannsóknar að svo miklu leyti sem kostur er. Skal hún taka til greina ábendingar hans um tilteknar rannsóknarað- gerðir nema hún telji þær óheimilar eða þýðingarlausar.

38. gr. Þóknun skipaðs verjanda skal ákveðin í dómi eða úrskurði

ef máli lýkur þannig nema hann hafi afsalað sér þóknun. Ef máli lýkur ekki með þeim hætti ákveður dómari þóknun með bókun í þingbók eða skriflega á annan hátt.

Dómari ákveður þóknun í einu lagi ef sá sem tilnefnd- ur hefur verið verjandi sakbornings er síðar skipaður til að gegna því starfi. [Að öðrum kosti skal héraðssaksóknari, lög- reglustjóri eða löglærður starfsmaður þeirra ákveða þókn- un tilnefnds verjanda.]1) Heimilt er að greiða verjanda hluta áætlaðrar þóknunar áður en rannsókn máls lýkur.

Þóknun skipaðs eða tilnefnds verjanda greiðist úr ríkis- sjóði og telst til sakarkostnaðar skv. [233. gr.]2) [[Dómstóla- sýslan]2) skal setja reglur um tímagjald sem tekið skal mið af við ákvörðun þóknunar.]3)

1) L. 47/2015, 6. gr. 2) L. 49/2016, 47. gr. 3) L. 78/2015, 21. gr.

V. kafli. Brotaþoli og réttargæslumaður. 39. gr. Brotaþoli er sá maður sem kveðst hafa orðið fyrir misgerð

af völdum afbrots. Enn fremur sá maður sem telur sig hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni af refsiverðri háttsemi, enda hafi hún beinst að honum sjálfum, eða lögaðili sem sagður er hafa beðið slíkt tjón.

Ef brotaþoli er ólögráða kemur lögráðamaður fram sem fyrirsvarsmaður hans. Lögráðamaður tekur ákvarðanir fyrir hönd hins ólögráða sem hann er ekki talinn bera skynbragð á eða vera fær um að taka.

Ef brotaþoli er lögaðili koma stjórnendur fram sem fyrir- svarsmenn hans, einir eða fleiri í sameiningu, eftir því sem leiðir af almennum reglum.

Fyrirsvarsmenn skv. 2. og 3. mgr. hafa sömu réttarstöðu og hefðu þeir sjálfir talið sig hafa beðið tjón af refsiverðri háttsemi.

Brotaþoli er ekki aðili að sakamáli. Ef hann hefur uppi einkaréttarkröfu skv. XXVI. kafla nýtur hann þó, að því er þann þátt málsins varðar, sömu réttarstöðu og aðili að einka- máli, eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum þessum.

40. gr. Lögreglu er skylt, eftir því sem við á, að leiðbeina brota-

þola um réttindi hans lögum samkvæmt. Nú liggur fyrir hver brotaþoli er og skal þá tilkynna hon-

um ef rannsókn máls er hætt eða það fellt niður með öðr- um hætti án tillits til þess hvort hann hefur kært brotið. Ber að rökstyðja ákvörðunina ef brotaþoli krefst þess. Jafnframt skal lögregla benda brotaþola á að hann geti borið ákvörðun hennar um að hætta rannsókn undir [ríkissaksóknara]1) skv. 5. mgr. 52. gr.

Ef ákæra er gefin út skal ákærandi tilkynna brotaþola eða réttargæslumanni hans það þegar hún hefur verið birt nema

hann hafi áður fengið vitneskju um ákæruna. Jafnframt ber ákæranda að tilkynna brotaþola um niðurstöðu dóms, ef því er að skipta, eða afdrif máls að öðru leyti, enda hafi hags- muna hans ekki verið gætt fyrir dómi.

1) L. 47/2015, 7. gr.

41. gr. Skylt er lögreglu að tilnefna réttargæslumann ef rannsókn

máls beinist að broti á XXII. kafla almennra hegningarlaga og brotaþoli óskar þess. Þó skal ávallt tilnefna réttargæslu- mann ef brotaþoli hefur ekki náð 18 ára aldri þegar rannsókn hefst.

Skylt er lögreglu endranær eftir ósk brotaþola að tilnefna honum réttargæslumann ef rannsókn beinist að broti á XX- III. eða XXIV. kafla almennra hegningarlaga eða 251.–253. gr. laganna og ætla má að brotaþoli hafi orðið fyrir verulegu tjóni á líkama eða andlegu heilbrigði af völdum brotsins eða að brotið hafi verið gegn honum af einhverjum sem er honum nákominn. Það er skilyrði fyrir tilnefningu réttargæslumanns samkvæmt þessari málsgrein að brotaþoli hafi að mati lög- reglu þörf fyrir sérstaka aðstoð réttargæslumanns til þess að gæta hagsmuna sinna í málinu.

Heimilt er lögreglu að tilnefna brotaþola réttargæslumann þótt hann hafi ekki óskað þess ef skilyrðum 2. mgr. er full- nægt og hann er ekki fær um að gæta hagsmuna sinna sem skyldi við rannsókn máls.

Þegar skilyrði eru til þess að tilnefna réttargæslumann skv. 1.–3. mgr. skal það gert jafnskjótt og tilefni gefst. Tilnefn- ing fellur sjálfkrafa úr gildi við skipun réttargæslumanns skv. 1. mgr. 42. gr., en ella skal lögregla taka ákvörðun um það hverju sinni.

42. gr. Þegar mál hefur verið höfðað og skilyrði eru til þess að til-

nefna réttargæslumann skv. 1.–3. mgr. 41. gr. skipar dómari brotaþola réttargæslumann.

Ef lögregla neitar eða lætur hjá líða að tilnefna brotaþola réttargæslumann skv. 41. gr. getur hann leitað atbeina dómara og óskað eftir því að sér verði skipaður réttargæslumaður.

43. gr. Brotaþola er heimilt að ráða á sinn kostnað lögmann til að

gæta hagsmuna sinna. Lögmaður sem brotaþoli hefur ráðið sér án atbeina dóm-

ara eða lögreglu hefur sömu réttindi og skyldur og réttar- gæslumaður eftir því sem við á. Meðan á rannsókn máls stendur má þó takmarka rétt hans til að vera viðstaddur skýrslutöku af brotaþola og kynna sér gögn ef hætta er á að rannsókn torveldist við það.

44. gr. Ákvæði 33. og 34. gr. gilda um tilnefningu, skipun og hæfi

réttargæslumanns, svo og afturköllun á tilnefningu og skipun hans, eftir því sem við á.

45. gr. Hlutverk réttargæslumanns er að gæta hagsmuna skjól-

stæðings síns og veita honum aðstoð í málinu, þar á meðal við að setja fram einkaréttarkröfur skv. XXVI. kafla.

Réttargæslumaður skal sjálfur sinna starfsskyldum sínum, þar á meðal tjá sig munnlega fyrir dómi. Honum er þó heim- ilt að láta fulltrúa sinn eða annan lögmann vera viðstaddan skýrslutöku af skjólstæðingi sínum og sækja einstök þing- höld fyrir sína hönd.

Þagnarskylda hvílir á réttargæslumanni um það sem brotaþoli trúir honum fyrir og um önnur þau atriði sem hann hefur komist að í starfa sínum og ekki eru þegar kunn.

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 9

46. gr. Meðan á rannsókn stendur er réttargæslumanni ætíð heim-

ilt að vera viðstaddur þegar skýrsla er tekin af skjólstæðingi hans.

Eftir að ákæra hefur verið gefin út á réttargæslumaður rétt á því að vera viðstaddur öll þinghöld í máli. Ber dómara að tilkynna honum hvenær þing verður háð.

Réttargæslumaður má ekki beina spurningum til þeirra sem gefa skýrslu hjá lögreglu eða fyrir dómi. Þó getur hann beint þeim tilmælum til lögreglu eða dómara að skjólstæð- ingur hans verði spurður um tiltekin atriði, svo og ákærði og vitni um afmörkuð atriði sem varða sérstaklega einkaréttar- kröfur brotaþola.

Réttargæslumanni er einungis heimilt að tjá sig munnlega fyrir dómi um einkaréttarkröfur skjólstæðings síns, en ekki um kröfur ákæruvalds að öðru leyti. Þó má hann tjá sig um réttarfarsatriði ef þau snúa sérstaklega að skjólstæðingnum.

47. gr. Meðan á rannsókn stendur á réttargæslumaður einungis

rétt á að fá aðgang að þeim gögnum sem varða þátt skjól- stæðings hans í málinu og honum eru nauðsynleg til að gæta hagsmuna skjólstæðingsins. Þó er óheimilt að afhenda rétt- argæslumanni afrit af skjölum eða veita honum aðgang að gögnum ef verjanda hefur verið synjað um það. Við þing- festingu máls á réttargæslumaður rétt á að fá aðgang að öll- um gögnum sem varða þátt skjólstæðings hans nema dómari telji að það kunni að torvelda að mál upplýsist. Í því tilviki skal hann þó í síðasta lagi fá aðgang að gögnunum áður en málið er flutt.

Þegar réttargæslumaður hefur fengið aðgang að gögnum máls er honum heimilt að láta skjólstæðingi sínum í té eintak af þeim eða kynna honum þau með öðrum hætti.

Brotaþoli sem ekki nýtur aðstoðar réttargæslumanns á rétt til aðgangs að gögnum máls skv. 1. mgr.

48. gr. Þóknun skipaðs réttargæslumanns skal ákveðin í dómi eða

úrskurði, ef máli lýkur þannig, nema hann hafi afsalað sér þóknun. Ef máli lýkur ekki með dómi ákveður dómari þókn- un með bókun í þingbók eða skriflega með öðrum hætti.

Dómari ákveður þóknun í einu lagi ef sá sem tilnefndur hefur verið réttargæslumaður brotaþola er síðar skipaður til að gegna því starfi. [Að öðrum kosti skal héraðssaksóknari, lögreglustjóri eða löglærður starfsmaður þeirra ákveða þókn- un tilnefnds réttargæslumanns.]1)

Þóknun réttargæslumanns greiðist úr ríkissjóði og telst til sakarkostnaðar skv. [233. gr.]2) [[Dómstólasýslan]2) skal setja reglur um tímagjald sem tekið skal mið af við ákvörðun þóknunar.]3)

1) L. 47/2015, 8. gr. 2) L. 49/2016, 47. gr. 3) L. 78/2015, 22. gr.

VI. kafli. Varnarþing. 49. gr. Kröfu um rannsóknaraðgerð sem atbeina dómara þarf til

skal að öðru jöfnu beint til héraðsdóms í umdæmi þess lög- reglustjóra sem stýrir rannsókn brots. Ef [héraðssaksóknari eða]1) ríkislögreglustjóri fer með rannsókn skal kröfu að öðru jöfnu beint til [Héraðsdóms Reykjavíkur].2)

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má beina kröfu um rannsóknar- aðgerð til héraðsdóms í öðru umdæmi ef það horfir til flýtis eða hagræðis. Ef taka þarf skýrslu fyrir dómi af sakborningi eða vitni meðan á rannsókn máls stendur má jafnframt gera það í umdæmi þar sem skýrslugjafi á heimili eða er staddur

eða þar sem fyrirsjáanlegt er að mál um sakarefnið kunni að verða höfðað.

Þegar ágreiningur skv. 2. mgr. 102. gr. er borinn undir dómara skal það gert fyrir héraðsdómi í umdæmi þess lög- reglustjóra sem stýrir rannsókn brots, sbr. 1. mgr. [Ef hér- aðssaksóknari eða ríkislögreglustjóri fer með rannsókn skal kröfu beint til héraðsdóms í Reykjavík.]1)

1) L. 47/2015, 9. gr. 2) L. 49/2016, 48. gr.

50. gr. Mál sem sætir almennri meðferð fyrir dómi skv. XXV.

kafla má höfða í þinghá þar sem ákærði á heimilisvarnarþing. Ef fleiri en einn eru sóttir til saka í sama máli má höfða það á heimilisvarnarþingi annars eða einhvers þeirra. Mál á hendur manni sem ekki á heimilisvarnarþing hér á landi má höfða hvar sem er á landinu.

Ef mál varðar eitt brot má höfða málið í þinghá þar sem brotið var framið. Þá má höfða mál um fleiri brot en eitt í þinghá þar sem eitthvert þeirra var framið hafi þau öll verið framin í umdæmi sama héraðsdómstóls.

Höfða má mál fyrir héraðsdómi hvar sem er á landinu ef brot var framið hérlendis og vafi leikur á um mörk dómum- dæma ellegar á íslensku skipi eða í loftfari utan umdæma, svo og ef brot var framið erlendis og mál um það sætir lögsögu íslenskra dómstóla.

Ef ákærði eða verjandi hans sækir þing við þingfestingu máls sem höfðað er í annarri þinghá en að framan greinir verður því ekki vísað frá dómi nema hann krefjist þess.

51. gr. Ef ríkissaksóknari, héraðssaksóknari eða lögreglustjóri

ber undir dóm mál sem sætir afbrigðilegri meðferð skv. XX- VII. kafla skal það gert fyrir héraðsdómi í því umdæmi þar sem hann hefur starfsstöð eða sá sem málið varðar á heimil- isvarnarþing. Sé slíkt mál borið undir dóm af öðrum skal það gert fyrir héraðsdómi þar sem hann á sjálfur heimilisvarnar- þing en sé það ekki fyrir hendi, þá fyrir héraðsdómi hvar sem er á landinu.

2. þáttur. Rannsókn.

VII. kafli. Almennar reglur um rannsókn. 52. gr. [Rannsókn sakamála er í höndum lögreglu, undir stjórn

héraðssaksóknara eða lögreglustjóra, nema öðruvísi sé mælt fyrir um í lögum.]1)

Lögregla skal hvenær sem þess er þörf hefja rannsókn út af vitneskju eða grun um að refsivert brot hafi verið framið hvort sem henni hefur borist kæra eða ekki. Enn fremur skal lögregla rannsaka mannslát, mannshvörf, eldsvoða, slys og aðrar ófarir, þótt ekki liggi fyrir grunur um refsiverða hátt- semi. [Ríkissaksóknari getur gefið lögreglu fyrirmæli um að hefja rannsókn, sbr. 3. mgr. 21. gr.]1)

Kæru vegna refsiverðs brots eða beiðni um rannsókn skal beint til lögreglu eða ákæranda. Nú er háttsemi ekki refsi- verð nema brotaþoli krefjist þess að sakamál skuli höfðað og skal þá ekki byrja rannsókn nema samkvæmt kröfu hans. Um kröfuna gilda annars ákvæði 144. gr. eftir því sem við á.

Lögregla vísar frá kæru um brot ef ekki þykja efni til að hefja rannsókn út af henni. Sé rannsókn hafin getur lögregla einnig hætt henni ef ekki þykir grundvöllur til að halda henni áfram, svo sem ef í ljós kemur að kæra hefur ekki verið á rökum reist eða brot er smávægilegt og fyrirsjáanlegt er að rannsóknin muni hafa í för með sér óeðlilega mikla fyrirhöfn

10 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

og kostnað. Ekki er skylt að gefa þeim sem hlut á að máli kost á að tjá sig áður en slík ákvörðun er tekin.

Nú er kæru vísað frá eða rannsókn hætt skv. 4. mgr. og er lögreglu þá skylt að tilkynna það kæranda hafi hann hags- muna að gæta. Skal honum jafnframt bent á að hann geti kært ákvörðunina til [ríkissaksóknara]1) skv. 6. mgr.

[Sá sem á hagsmuna að gæta getur kært ákvörðun lög- reglu skv. 4. mgr. til ríkissaksóknara innan eins mánaðar frá því að honum er tilkynnt um hana eða hann fær vitneskju um hana með öðrum hætti. Ber ríkissaksóknara að taka af- stöðu til kærunnar innan þriggja mánaða frá því að hún berst honum.]1) [Ríkissaksóknari]1) getur jafnframt ákveðið að eig- in frumkvæði að kæru skuli vísað frá eða að rannsókn skuli hætt, enda sé eitthvert skilyrða 4. mgr. fyrir hendi. Ekki er skylt að gefa þeim sem hlut á að máli kost á að tjá sig áður en slík ákvörðun er tekin, en tilkynna skal kæranda hana eftir því sem segir í 5. mgr.

. . . 1)

[Lögreglu er skylt að rökstyðja í stuttu máli ákvarðanir sínar skv. 4. mgr. ef þess er óskað.]1)

1) L. 47/2015, 10. gr.

53. gr. Markmið rannsóknar er að afla allra nauðsynlegra gagna

til þess að ákæranda sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja skuli mann til sakar, svo og að afla gagna til undirbún- ings málsmeðferð fyrir dómi.

Þeir sem rannsaka sakamál skulu vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar. Þeim ber jafnframt að hraða með- ferð mála eftir því sem kostur er.

Þeir sem rannsaka sakamál skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert meira tjón, óhagræði eða miski en óhjákvæmi- legt er eftir því sem á stendur. Ekki mega þeir beita sakborn- ing eða aðra harðræði umfram það sem lög heimila og nauð- synlegt er til að vinna bug á mótþróa þeirra gegn lögmætum aðgerðum né á annan hátt að beita þá ólögmætri þvingun í orði eða verki, svo sem með hótunum.

54. gr. Rannsaka skal og afla allra tiltækra gagna um verknað

þann sem um er að ræða, svo sem stað og stund og öll nánari atvik, sem ætla má að skipt geti máli, leita þess sem grunaður er um brot, finna sjónarvotta og aðra sem ætla má að borið geti vitni, svo og að hafa uppi á munum sem hald skal leggja á og öðrum sýnilegum sönnunargögnum. Þá skal rannsaka vettvang ef við á og yfirleitt öll ummerki sem kunna að vera eftir brot.

Rannsaka skal þau atriði sem varða sakborning sjálfan, þar á meðal eftir því sem ástæða er til aldur hans, persónu- legar aðstæður, svo sem fjölskyldu- og heimilishagi, mennt- un, störf og efnahag, hegðun hans og fyrri brot, og þroska hans og heilbrigðisástand, andlegt og líkamlegt.

Rannsaka skal hugarfar sakbornings og hvatir hans til brots, hvort hann hefur framið brot af ásetningi eða eftir at- vikum af gáleysi og ef um tilraun er að ræða hvort hann hefur horfið af sjálfsdáðum frá henni. Ef fleiri en einn eru um brot skal eftir föngum rannsaka þátt hvors eða hvers þeirra um sig.

55. gr. Skylt er mönnum, ef þeir eru kvaddir til þess, að veita

lögreglu lið í þágu rannsóknar, að því tilskildu að þeir geti það án hættu fyrir líf og heilsu sína, vandamanna sinna eða annarra sem þeir eiga að annast. Svo er mönnum með sama

skilorði skylt að láta í té aðstöðu eða muni sem þeir ráða yfir í þarfir rannsóknar, svo sem hús og flutningatæki. Undanþegn- ir skyldu samkvæmt þessari málsgrein eru nánustu vanda- menn sakbornings sem greindir eru í 117. gr. laga þessara.

Greiða skal fyrir vinnu og annað það sem látið er í té skv. 1. mgr. og fer um það sem annan sakarkostnað.

56. gr. Lögregla tekur saman skýrslu um rannsókn sína í hverju

máli um sig þar sem getið skal einstakra rannsóknaraðgerða og niðurstöðu þeirra. Eftir því sem við á skal þar meðal annars koma fram það sem sakborningur og vitni bera við skýrslutöku, sbr. 64. og 65. gr., athugun lögreglu sjálfrar og niðurstaða skoðunar og rannsóknar sérfróðra manna.

Ef ætla má að lífi, heilbrigði eða frelsi lögreglumanns sem gerir skýrslu eða sinnir rannsóknaraðgerð ellegar náinna vandamanna hans, sbr. 1. eða 2. mgr. 117. gr., yrði stefnt í hættu ef gert væri uppskátt hver hann er getur sá sem rann- sókn stýrir ákveðið að gefa lögreglumanninum þar tilbúið heiti eða auðkenni. Skal þá um leið skjalfest hvaða lögreglu- maður á hlut að máli, en aðrir skulu ekki hafa aðgang að upplýsingum um það en sá sem rannsókn stýrir og ákærandi, svo og dómari ef upplýsingarnar eru síðar lagðar fyrir dóm.

Ríkissaksóknara er heimilt að setja reglur um skyldu lög- reglu til að veita upplýsingar um rannsókn máls, ef eftir þeim er leitað, þar sem meðal annars sé kveðið á um hvaða atriði eigi að upplýsa þegar verið er að rannsaka tilteknar tegundir mála og á hvaða stigi rannsóknar það verði gert.

57. gr. Nú telur lögregla að rannsókn sé lokið og gögn kom-

in fram sem geti leitt til saksóknar og sendir hún ákæranda þá rannsóknargögnin nema lögreglustjóri megi sjálfur höfða mál skv. 1. og 4. mgr. 24. gr. Með rannsóknargögnum sendir lögregla skýrslu um rannsóknina skv. 1. mgr. 56. gr.

Ákærandi getur mælt fyrir um frekari rannsóknaraðgerðir af hálfu lögreglu ef hann telur þess þörf, sbr. 3. mgr. 21. gr. og 4. mgr. 23. gr.

Nú hefur rannsókn á hendur sakborningi verið hætt vegna þess að sakargögn hafa ekki þótt nægileg til ákæru og á þá ekki að taka rannsókn upp á ný gegn honum nema ný sak- argögn séu fram komin eða líklegt sé að þau komi fram. Ef rannsókn gegn sakborningi hefur verið hætt skal lögregla til- kynna honum það og á hann rétt á að fá það staðfest skriflega.

VIII. kafli. Skýrslutaka við rannsókn. 58. gr. Lögregla tekur skýrslu af sakborningi og vitnum meðan

mál er til rannsóknar eftir því sem nánar er fyrir mælt í þess- um kafla, sbr. þó 59. gr.

Að kröfu lögreglu er hverjum þeim, sem spurður er, skylt að skýra frá nafni sínu, kennitölu og heimili.

59. gr. Meðan á rannsókn stendur fer skýrslutaka fram fyrir dómi

í eftirgreindum tilvikum: a. af brotaþola ef rannsókn beinist að broti á XXII. kafla

almennra hegningarlaga og hann hefur ekki náð 15 ára aldri þegar rannsókn máls hefst,

b. af sakborningi, brotaþola eða öðrum vitnum ef lögregla telur það nauðsynlegt til þess að upplýsa mál áður en verjandi fær aðgang að einstökum skjölum eða öðrum gögnum þess,

c. af brotaþola eða öðrum vitnum ef þau neita að mæta til skýrslutöku hjá lögreglu eða neita að svara spurningum henn- ar, ætla má að þau komist ekki fyrir dóm við meðferð málsins

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 11

eða það er talið æskilegt með tilliti til hagsmuna þeirra, svo sem ef um börn er að ræða.

Um skýrslutöku fyrir dómi skv. 1. mgr. gilda ákvæði XV. kafla.

60. gr. Ef lögregla kemur á vettvang brots og ræðir þar við sjón-

arvotta eða önnur vitni getur hún skráð skýrslu um frásögn þeirra án þess að þau staðfesti hana sérstaklega.

Á öðrum stigum rannsóknar getur lögregla með samtali við vitni aflað frásagnar þess um atriði sem tengjast ætluðu broti og gert skýrslu um efni hennar á sama hátt og skv. 1. mgr.

Ákvæði 63.–65. gr. gilda um skýrslutöku skv. 1. og 2. mgr. eftir því sem við á.

61. gr. Ef sakborningur hefur ekki verið handtekinn skal lög-

regla kveðja hann til skýrslutöku og er honum skylt að sinna þeirri kvaðningu. Ef taka á skýrslu af sakborningi yngri en 18 ára vegna ætlaðs brots gegn almennum hegningarlögum eða brots gegn öðrum lögum, sem varðað getur þyngri refsingu en tveggja ára fangelsi, skal tilkynna það barnaverndarnefnd sem getur sent fulltrúa sinn til að vera við skýrslutökuna.

Ef lögregla telur þörf á að taka frekari skýrslu af vitni, þar á meðal brotaþola, en kveðið er á um í 60. gr. skal hún boða vitnið til skýrslutöku. Vitni getur skorast undan að verða við þeirri boðun.

Ef verjandi og réttargæslumaður eiga rétt á því að vera viðstaddir skýrslutöku samkvæmt þessari grein skulu þeir jafnframt boðaðir til hennar.

62. gr. Skýrslutaka af sakborningi og vitnum skv. 61. gr. fer fram

fyrir luktum dyrum. Sé þess kostur skal hún fara fram á lög- reglustöð eða í öðru sérútbúnu húsnæði.

Skýrslutaka af manni má ekki standa yfir lengur en í sam- tals tólf klukkustundir á hverjum 24 klukkustundum. Nú hef- ur skýrslutaka staðið yfir í fjórar klukkustundir, þó með stutt- um hléum sé, og er þá skylt að ósk skýrslugjafa að gera lengra hlé á henni í minnst eina klukkustund áður en henni er fram haldið. Séð skal til þess að skýrslugjafi fái að öðru leyti nægi- lega hvíld og næringu.

Spyrja skal hvern mann án nærveru annarra, hvort sem er sakbornings eða vitna, uns ástæða kann að vera til að sam- prófa þá sem skýrslu gefa. Samprófun fer þannig fram að tekin skal í senn skýrsla af tveimur eða fleiri mönnum og spurningum þar beint til þeirra um tiltekin atriði sem þeim hefur ekki borið saman um.

Auk þess lögreglumanns sem stýrir skýrslutöku skal við hana vera einn greinargóður og trúverðugur vottur, sé þess kostur.

63. gr. Sá sem gefur skýrslu skv. 61. gr. skal fyrst spurður um

nafn, kennitölu og heimili. Skýrslugjafi á rétt á því að fá vitneskju um það, þegar mál

er orðið svo skýrt að þess sé kostur, hvort hann er spurð- ur vegna gruns á hendur honum um refsivert brot eða hvort hann er kvaddur til vitnisburðar.

Spurningar lögreglu skulu vera skýrar og ótvíræðar. Ekki má rugla skýrslugjafa með ósannindum eða á annan hátt eða beita hann neins konar ólögmætri þvingun í orði eða verki.

Ef verjandi er viðstaddur skýrslutöku getur hann beint þeim tilmælum til þess sem skýrslu tekur að skýrslugjafi

verði spurður um tiltekin atriði. Á sama hátt getur réttar- gæslumaður, sem viðstaddur er skýrslutöku, mælst til þess að skjólstæðingur hans verði spurður um tiltekin atriði. Sé ekki farið að slíkum tilmælum eða sjái verjandi eða réttargæslu- maður að öðru leyti ástæðu til getur hann krafist þess að fá bókaða stuttorða athugasemd um framkvæmd skýrslutöku í lok hennar.

Nú kann skýrslugjafi íslensku ekki nægilega vel og skal þá lögregla kalla til löggiltan dómtúlk eða annan hæfan mann til að annast þýðingu þess sem fram fer. [Á sama hátt skal lög- regla kalla til táknmálstúlk ef skýrslugjafi reiðir sig á íslenskt táknmál til samskipta.]1) Ef skýrslugjafi er ekki [fyllilega]1)

fær um að eiga orðaskipti á mæltu máli [eða íslensku tákn- máli]1) skal lögregla á sama hátt sjá um að kalla til kunnáttu- mann til aðstoðar. Lögregla ákveður þóknun til handa túlki eða kunnáttumanni og greiðist hún og annar kostnaður vegna starfa þeirra úr ríkissjóði. Um störf þeirra og hæfi gilda að öðru leyti ákvæði 12. gr. eftir því sem við á.

1) L. 18/2019, 5. gr.

64. gr. Ef sakborningur hefur ekki fengið upplýsingar um sakar-

efni skal honum gerð grein fyrir því við upphaf skýrslutöku, sbr. 1. mgr. 28. gr.

Sakborningi er óskylt að svara spurningum varðandi refsi- verða hegðun sem honum er gefin að sök. Ber þeim sem skýrslu tekur að benda sakborningi ótvírætt á þennan rétt hans.

Ef sakborningur kýs að gefa skýrslu um sakarefnið skal brýnt fyrir honum að segja satt og rétt frá og draga ekkert undan sem máli kann að skipta. Ekki má gefa honum fyr- irheit um ívilnanir eða fríðindi ef hann ber á ákveðinn hátt, enda séu slík fyrirheit ólögleg eða ekki á valdi lögreglu að veita þau.

Sakborningur má ekki ráðfæra sig við verjanda sinn um hvernig hann eigi að svara einstökum spurningum. Þó er sak- borningi heimilt að ráðgast við verjanda um réttarstöðu sína í einrúmi, enda trufli það ekki skýrslutöku að mati þess sem skýrslu tekur. Nú greinir hann og verjanda á og skal skýrslu- tökunni samt eigi að síður fram haldið en rétt á verjandi á að gera í stuttu máli grein fyrir afstöðu sinni með bókun.

65. gr. Ef vitni, þar á meðal brotaþoli, gefur skýrslu skv. 61. gr.

er því skylt að svara spurningum og skýra satt og rétt frá að viðlagðri refsiábyrgð, sbr. þó 2. mgr. Ber þeim sem skýrslu tekur að brýna fyrir vitninu þessa skyldu þess.

Vitni er heimilt að neita eða eftir atvikum óheimilt að svara einstökum spurningum ef þær ástæður sem greindar eru í 117.–119. gr. eiga við. Skal vekja athygli vitnisins á þessum undanþágum frá skyldu til vitnisburðar ef tilefni er til.

Vitni getur farið fram á að nafn þess, kennitala og heim- ili sem og aðrar upplýsingar, sem gætu bent til þess hvert það er, komi ekki fram í lögregluskýrslu, ef það telur hættu á að lífi, heilbrigði eða frelsi þess sjálfs ellegar náinna vanda- manna þess, sbr. 1. eða 2. mgr. 117. gr., yrði stefnt í hættu ef gert væri uppskátt hvert það er. Í því tilviki skulu upplýs- ingar þessar varðveittar þannig að tryggt sé að aðrir fái ekki aðgang að þeim en sá sem rannsókn stýrir og ákærandi, svo og dómari ef skýrslan er síðar lögð fyrir dóm. Skal vekja at- hygli vitnisins á þessum rétti þess ef tilefni er til.

66. gr. Þegar tekin er skýrsla af sakborningi eða vitni skv. 61.–

65. gr. skal skráð á þar til gert eyðublað hvar skýrslutakan fer

12 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

fram, hver tekur skýrsluna, hver gefur hana og hverjir aðrir eru viðstaddir. Skal þar jafnframt skráð hvenær skýrslutaka hefst og hvenær henni lýkur, hvernig henni er háttað, sbr. 2. mgr., og hvaða gögn eru lögð fyrir eða sýnd skýrslugjafa. Enn fremur athugasemdir hans, ef einhverjar eru, og athuga- semdir verjanda eða réttargæslumanns, sbr. 4. mgr. 63. gr.

Það sem kemur að öðru leyti fram við skýrslutöku skal hljóðritað, tekið upp á myndband eða mynddisk, ef því verð- ur við komið, en annars ritað af þeim sem skýrslu tekur eftir nánari ákvörðun hans. Skal ákvörðunin tilkynnt skýrslugjafa og öðrum sem viðstaddir eru skýrslutöku. Ef framburður er ekki hljóðritaður eða tekinn upp á annan hátt skal leitast við að skrá orðrétt eftir skýrslugjafa. Í lok skýrslutöku skal gefa skýrslugjafa tækifæri til að lesa það sem skráð hefur verið eftir honum. Vilji hann leiðrétta það sem þar kemur fram eða skýra það frekar ber að gefa honum kost á því, eftir atvikum með því að skrá niður athugasemdir hans, sbr. 1. mgr.

Að lokinni skýrslutöku ritar sá sem skýrslu tekur, skýrslu- gjafi og aðrir sem viðstaddir eru nöfn sín undir eyðublað skv. 1. mgr. Ef framburður skýrslugjafa hefur verið skráð- ur ritar hann jafnframt nafn sitt undir þá skýrslu. Eyðublaðið ásamt framburði skýrslugjafa á að fylgja rannsóknarskýrslu lögreglu skv. 56. gr.

Nú hefur vitni gefið skýrslu hjá lögreglu án þess að nafn þess og önnur persónueinkenni komi þar fram, sbr. 3. mgr. 65. gr., og á þá ekki að greina þær upplýsingar á eyðublaði skv. 1. mgr. og þær eiga ekki heldur að koma fram á gögnum skv. 2. mgr., auk þess sem vitnið þarf ekki að rita nafn sitt skv. 3. mgr.

67. gr. [Ráðherra]1) setur í reglugerð2) nánari ákvæði um mála-

skrá lögreglu, um skýrslur sem teknar eru og varðveislu skrif- legra skýrslna, hljóðritana, myndbanda og mynddiska með framburði skýrslugjafa.

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) Rg. 651/2009, sbr. 652/2020.

IX. kafli. Hald á munum. 68. gr. Leggja skal hald á muni, þar á meðal skjöl, ef ætla má að

þeir ellegar hlutir eða upplýsingar sem þeir hafa að geyma hafi sönnunargildi í sakamáli, að þeirra hafi verið aflað á refsiverðan hátt eða að þeir kunni að verða gerðir upptæk- ir. Óheimilt er að leggja hald á muni ef þeir hafa að geyma upplýsingar um það sem sakborningi og verjanda hans hefur farið á milli, svo og upplýsingar sem 2. mgr. 119. gr. tekur til.

Nú er þess kostur að tryggja sönnun í því skyni sem í 1. mgr. segir án þess að leggja þurfi hald á mun og skal þá þess í stað beina því til eiganda eða vörsluhafa munarins að veita aðgang að honum eða láta í té upplýsingar, sem hann hefur að geyma, svo sem með því að afhenda afrit af skjali eða annars konar upplýsingum.

69. gr. Lögreglu er heimilt að leggja hald á muni án dómsúr-

skurðar, sbr. þó 2. mgr. Nú eru munir í eigu eða vörslum annars manns en sak-

bornings og ekki er hætta á að þeir fari forgörðum eða þeim verði skotið undan og skal þá haldlagning ákveðin með úr- skurði dómara nema fyrir liggi ótvírætt samþykki eiganda eða vörsluhafa.

Nú vill eigandi eða vörsluhafi munar, sem hald er lagt á, ekki hlíta þeirri ákvörðun og getur hann þá borið ágreinings-

efnið undir dómara. Krafa um að aflétta haldi frestar því þó ekki.

70. gr. Hald má leggja á bréf eða aðrar sendingar, sem eru í vörsl-

um póst- eða flutningafyrirtækis, svo og á símskeyti, símbréf, tölvubréf eða aðrar sendingar, sem eru í vörslum fjarskipta- fyrirtækis, enda sé það gert vegna rannsóknar út af broti sem varðað getur fangelsisrefsingu að lögum. Ef sendandi og við- takandi hafa ekki verið staddir við haldlagningu skal hún til- kynnt þeim svo fljótt sem verða má, þó þannig að það skaði ekki frekari rannsókn málsins. Rannsókn á efni bréfa, skeyta eða sendinga, sem hald er lagt á samkvæmt þessari máls- grein, má einungis fara fram samkvæmt úrskurði dómara.

Hald verður ekki lagt á prentað mál til undirbúnings upp- töku samkvæmt ákvæðum laga um prentrétt án undangengins dómsúrskurðar.

71. gr. Skrá skal þá muni sem hald er lagt á og varðveita þá með

tryggum hætti. Eftir kröfu eiganda eða þess sem lætur muni af hendi skal láta honum í té afrit af skránni.

72. gr. Aflétta skal haldi þegar þess er ekki lengur þörf og í

síðasta lagi þegar máli er endanlega lokið nema um sé að ræða:

a. muni sem gerðir hafa verið upptækir með dómi, b. muni sem aflað hefur verið með refsiverðum hætti og

afhentir hafa verið þeim sem tilkall eiga til þeirra, c. muni sem lagðir hafa verið fram sem sönnunargögn í

máli nema sá sem afhendingar krefst þurfi á gagni að halda til að ná rétti sínum eða afstýra réttindamissi.

Þegar haldi verður aflétt skv. 1. mgr. skal lögregla hlutast til um að skila munum til þess sem rétt á til þeirra.

X. kafli. Leit og líkamsrannsókn. 73. gr. Í þágu rannsóknar er heimilt án dómsúrskurðar að loka

húsum eða geymslustöðum, einstökum herbergjum eða hirsl- um, afgirða ákveðna staði eða svæði og varna mönnum för um þá eða þau, gefa út bann við því að farið sé með muni af ákveðnum stöðum eða svæðum og grípa til sambærilegra ráðstafana til þess að ekki verði hróflað við vettvangi brots og öðrum ummerkjum sem komið geta að notum við rann- sóknina.

74. gr. Heimilt er að leita í húsum sakbornings, geymslustöðum,

hirslum, skipum, loftförum, bifreiðum eða öðrum farartækj- um hans í því skyni að handtaka hann, rannsaka andlag brots og önnur ummerki eða hafa uppi á munum sem hald skal leggja á.

Leita má í húsum, geymslustöðum, hirslum eða farar- tækjum annars manns en sakbornings þegar brot hefur verið framið þar eða sakborningur handtekinn þar. Einnig ef rök- studdur grunur leikur á að sakborningur haldi sig þar eða þar sé að finna muni sem hald skal leggja á.

Skilyrði fyrir húsleit er að rökstuddur grunur leiki á að framið hafi verið brot sem sætt getur ákæru og að sakborn- ingur hafi verið þar að verki, enda séu augljósir rannsókn- arhagsmunir í húfi. Það er enn fremur skilyrði fyrir húsleit skv. 2. mgr. að rannsókn beinist að broti sem varðað getur fangelsisrefsingu að lögum.

75. gr. Leit skv. 74. gr. skal ákveðin með úrskurði dómara nema

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 13

fyrir liggi ótvírætt samþykki eiganda eða umráðamanns, sbr. þó 2. og 3. mgr.

Leit er þó heimil án dómsúrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi sakarspjöllum. Enn fremur ef leitað er að manni sem handtaka skal og honum er veitt eftirför eða hætta er á að hann komi sér undan ef beðið er úrskurðar.

Leit er heimil án dómsúrskurðar á víðavangi og í húsa- kynnum eða farartækjum, sem eru opin almenningi eða hver og einn getur átölulaust gengið um, þótt ekki sé fullnægt skil- yrðum 74. gr.

Nú vill sá sem hagsmuna á að gæta ekki hlíta ákvörðun lögreglu um húsleit skv. 2. eða 3. mgr. og skal honum þá bent á að hann geti borið ágreiningsefnið undir dómara. Það frestar þó ekki húsleitinni.

76. gr. Leita má á sakborningi ef nauðsynlegt þykir til að taka

af honum muni sem hald skal leggja á, enda leiki rökstuddur grunur á að hann hafi framið brot sem varðað getur fangelsis- refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum eða tveggja ára fangelsi samkvæmt öðrum lögum. Enn fremur má með sama skilorði leita á öðrum en sakborningi, enda leiki rök- studdur grunur á að hann hafi á sér muni sem hald skal leggja á.

Nú er talið að sakborningur feli innvortis muni eða efni sem hald skal leggja á og er þá heimilt að framkvæma leit, enda leiki rökstuddur grunur á að hann hafi framið brot sem varðað getur sex ára fangelsi að lögum. Enn fremur verður að liggja fyrir álit læknis um að óhætt sé að grípa til leitar sam- kvæmt þessari málsgrein með tilliti til heilsu sakborningsins.

Taka má fingraför af sakborningi og ljósmyndir af hon- um í þágu rannsóknar, svo og taka úr honum öndunarsýni í sama skyni. Samanburðarfingraför má taka af öllum þeim sem vegna umgengni sinnar um vettvang brots gætu átt þar fingraför. Sú heimild gildir jafnt þótt refsingu verði ekki við komið að lögum.

77. gr. Heimilt er að taka blóð- og þvagsýni og önnur lífsýni úr

sakborningi og rannsaka þau, svo og að framkvæma á honum aðra þá líkamsrannsókn í þágu rannsóknar sem gerð verð- ur honum að meinalausu, enda leiki rökstuddur grunur á að hann hafi framið brot sem varðað getur fangelsisrefsingu að lögum. Enn fremur má taka lífsýni úr öðrum en sakborningi og rannsaka þau, enda varði brot að lögum tveggja ára fang- elsi og fyrir liggi álit læknis um að óhætt sé að grípa til slíkrar rannsóknar með tilliti til heilsu þess sem í hlut á.

Ef vafi leikur á hvort sakborningur sé sakhæfur eða refs- ing geti borið árangur vegna andlegs ástands hans er rétt að láta hann sæta sérstakri geðrannsókn til þess að leiða þessi at- riði í ljós. Skilyrði fyrir geðrannsókn er að rökstuddur grun- ur leiki á að sakborningur hafi framið brot sem varðað getur fangelsisrefsingu að lögum.

78. gr. Líkamsleit skv. 1. eða 2. mgr. 76. gr. skal ákveðin með úr-

skurði dómara nema fyrir liggi ótvírætt samþykki þess sem í hlut á. Þó er líkamsleit skv. 1. mgr. 76. gr. heimil án dóms- úrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi sakar- spjöllum.

Líkamsrannsókn eða geðrannsókn skv. 77. gr. skal ákveð- in með úrskurði dómara nema fyrir liggi ótvírætt samþykki þess sem í hlut á.

79. gr. Lögregla stýrir húsleit og framkvæmir líkamsleit sam-

kvæmt ákvæðum þessa kafla. Líkamsleit skal gerð af lög- reglumanni sem er sama kyns og sá sem leitað er á. Leit skv. 2. mgr. 76. gr. og [líkamsrannsókn, einnig]1) geðrannsókn, skal framkvæmd af lækni eða öðrum sem hefur til þess til- skilda menntun.

Eiganda eða umráðamanni húsakynna eða farartækis, þar sem leit fer fram, skal kynnt heimild til húsleitar og veittur kostur á að vera viðstaddur hana ef unnt er. Sé hann fjarri skulu til kvaddir heimilismenn hans eða starfsmenn sem þar eru staddir. Hverjum þeim sem hindrar eða truflar leitina má víkja brott af leitarstað. Ef enginn er viðstaddur húsleit af hálfu eiganda eða umráðamanns skal lögregla tilkynna hon- um um leitina án ástæðulauss dráttar.

Við leit og líkamsrannsókn skal gæta þeirrar varfærni og hlífðar sem samræmist markmiði hennar. Ekki skal gera hús- leit að næturþeli nema brýnir rannsóknarhagsmunir séu í húfi.

1) L. 52/2010, 4. gr.

XI. kafli. Símahlustun og önnur sambærileg úrræði. 80. gr. Með þeim skilyrðum sem greind eru í 1. mgr. 83. gr. og

1. mgr. 84. gr. er heimilt í þágu rannsóknar að leggja fyrir fjarskiptafyrirtæki að veita upplýsingar um símtöl eða önn- ur fjarskipti við tiltekinn síma, tölvu eða annars konar fjar- skiptatæki.

81. gr. Með þeim skilyrðum sem greind eru í 83. gr. og 1. mgr.

84. gr. er heimilt í þágu rannsóknar að leggja fyrir fjarskipta- fyrirtæki að leyfa að hlustað sé á eða tekin séu upp símtöl eða önnur fjarskipti við tiltekinn síma, tölvu eða annars konar fjarskiptatæki ellegar við síma, tölvu eða annars konar fjar- skiptatæki í eigu eða umráðum tilgreinds manns. Með sömu skilyrðum er heimilt að leyfa lögreglu að fylgjast með eða taka upp fjarskipti með þar til gerðum búnaði.

82. gr. Með þeim skilyrðum sem greind eru í 83. gr. og 1. mgr.

84. gr. er heimilt í þágu rannsóknar: a. að taka upp samtöl eða nema annars konar hljóð eða

merki með því að nota til þess sérstaka hljóðupptökutækni eða sambærilega tækni án þess að þeir sem í hlut eiga viti af því,

b. að taka myndir af fólki, hvort sem er ljósmyndir eða kvikmyndir án þess að þeir sem í hlut eiga viti af því,

c. að koma fyrir búnaði á eða inni í bifreið eða öðru farar- tæki, í varningi eða á manni til að veita honum eftirför eða í öðrum lögmætum tilgangi, t.d. í veski, fatnaði eða handtösku hans.

Heimilt er að taka upp hljóð, taka myndir af fólki og fylgj- ast með því í þágu rannsóknar á almannafæri eða á stöðum sem almenningur á aðgang að án þess að skilyrðum 83. gr. og 1. mgr. 84. gr. sé fullnægt.

83. gr. Skilyrði fyrir aðgerðum skv. 80.–82. gr. er að ástæða sé til

að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þeim hætti.

[Auk þess sem segir í 1. mgr. verða þau skilyrði að vera fyrir hendi svo að gripið verði til aðgerða skv. 81. gr. og 1. mgr. 82. gr. að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum sex ára fangelsi og að ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess. Með sama skilorði verður grip- ið til þessara aðgerða ef rannsókn beinist að broti á 109. gr.,

14 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

175. gr. a, 206. gr., 210. gr. a, 210. gr. b, 226. gr., 1. mgr. 232. gr., 233. gr. og 264. gr. a almennra hegningarlaga.]1)

1) L. 103/2016, 1. gr.

84. gr. Til þeirra aðgerða sem taldar eru upp í 80.–82. gr. þarf

úrskurð dómara. Þó ber að veita upplýsingar skv. 80. gr. án dómsúrskurðar ef fyrir liggur ótvírætt samþykki umráða- manns og eiginlegs notanda síma, tölvu eða annars konar fjarskiptatækis.

[Þegar dómara hefur borist krafa um aðgerð og hann fall- ist á að hún hljóti meðferð fyrir dómi án þess að sá sem hún beinist að verði kvaddur á dómþing, sbr. 1. mgr. 103. gr. og 1. mgr. 104. gr., skipar hann lögmann til að gæta hags- muna þess sem aðgerð beinist að. Áður en skipunin tekur gildi skal lögmaðurinn undirrita drengskaparheit um að hann muni gæta þagmælsku um allt það sem hann kemst að við rækslu starfans, þar á meðal gagnvart þeim sem hann gæt- ir hagsmuna fyrir. Í samræmi við hlutverk sitt á hann rétt á aðgangi að þeim gögnum sem fylgja kröfu og til að tjá sig skv. 1. mgr. 105. gr. eftir að hafa kynnt sér þau. Ákvæði 2., 4. og 5. mgr. 33. gr., 2. mgr. 34. gr. og 38. gr. gilda um skipun og hæfi manns til þessa starfa, svo og afturköllun á skipun hans og þóknun fyrir starfann, eftir því sem við á. Ef krafa um aðgerð er tekin til greina getur lögmaðurinn kært úrskurð dómara til æðra dóms eftir því sem kveðið er á um í 193. gr.]1)

Í úrskurði skal m.a. taka fram hvaða síma eða annað fjar- skiptatæki er um að ræða eða hver eigandi eða umráðamaður fjarskiptatækis er, sbr. 80. og 81. gr., ellegar hvar og hvaða aðferð skuli viðhöfð til að taka upp hljóð, taka myndir, fylgj- ast með fólki eða koma fyrir eftirfararbúnaði, sbr. 82. gr.

Í úrskurði skal heimild til aðgerðar markaður ákveðinn tími sem ekki má vera lengri en fjórar vikur hverju sinni.

Starfsmönnum fjarskiptafyrirtækja er skylt að veita lög- reglu aðstoð við framkvæmd þeirra aðgerða sem taldar eru upp í 80. og 81. gr. eftir því sem þörf krefur.

1) L. 103/2016, 2. gr.

85. gr. [Upptökum af símtölum, hljóðupptökum, myndum eða

öðrum upplýsingum, sem aflað er á þann hátt er greinir í 80.– 82. gr., skal eyða jafnskjótt og þeirra er ekki lengur þörf. Sé mál höfðað á grundvelli rannsóknar er þó óheimilt að eyða framangreindum gögnum fyrr en endanlegur dómur hefur verið kveðinn upp í málinu. Sama gildir um afrit eða endur- rit af þessum upplýsingum. Ef gögnin hafa að geyma samtöl eða önnur samskipti sakbornings við verjanda sinn, svo og upplýsingar sem 2. mgr. 119. gr. tekur til, skal samt sem áður eyða þeim þegar í stað.

Þegar aðgerð skv. 80.–82. gr. er lokið skal lögreglustjóri sjá um að þeim sem aðgerð beindist að, svo og eiganda eða umráðamanni fjarskiptatækis, húsnæðis eða farartækis, sé til- kynnt um aðgerðina svo fljótt sem verða má, enda sé tryggt að það skaði ekki frekari rannsókn málsins. Þó skal aldrei fresta tilkynningu um aðgerð lengur en í tólf mánuði frá því að henni lauk.

Ríkissaksóknari hefur eftirlit með því að gögnum sé eytt og að tilkynnt sé um lok aðgerðar skv. 1. og 2. mgr. Setur hann reglur um hvernig eftirlitinu skuli háttað og skal þar m.a. koma fram hvernig tryggt verði að unnt sé að upplýsa eftir á hver eða hverjir hafi haft aðgang að upplýsingum sem aflað hefur verið með aðgerð skv. 80.–82. gr. Ríkissaksókn-

ari skal árlega gefa út skýrslu um framkvæmd eftirlitsins og beitingu aðgerða skv. 80.–82. gr.]1)

1) L. 103/2016, 3. gr.

XII. kafli. Ýmsar rannsóknaraðgerðir. 86. gr. Í þágu rannsóknar leitar lögregla til sérfróðra manna þeg-

ar þörf er á sérfræðilegri skoðun eða rannsókn til að upp- lýsa mál, svo sem læknisskoðun, efnafræðilegri rannsókn, rithandarrannsókn eða bókhaldsrannsókn. Ef ástæða er til getur lögregla eða ákærandi farið fram á að dómkvaddur verði matsmaður skv. 128. gr.

[Þóknun fyrir rannsókn eða skoðun skv. 1. mgr. skal ákveðin af héraðssaksóknara, lögreglustjóra eða löglærðum starfsmanni þeirra.]1)

1) L. 47/2015, 12. gr.

87. gr. Réttarlæknisfræðileg líkskoðun skal fara fram þegar lög-

regla telur það nauðsynlegt í þágu rannsóknar. Einnig skal framkvæma réttarkrufningu, ef nauðsyn þykir, og skal leita úrskurðar dómara um krufningu nema nánasti venslamað- ur eða nánustu venslamenn hins látna samþykki að hún fari fram.

88. gr. Til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku

ávinnings, sem aflað hefur verið með broti, getur lögregla krafist kyrrsetningar hjá sakborningi ef hætta þykir á að eign- um verði ella skotið undan eða þær glatist eða rýrni að mun.

Um framkvæmd og gildi kyrrsetningar samkvæmt þess- ari grein fer sem um kyrrsetningu fjármuna almennt, með þeim undantekningum að tryggingu þarf ekki að setja, mál þarf ekki að höfða til staðfestingar kyrrsetningu og gjöld skal ekki greiða fyrir ráðstafanirnar.

Kyrrsetning samkvæmt þessari grein fellur niður ef ákærði hefur verið sýknaður með endanlegum dómi af greiðslu sektar og sakarkostnaðar eða upptaka ávinnings hef- ur ekki verið dæmd. Sama á við ef saksókn hefur verið felld niður eða rannsókn leiðir ekki til saksóknar. Sakborningur á þá heimtingu á að felldar verði úr gildi þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið til tryggingar kyrrsetningunni. Kyrrsetning fellur á sama hátt niður ef sakborningur innir af hendi þær greiðslur sem kyrrsetning á að tryggja.

[88. gr. a. Ef ekki liggur fyrir samþykki eiganda er heimilt að fengn-

um úrskurði dómara að selja muni eða eignir sem lagt hef- ur verið hald á eða kyrrsettar í því skyni að tryggja upptöku þeirra eða greiðslu sektar, sakarkostnaðar og annarra krafna ef hætta er á að verðmæti þeirra rýrni á meðan á haldi eða kyrrsetningu stendur. Þegar um er að ræða kyrrsetta eign má í úrskurði jafnframt kveða á um skyldu eiganda eða vörslu- hafa til að láta umráð hennar af hendi.

Fjármunir sem fást við sölu muna eða eigna, sbr. 1. mgr., eða trygging sem lögð hefur verið fram í þeirra stað, teljast haldlagðir án frekari aðgerða.

Ráðherra setur í reglugerð1) nánari ákvæði um sölu muna og eigna sem hafa verið haldlagðar, kyrrsettar og gerðar upp- tækar, svo og meðhöndlun og vörslur þeirra að öðru leyti.]2)

1) Rg. 880/2019. 2) L. 118/2019, 1. gr.

89. gr. Að tillögu ríkissaksóknara er [ráðherra]1) heimilt að setja

reglur2) um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rann- sókn sakamála sem ekki er kveðið á um í lögum þessum, svo

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 15

sem um notkun tálbeita, uppljóstrara og flugumanna, afhend- ingu undir eftirliti og skyggingu. Í reglunum skal m.a. koma fram hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til þess að gripið verði til tiltekinnar aðferðar eða aðgerðar, hverjir séu bærir til að taka ákvörðun um hana og hvernig staðið skuli að fram- kvæmd hennar.

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) Rg. 516/2011, sbr. augl. 129/2013 og rg. 876/2020.

XIII. kafli. Handtaka. 90. gr. Lögreglu er rétt að handtaka mann ef rökstuddur grunur

leikur á að hann hafi framið brot sem sætt getur ákæru, enda sé handtaka nauðsynleg til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot, til að tryggja návist hans eða öryggi hans eða annarra ellegar til að koma í veg fyrir að hann spilli sönnunargögn- um.

Nú verður uppþot eða fjölmennar óeirðir brjótast út sem hafa haft eða gætu haft í för með sér líkamsmeiðingar eða stórfelld eignaspjöll og ekki verður með vissu bent á hinn seka eða hina seku og er þá lögreglu heimilt að handtaka hvern þann sem nærstaddur er og ástæða er til að gruna um refsiverða háttsemi.

Auk þess sem kveðið er á um í öðrum lögum er lögreglu enn fremur heimilt að handtaka mann:

a. ef hann neitar að segja til nafns og deili á sér að öðru leyti, enda sé það nauðsynlegt í þágu rannsóknar,

b. ef hann hefur verið kvaddur til að gefa skýrslu hjá lög- reglu sem sakborningur en ekki sinnt kvaðningu,

c. ef hann hefur ekki að forfallalausu sinnt fyrirkalli eða mætt til að gefa skýrslu í sakamáli,

d. ef hann hefur leyfislaust horfið úr gæsluvarðhaldi eða rofið bann skv. 1. mgr. 100. gr.

91. gr. Hver sá sem stendur mann að broti sem sætt getur ákæru

og varðað getur fangelsi hefur heimild til að handtaka hann. Í því tilviki skal koma hinum handtekna í hendur lögreglu tafarlaust ásamt upplýsingum um ástæðu handtökunnar og hvenær hún fór fram.

92. gr. Dómari getur fyrirskipað handtöku eftir kröfu héraðssak-

sóknara eða lögreglu ef skilyrði 1. eða 3. mgr. 90. gr. eru fyr- ir hendi. Slík handtökuskipun skal vera skrifleg og tilgreina deili á þeim sem handtaka skal og ástæður handtöku.

Handtökuskipun dómara má birta opinberlega og skora á hvern sem er að framkvæma hana ef ókunnugt er um dvalar- stað þess sem handtaka skal og brot getur varðað fangelsi.

93. gr. Við handtöku skal upplýsa þann sem handtekinn er um

ástæður hennar. Við handtöku skal forðast að valda hinum handtekna tjóni

eða baka honum meiri óþægindi en nauðsyn ber til. Þess ber jafnframt að gæta eftir föngum að hann geti ekki unnið tjón á sjálfum sér eða öðrum.

Leita má á handteknum manni og taka af honum muni sem hann hefur á sér. Skila skal mununum aftur þegar hand- töku lýkur nema hald hafi verið lagt á þá skv. 1. mgr. 68. gr.

[Ráðherra]1) setur í reglugerð2) ákvæði um vistun á hand- teknum mönnum, þar á meðal hvaða atriði skuli skrá sem hana varða.

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) Rg. 651/2009, sbr. 652/2020.

94. gr. Mann sem handtekinn hefur verið skal leiða fyrir dóm

innan 24 klukkustunda frá því að hann var sviptur frelsi, enda

sé hann ekki látinn laus ellegar færður aftur í gæslu sem hann á að sæta. Ef veður, ófærð eða aðrar þvílíkar ástæður koma í veg fyrir að handtekinn maður verði leiddur fyrir dóm sam- kvæmt framansögðu skal það gert jafnskjótt og kostur er. Sama á við ef ekki er unnt að taka skýrslu af handteknum manni fljótlega eftir að hann hefur verið sviptur frelsi vegna þess að hann er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Þó má aldrei draga lengur en í 30 klukkustundir að leiða hann fyrir dómara af þeirri ástæðu.

XIV. kafli. Gæsluvarðhald og aðrar sambærilegar ráð- stafanir.

95. gr. Sakborningur verður því aðeins úrskurðaður í gæsluvarð-

hald að fram sé kominn rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, enda hafi hann náð 15 ára aldri. Auk þess verður að vera fyrir hendi eitthvert eftirtalinna skilyrða:

a. að ætla megi að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni,

b. að ætla megi að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan mál- sókn eða fullnustu refsingar,

c. að ætla megi að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið eða rökstuddur grunur leiki á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dómi,

d. að telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings ellegar hann sjálfan fyrir árás- um eða áhrifum annarra manna.

Einnig má úrskurða sakborning í gæsluvarðhald þótt skil- yrði a–d-liðar 1. mgr. séu ekki fyrir hendi ef sterkur grunur leikur á að hann hafi framið afbrot sem að lögum getur varð- að 10 ára fangelsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.

Ekki er heimilt að úrskurða sakborning í gæsluvarðhald ef sýnt þykir að brot, sem hann er sakaður um, muni aðeins hafa í för með sér sektir eða skilorðsbundna fangelsisrefsingu miðað við aðstæður. Enn fremur skal eftir föngum gæta þess að sakborningur verði ekki látinn sæta gæsluvarðhaldi lengur en sýnt þykir að fangelsisrefsing verði dæmd.

Ekki er heimilt að úrskurða sakborning til að sæta gæslu- varðhaldi lengur en í tólf vikur nema mál hafi verið höfðað gegn honum eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess, sbr. a-lið 1. mgr.

Ekki má úrskurða sakborning yngri en 18 ára í gæsluvarð- hald nema telja megi víst að önnur úrræði sem vísað er til í 1. mgr. 100. gr. eða mælt er fyrir um í barnaverndarlögum geti ekki komið í stað þess.

96. gr. Alþingismann má ekki úrskurða í gæsluvarðhald meðan

Alþingi er að störfum án samþykkis þingsins nema hann sé staðinn að glæp.

97. gr. Gæsluvarðhald skal ákveðið með úrskurði dómara, þar

sem því skal markaður ákveðinn tími sem má ekki vera lengri en fjórar vikur í senn, enda setji ákvæði 4. mgr. 95. gr. því ekki enn þrengri tímamörk. Gæsluvarðhald verður ekki fram- lengt nema til komi nýr dómsúrskurður. [Því má þó marka lengri tíma en fjórar vikur meðan á áfrýjunarfresti skv. 199. gr. stendur eða fresti til að leita leyfis Hæstaréttar til að áfrýja

16 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

dómi Landsréttar skv. 217. gr., svo og meðan mál er til með- ferðar fyrir æðri dómi uns endanlegur dómur gengur.]1)

Gæsluvarðhald skal ekki vara lengur en þörf krefur. Skal sá sem krafist hefur gæsluvarðhalds láta sakborning lausan jafnskjótt og ástæður til gæslu eru ekki lengur fyrir hendi.

[Gæsluvarðhaldi lýkur með endanlegum dómi eða ef ákærði er sýknaður eða honum dæmd refsing sem er væg- ari en óskilorðsbundið fangelsi.]1)

1) L. 76/2019, 23. gr.

98. gr. Dómari skal að jafnaði leggja úrskurð á kröfu um gæslu-

varðhald svo fljótt sem verða má. Ávallt er skylt að kveða upp úrskurð innan 24 klukkustunda frá þeim tíma að sakborning- ur, sem handtekinn hefur verið, kom fyrir dóm, sbr. 94. gr.

Nú er þess krafist að sakborningur skuli sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr. og á dómari þá að taka afstöðu til þeirrar kröfu í úrskurði. Ekki má úrskurða sakborning til að sæta einangrun nema hún sé nauðsynleg af þeim ástæðum sem greindar eru í a- eða d-lið 1. mgr. 95. gr. Hún má ekki standa samfleytt lengur en í fjórar vikur nema sá sem henni sætir sé sakaður um brot sem varðað getur að lögum 10 ára fangelsi. Enn fremur tekur dómari í úrskurði afstöðu til kröfu um hver tilhögun gæsluvarðhaldsvistar skuli vera að öðru leyti, sbr. 3. mgr. 99. gr.

99. gr. Gæsluvarðhaldsfangar skulu sæta þeirri meðferð sem

nauðsynleg er til þess að gæslan komi að gagni og góð regla haldist í henni en varast skal að beita þá hörku eða harðýðgi. Um gæsluna gilda annars þessar reglur:

a. gæsluföngum er heimilt að útvega sér sjálfir og taka við fæði og öðrum persónulegum nauðsynjum, þar á meðal fatnaði,

b. gæslufangar skulu aðeins látnir vera í einrúmi sam- kvæmt úrskurði dómara en þó skulu þeir ekki gegn vilja sín- um hafðir með öðrum föngum,

c. gæslufangar eiga rétt á heimsóknum. Þó getur sá sem rannsókn stýrir bannað heimsóknir ef nauðsyn ber til í þágu hennar en skylt er að verða við óskum gæslufanga um að hafa samband við verjanda og ræða við hann einslega, sbr. 1. mgr. 36. gr., og rétt að verða við óskum hans um að hafa samband við lækni eða prest, ef þess er kostur,

d. gæslufangar mega nota síma eða önnur fjarskiptatæki og senda og taka við bréfum og öðrum skjölum. Þó getur sá sem rannsókn stýrir bannað notkun síma eða annarra fjar- skiptatækja og látið athuga efni bréfa eða annarra skjala og kyrrsett þau ef nauðsyn ber til í þágu hennar en gera skal sendanda viðvart um kyrrsetningu, ef því er að skipta,

e. gæslufangar mega lesa dagblöð og bækur, svo og fylgj- ast með hljóðvarpi og sjónvarpi. Þó getur sá sem rannsókn stýrir takmarkað aðgang gæslufanga að fjölmiðlum ef nauð- syn ber til í þágu rannsóknar,

f. gæsluföngum er, eftir því sem unnt er, heimilt að út- vega sér vinnu meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Þrátt fyrir ákvæði d-liðar 1. mgr. má gæsluvarðhaldsfangi taka við og senda bréf til dómstóla, [ráðherra],1) umboðs- manns Alþingis og verjanda síns án þess að efni þeirra sé athugað.

Að kröfu sakbornings, sem sætir gæsluvarðhaldi, má ákveða í dómsúrskurði að óheimilt sé að skerða réttindi þau sem honum eru áskilin sem gæsluvarðhaldsfanga í c–e-liðum 1. mgr.

[Ráðherra]1) skal setja nánari reglur um tilhögun gæslu- varðhaldsvistar í reglugerð, þar á meðal um nánari fram- kvæmd þeirra atriða sem í 1. og 2. mgr. getur.

Gæsluvarðhaldsfanga er heimilt að bera atriði sem varða gæsluvarðhaldsvist undir dómara skv. 102. gr.

1) L. 162/2010, 194. gr.

100. gr. Nú eru skilyrði gæsluvarðhalds skv. 1. eða 2. mgr. 95. gr.

fyrir hendi og getur dómari þá, í stað þess að úrskurða sak- borning í gæsluvarðhald, mælt fyrir um vistun hans á sjúkra- húsi eða viðeigandi stofnun, bannað honum brottför af land- inu ellegar lagt fyrir hann að halda sig á ákveðnum stað eða innan ákveðins svæðis. Sé þess krafist getur dómari sett það skilyrði fyrir ráðstöfun að sakborningur hafi á sér búnað svo að unnt sé að fylgjast með ferðum hans.

Dómari skal mæla fyrir um ráðstöfun skv. 1. mgr. í úr- skurði og skal hún ekki vara lengur en þörf krefur. Ber þeim sem krafist hefur gæsluvarðhalds eða ráðstöfunar að aflétta henni jafnskjótt og hennar er ekki lengur þörf. Ráðstöfun lýkur í síðasta lagi þegar héraðsdómur hefur verið kveðinn upp í málinu. [Eftir kröfu ákæranda getur héraðsdómari þó úrskurðað að hún skuli haldast meðan á áfrýjunarfresti skv. 199. gr. stendur, svo og meðan mál er til meðferðar fyrir æðri dómi uns endanlegur dómur er upp kveðinn.]1)

Lögregla getur lagt fyrir sakborning sem sætir farbanni eða annarri ráðstöfun skv. 1. mgr. að tilkynna henni um veru- stað sinn eða gefa sig fram við hana á ákveðnum tímum. Lögregla getur enn fremur lagt fyrir sakborning sem sætir farbanni að afhenda henni vegabréf sitt til varðveislu.

Sakborningi er heimilt að bera atriði sem varða fram- kvæmd farbanns og annarra ráðstafana skv. 1. mgr. undir dómara skv. 102. gr.

1) L. 49/2016, 50. gr.

101. gr. Nú eru skilyrði gæsluvarðhalds skv. b-lið 1. mgr. 95. gr.

fyrir hendi og getur dómari þá ákveðið að sakborningur haldi frelsi sínu gegn því að hann setji tryggingu. Skal trygging vera í formi reiðufjár, verðbréfa eða ábyrgðar, eftir nánari ákvörðun dómara.

Dómari skal mæla fyrir um tryggingu í úrskurði þar sem kveða skal á um fjárhæð hennar. Ákærandi eða lögregla ann- ast vörslur verðmæta, sem sett eru að tryggingu, og gerir nauðsynlegar ráðstafanir til verndar henni.

Tryggingarfé skal vera fyrirgert til ríkissjóðs ef sakborn- ingur rýfur skilyrði þau sem trygging er sett fyrir. Að öðrum kosti fellur tryggingin í síðasta lagi niður þegar máli er end- anlega lokið eða, ef ákærði hefur verið sakfelldur og dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi, þegar afplánun er hafin. Sama á við ef sakaður maður verður allt að einu settur í gæsluvarð- hald.

XV. kafli. Meðferð rannsóknarmála fyrir dómi. 102. gr. Eftir ákvæðum þessa kafla má leggja fyrir héraðsdóm

kröfu um aðgerð á rannsóknarstigi sem atbeina dómara þarf til eftir öðrum ákvæðum laga þessara, þar á meðal kröfu um að skýrsla verði tekin af sakborningi, brotaþola eða öðru vitni fyrir dómi skv. 59. gr.

Auk þess sem í 1. mgr. segir má leggja fyrir héraðsdóm ágreining um lögmæti rannsóknarathafna lögreglu eða ákær- anda. Enn fremur ágreining um réttindi sakbornings, verj- anda hans eða lögmanns, þar á meðal kröfu þeirra um til-

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 17

teknar rannsóknaraðgerðir, ellegar réttindi brotaþola, réttar- gæslumanns hans eða lögmanns.

103. gr. Þegar [ákærandi eða lögreglustjóri]1) telur þörf á atbeina

dómara til aðgerðar skv. 1. mgr. 102. gr. leggur hann skriflega og rökstudda kröfu um hana fyrir héraðsdóm. Eftir því sem við á skal koma þar skýrlega fram hver krafan er, að hverjum hún beinist og á hvaða grunni hún er reist. Kröfunni skulu fylgja þau gögn sem hún styðst við. Þess skal jafnframt getið hvort sá sem hana gerir krefjist þess að hún sæti meðferð fyr- ir dómi án þess að sakborningur eða annar sá sem hún beinist að verði kvaddur á dómþing, sbr. 1. mgr. 104. gr.

Þegar [ákærandi, lögreglustjóri],1) sakborningur, verjandi eða lögmaður hans ellegar annar sá sem hagsmuna hefur að gæta ber undir héraðsdóm ágreiningsatriði í tengslum við rannsókn máls skv. 2. mgr. 102. gr. skal það gert á sama hátt og áður greinir með skriflegri og rökstuddri kröfu. Geri [ákærandi eða lögreglustjóri]1) slíka kröfu eiga gögn um ágreiningsefnið að fylgja henni en ella skal dómari krefja [ákæranda eða lögreglustjóra]1) sem hlut á að máli um slík gögn.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. er þeim sem beinir kröfu til héraðsdóms heimilt að breyta henni munnlega á dómþingi, enda hafi tilefni ekki gefist til þess fyrr og fyrirliggjandi gögn og upplýsingar nægi annars að mati dómara til þess að af- stöðu megi taka til kröfunnar í breyttri mynd.

1) L. 47/2015, 13. gr.

104. gr. Nú er krafa gerð um rannsóknaraðgerð sem 1. mgr. 102.

gr. tekur til og þess er þar beiðst að hún hljóti meðferð fyrir dómi án þess að sakborningur eða annar sá sem hún beinist að verði kvaddur á dómþing og skal þá dómari taka ákvörð- un um hvort orðið skuli við þeirri beiðni. Það skal að jafnaði ekki gert nema dómari telji það nægilega rökstutt að vitn- eskja um aðgerðina fyrir fram hjá sakborningi eða þeim sem hún á að beinast að geti spillt fyrir rannsókn. Fallist dómari á að taka kröfuna fyrir á dómþingi án þess að kveðja þangað sakborning eða þann sem hún beinist að tilkynnir hann þeim sem kröfuna gerir um stað og stund til þinghalds sem háð skal svo fljótt sem verða má.

Verði ekki farið með kröfu skv. 102. gr. á þann hátt sem um ræðir í 1. mgr. þessarar greinar ákveður dómari stað og stund til þinghalds og tilkynnir það þeim sem kröfuna gerði, svo og eftir atvikum [lögreglustjóra, ákæranda],1) sakborn- ingi eða verjanda ellegar þeim öðrum sem kröfu er beint að, nema dómari telji slíka annmarka á kröfunni að vísa beri henni þegar frá dómi með úrskurði. Ef tilkynning um þing- hald er skrifleg skal henni að jafnaði fylgja afrit af kröfu sem þar á að taka fyrir. Heimilt er dómara að fela lögreglu eða ákæranda að koma á framfæri tilkynningu um þinghald.

Ef sá sem kröfu gerir mætir ekki í þinghaldi skal fella málið niður en úrskurða má sakborningi eða öðrum sem sótt hefur þinghaldið ómaksbætur úr hendi hans.

1) L. 47/2015, 14. gr.

105. gr. Þegar krafa er tekin fyrir á dómþingi gefur dómari þeim

sem hana hefur gert kost á að gera fyrst grein fyrir henni munnlega. Ef sakborningur eða sá sem kröfu er beint að hef- ur verið kvaddur fyrir dóm og sótt er þing af hans hálfu skulu honum kynnt fram komin gögn með þeim takmörkunum sem kann að leiða af 1. mgr. 37. gr. og síðan gefinn kostur á að tjá sig um kröfuna. Frestur skal að jafnaði ekki veittur í máli til

annars þinghalds nema sá sem kröfu gerir samþykki það eða dómari fallist á að það horfi honum ekki til réttarspjalla.

Sé þess krafist í þinghaldi skv. 1. mgr. að kröfu verði vísað frá dómi skal dómari taka afstöðu til þess eftir að hafa hlýtt á röksemdir aðila. Telji hann að ekki séu efni til að vísa kröf- unni frá dómi færir hann ákvörðun sína um það í þingbók en ella tekur hann kröfuna til greina með úrskurði.

106. gr. Nú lýtur krafa sem til meðferðar er fyrir dómi að því að

tekin verði skýrsla af sakborningi eða vitni og gætir dómari þá að því hvort fullnægt sé til þess ákvæðum 59. gr. Ef taka á skýrslu af sakborningi skal hann færður fyrir dóm af lögreglu hafi hann verið handtekinn eða sæti hann gæsluvarðhaldi, en ella gilda ákvæði 1. og 2. mgr. 120. gr. um boðun skýrslugjafa og eftir atvikum kvaðningu hans á dómþing, svo og 121. gr. um viðbrögð við því ef hann mætir ekki eða vitni fullnægir annars ekki vitnaskyldu sinni.

Við meðferð kröfu um gæsluvarðhald eða aðrar ráðstaf- anir skv. XIV. kafla er sakborningi skylt að mæta fyrir dóm og gefa þar skýrslu ef lögregla eða ákærandi telur þess þörf.

Eftir því sem ástæða er til getur aðili annars krafist þess að munnlegar skýrslur verði teknar fyrir dómi við meðferð máls samkvæmt þessum kafla. Dómari tekur afstöðu til slíkr- ar kröfu að gættu ákvæði 3. mgr. 110. gr.

Um skýrslutöku af sakborningi og vitnum fyrir dómi skal farið eftir ákvæðum XVII. og XVIII. kafla. Eftir því sem kostur er skal skýrsla skv. 1. mgr. tekin upp á myndband eða mynddisk.

107. gr. Ef krafa skv. 102. gr. lýtur að öðru en því að skýrsla verði

tekin munnlega á dómþingi tekur dómari afstöðu til henn- ar eftir að hafa hlýtt á röksemdir aðila fyrir henni. Skal það gert með úrskurði ef um málefni er að tefla sem lokið skal á þann hátt eftir öðrum ákvæðum laga þessara eða ágreiningur er um atriði sem kæra má úrlausn um til [Landsréttar].1) Að öðrum kosti lýkur dómari málinu með ákvörðun eða annarri ráðstöfun sem færð skal í þingbók.

1) L. 49/2016, 44. gr.

3. þáttur. Sönnun og sönnunargögn. XVI. kafli. Almennar reglur um sönnun.

108. gr. Sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja má

honum í óhag, hvílir á ákæruvaldinu. 109. gr. Dómari metur hverju sinni hvort nægileg sönnun, sem

ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sé fram kom- in um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þar á meðal hvaða sönnunargildi skýrslur ákærða hafi, vitnisburður, mats- og skoðunargerðir, skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn.

Dómari metur það enn fremur ef þörf krefur hvert sönn- unargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um það.

Ekki þarf að sanna það sem er alkunnugt á þeim stað og tíma sem dómur eða úrskurður gengur.

110. gr. Ákærandi aflar sönnunargagna en ákærði getur einnig afl-

að sönnunargagna telji hann ástæðu til þess. Eftir því sem dómari telur nauðsynlegt til að upplýsa mál

eða skýra það er honum rétt að beina því til ákæranda að afla gagna um tiltekin atriði þess.

18 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Ef dómari telur bersýnilegt að atriði, sem aðili vill sanna, skipti ekki máli eða að gagn sé tilgangslaust til sönnunar get- ur hann meinað aðila um sönnunarfærslu.

111. gr. Dómur skal reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram

við meðferð máls fyrir dómi. Dómara er heimilt að taka til greina sem sönnunargögn

skýrslur sem ákærði, brotaþoli eða önnur vitni hafa gefið fyr- ir dómi áður en mál var höfðað skv. 59. og 106. gr. Þó skulu skýrslugjafar koma á ný fyrir dóm við málsmeðferð ef þess er kostur og annar hvor málsaðili krefst eða dómari telur ann- ars ástæðu til. Ef um er að ræða brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og brotaþoli hefur ekki náð 15 ára aldri skal hann þó ekki koma fyrir dóm að nýju nema dómari telji sér- staka ástæðu til.

Nú hefur vitni ekki komið fyrir dóm og þess er ekki kost- ur við meðferð máls, en skýrsla hefur verið gefin hjá lög- reglu eða öðrum stjórnvöldum meðan málið var til rannsókn- ar, og metur dómari þá hvort slík skýrsla hafi sönnunargildi og hvert það sé.

112. gr. Öflun sönnunargagna skal að jafnaði fara fram fyrir þeim

dómara sem fer með málið og kveður upp dóm í því. Ef þessu verður ekki komið við nema með verulegum kostnaði eða óhagræði getur dómari ákveðið að gagnaöflun megi fara fram fyrir öðrum dómi samkvæmt ákvæðum XXI. kafla, enda leiði það ekki til óþarfra tafa á rekstri máls.

Nú er skýrsla tekin fyrir dómi af sakborningi, brotaþola eða vitni áður en mál er höfðað skv. 1. mgr. 59. gr. og skal það gert, ef því verður við komið, fyrir þeim dómara sem mun síðar fara með málið og kveða upp dóm í því ef til þess kemur, eftir atvikum sem dómsformaður.

XVII. kafli. Skýrslugjöf ákærða fyrir dómi. 113. gr. Ákærða er jafnan rétt og skylt að koma fyrir dóm til

skýrslugjafar eftir að mál hefur verið höfðað gegn honum. Sakborningi er enn fremur rétt og skylt að koma fyrir dóm til skýrslugjafar meðan á rannsókn stendur ef tilefni gefst, sbr. b-lið 1. mgr. 59. og 2. mgr. 106. gr.

Ákærða er óskylt að svara spurningum varðandi refsi- verða hegðun sem honum er gefin að sök. Hann getur ým- ist neitað að gefa skýrslu um sakarefnið eða neitað að svara einstökum spurningum þar að lútandi.

Nú mætir ákærði ekki til skýrslutöku án þess að um lög- mæt forföll sé að ræða og getur þá ákærandi lagt fyrir lög- reglu að sækja hann eða færa hann síðar fyrir dóm með valdi ef þörf krefur. Lögreglu er skylt að verða við slíkum fyrir- mælum ákæranda.

Sem ákærði eftir ákvæðum þessa kafla skoðast fyrirsvars- maður sem kemur fram fyrir hans hönd.

114. gr. Þegar ákærði kemur fyrir dóm lætur dómari hann fyrst

gera grein fyrir nafni sínu, kennitölu og heimili. Síðan gerir dómari honum grein fyrir því að honum sé óskylt að svara spurningum varðandi refsiverða hegðun sem honum er gefin að sök, sbr. 2. mgr. 113. gr., en kjósi hann að gera það beri honum að skýra satt og rétt frá. Að svo búnu býður dóm- ari ákærða að tjá sig sjálfstætt um málsatvik og gefur síðan ákæranda og svo verjanda kost á að leggja spurningar fyrir ákærða.

Á meðan ákærði gefur skýrslu skulu vitni í sama máli ekki

hlýða á framburðinn. Dómari getur enn fremur ákveðið að það sama gildi um aðra ákærðu ef ástæða þykir til.

Þegar ákærði gefur skýrslu fer að öðru leyti um fram- kvæmd skýrslugjafar eftir ákvæðum 2. og 3. mgr. 122. gr. eftir því sem við getur átt.

115. gr. Dómari metur sönnunargildi framburðar ákærða, þar á

meðal trúverðugleika hans, við úrlausn máls. Í því sambandi skal meðal annars hugað að ástandi og hegðun ákærða við skýrslugjöf og stöðugleika í frásögn hans. XVIII. kafli. Vitni.

116. gr. Hverjum manni, sem er orðinn 15 ára, lýtur íslenskri lög-

sögu og er ekki ákærði eða fyrirsvarsmaður hans, er skylt að koma fyrir dóm sem vitni til að svara munnlega spurning- um sem er beint til hans um málsatvik. Þeim sem veitt hefur ákæruvaldi eða lögreglu sérfræðilega aðstoð eða ráðgjöf áður en mál er höfðað er enn fremur skylt að koma fyrir dóm sem vitni til að svara munnlega spurningum sem beint er til hans um sérfræðileg atriði.

Dómari metur með hliðsjón af atvikum hverju sinni hvort yngri manni en getur í 1. mgr. verði gert skylt að gefa skýrslu sem vitni. Sama hátt hefur dómari á um menn sem eru and- lega vanheilir.

Ef vitni kemst ekki á þingstað vegna veikinda eða svip- aðra ástæðna má dómari ákveða að það gefi skýrslu á öðrum stað þar sem þess er kostur.

Nú er vitni statt fjarri þingstað eða það hefði annars sér- stakt óhagræði af því að koma fyrir dóm og getur þá dóm- ari ákveðið að skýrsla verði tekin af því á dómþingi gegnum síma eða annað fjarskiptatæki, enda verði skýrslutöku hagað þannig að allir sem eru staddir á dómþingi heyri orðaskipti við vitnið. Þessari heimild verður þó ekki beitt ef ætla má að úrslit máls geti ráðist af framburði vitnisins.

Dómari getur lagt fyrir vitni í kvaðningu skv. 2. mgr. 120. gr. að hafa með sér gögn til sýningar fyrir dómi eða að athuga bækur sínar, skjöl og aðra muni og gera útdrátt úr tilteknum atriðum í þeim til skýringar á málsatvikum. Þetta á þó ekki við ef gögnin eða munirnir hafa að geyma upplýsingar sem 2. mgr. 119. gr. tekur til.

117. gr. Eftirtaldir geta skorast undan því að gefa vitnaskýrslu að

öllu leyti eða einhverju: a. sá sem er eða hefur verið maki ákærða, b. skyldmenni ákærða í beinan legg, systkin hans og þeir

sem tengjast honum þannig vegna ættleiðingar, c. stjúpforeldri ákærða og stjúpbarn, d. tengdaforeldri ákærða og tengdabarn. Dómari getur leyst aðra sem eru eða hafa verið nákomnir

ákærða undan vitnaskyldu ef honum virðist samband þeirra mjög náið, svo sem ef um er að ræða fósturforeldri eða fósturbarn, sambúðarkonu eða sambúðarmann, unnustu eða unnusta.

Verjanda er óheimilt að bera vitni í máli skjólstæðings síns án leyfis hans.

Embættis- og sýslunarmönnum er óskylt að koma fyrir dóm til að vitna um atvik sem hafa gerst í embætti þeirra eða sýslan og má leiða nægilega í ljós með vottorði úr embættis- bók eða öðru opinberu skjali.

118. gr. Vitni er rétt að skorast undan því að svara spurningu ef

ætla má að í svari þess geti falist játning eða bending um að

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 19

það hafi framið refsiverðan verknað eða atriði sem valdi því siðferðislegum hnekki eða tilfinnanlegu fjárhagstjóni. Það sama á við ef ætla má að svar hefði sömu afleiðingar fyrir einhvern þann sem tengist vitni með þeim hætti sem segir í 1. eða 2. mgr. 117. gr.

Dómari getur undanþegið vitni frá því að upplýsa um leyndarmál varðandi viðskipti þess, uppgötvanir eða önnur slík verk ef hann telur hagsmuni vitnis af leyndinni verulega ríkari en hagsmuni af vættinu.

119. gr. Án leyfis hlutaðeigandi ráðherra er vitni óheimilt að svara

spurningum um leynilegar ráðagerðir, ályktanir eða samn- inga handhafa ríkisvalds um málefni sem varða öryggi, rétt- indi eða heill ríkisins eða skipta mjög miklu fyrir viðskipti eða fjárhag þjóðarinnar.

Vitni er óheimilt án leyfis þess sem í hlut á að svara spurn- ingum um:

a. hver sé höfundur eða heimildarmaður að riti, grein, frá- sögn eða tilkynningu sem hefur birst án þess að hann væri nafngreindur, ef vitnið ber ábyrgð að lögum á efni prentaðs rits eða öðru efni sem birtist opinberlega eða það hefur öðlast vitneskju um höfund eða heimildarmann í starfi hjá ábyrgð- armanni,

b. einkahagi manns sem því hefur verið trúað fyrir í starfi sem endurskoðandi, félagsráðgjafi, lögmaður, læknir, prest- ur, forstöðumaður trúfélags eða sálfræðingur ellegar í öðru starfi sem viðlíka trúnaðarskylda fylgir,

c. atriði sem það hefur komist að í opinberu starfi og á að fara leynt,

d. leyndarmál um viðskipti, uppgötvanir eða önnur slík verk sem það hefur komist að í starfi.

Nú telur dómari að vitnisburður geti ráðið úrslitum um niðurstöðu máls og getur hann þá þrátt fyrir fyrirmæli 1. og 2. mgr. ákveðið að vitni skuli svara spurningum um tiltek- in atriði, enda séu ríkari hagsmunir af því að spurningunum verði svarað en trúnaði haldið. Þetta á þó ekki við um það sem ákærði hefur trúað verjanda sínum, presti eða forstöðu- manni trúfélags fyrir um málsatvik.

Ef dómari telur óvíst hvort skilyrðum 3. mgr. sé fullnægt getur hann lagt fyrir vitni að tjá sér fyrst í trúnaði hvers efnis svar þess yrði.

120. gr. Ákærandi annast boðun vitnis á dómþing. Þó getur verj-

andi boðað vitni á dómþing kjósi hann það. Nú er vitni yngra en 18 ára og skal það þá boðað fyrir milligöngu lögráða- manns.

Ef ástæða er til boðar dómari vitni á dómþing með skrif- legri kvaðningu sem hann gefur út að eigin frumkvæði eða ósk annars hvors aðila. Í kvaðningu skal greint nafn og heim- ili vitnis, tilefni boðunar í aðalatriðum, nafn dómstóls, hvar og hvenær vitnaleiðslan fer fram og hverjar afleiðingar það geti haft að vitni mæti ekki eða sinni ekki skyldu sinni að öðru leyti. Ákærandi skal sjá um að kvaðning sé birt og skal það gert með sama hætti og birting ákæru skv. 156. gr.

Ef vitni er statt á dómþingi er því skylt að bera þegar vætti þótt það hafi ekki verið boðað í því skyni.

121. gr. Nú kemur vitni ekki fyrir dóm samkvæmt löglega birtri

kvaðningu án þess að um lögmæt forföll sé að ræða og get- ur þá ákærandi lagt fyrir lögreglu að sækja vitnið eða færa það síðar fyrir dóm. Lögreglu er skylt að verða við slíkum fyrirmælum ákæranda.

Ef vitni kemur fyrir dóm en fullnægir annars ekki vitna- skyldu sinni, þar á meðal fyrirmælum dómara skv. 5. mgr. 116. gr., getur dómari að kröfu aðila gert því sekt með úr- skurði.

Ef vitni kemur fyrir dóm en getur ekki fullnægt vitna- skyldu sinni vegna ástands síns, svo sem vegna ölvunar eða geðshræringar, getur dómari gert nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að það geti leyst skyldu sína af hendi síðar.

122. gr. Þegar vitni kemur fyrir dóm lætur dómari það fyrst gera

grein fyrir [nafni sínu og kennitölu],1) en prófar svo eftir þörf- um hvort því sé rétt eða skylt að bera vætti. [Dómari lætur lögreglumann þó aðeins gera grein fyrir lögreglunúmeri.]1)

Síðan brýnir dómari alvarlega fyrir vitni skyldu þess til að skýra satt og rétt frá og draga ekkert undan, og leiðir athygli þess að þeirri refsi- og siðferðisábyrgð sem er samfara vís- vitandi eða gáleysislega röngum framburði, svo og að þess kunni að verða krafist að það staðfesti framburð sinn með eiði eða drengskaparheiti.

Að svo búnu verða spurningar lagðar fyrir vitni. Dómara er rétt að láta ákæranda og verjanda um að spyrja vitnið og skal ákærandi að jafnaði leggja spurningar fyrir það fyrst, en síðan verjandi. Skal jafnframt gefa réttargæslumanni kost á að koma á framfæri við dómara spurningum sem hann óskar eftir að verði lagðar fyrir vitnið, sbr. 3. mgr. 46. gr. Dómara er rétt að umorða, laga og skýra spurningar áður en vitnið svarar og koma í veg fyrir að spurningar séu lagðar fyrir vitnið sem eru óákveðnar, tvíræðar, veiðandi, óþarflega móðgandi eða særandi, lagaðar til að villa um fyrir vitni eða sýnilega til- gangslausar. Dómari getur svipt þann sem brýtur gegn þessu rétti til að leggja spurningar fyrir vitni og tekið skýrslutöku í sínar hendur. Dómara er og rétt að krefja vitnið frekari skýr- inga á svari þannig að efni þess komi skýrt fram, svo og að leggja spurningar sjálfstætt fyrir vitnið eða að ósk ákærða ef því er að skipta.

Nú hefur vitni áður gefið skýrslu hjá lögreglu, þar á meðal skv. 1. eða 2. mgr. 60. gr., eða fyrir dómi í málinu og kynnir dómari þá slíka skýrslu og önnur sýnileg sönnunargögn ekki fyrir vitninu fyrr en honum þykir þess þörf til skýringar eða leiðréttingar skýrslu þess. Sama á við um skýrslu sem vitnið kann að hafa gefið hjá öðrum stjórnvöldum en lögreglu með- an málið var til rannsóknar.

Hvert vitni skal að jafnaði prófa sér án þess að önnur vitni hlýði á. Að kröfu aðila getur dómari þó ákveðið að vitnið verði samprófað við ákærða eða annað vitni.

Nú er dómþing háð fyrir opnum dyrum og spurningu til vitnis er þannig háttað að svar við henni varðar einkahagi þess eða annarra og getur þá dómari látið vitnið svara skrif- lega. Skal þá bókað um svarið og aðilum og vitninu gefinn kostur á að ganga úr skugga um að bókun sé rétt án þess að hún sé lesin upp.

Dómari leiðbeinir vitni um atriði sem lúta að skyldu og heimild þess til vitnisburðar. Ef vitnið telur sér óskylt að gefa skýrslu eða svara einstökum spurningum eða heldur fram heimildarskorti ber því að leiða líkur að staðreyndum sem á veltur í þeim efnum. Dómari getur leyft vitninu að leiða aðra fyrir dóm til skýrslugjafar í því skyni.

Við skýrslugjöf vitnis leitar dómari eftir þörfum vitneskju um atriði sem varða mat á trúverðugleika þess. Í þeim efnum skal dómari jafnan leitast við að ganga úr skugga um hvort skýrsla vitnisins sé reist á skynjun þess sjálfs eða sögusögn annarra. Þá skal dómari gera sér far um að leiða í ljós hvort

20 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

horf vitnisins til máls, ákærða og eftir atvikum brotaþola sé með einhverjum þeim hætti að það geti haft áhrif á sönnun- argildi framburðar þess.

Dómari getur samkvæmt kröfu ákæranda, ákærða eða vitnis ákveðið að vitni sem kemur fyrir dóm geri ekki í heyranda hljóði grein fyrir [nafni sínu og kennitölu],1) sbr. 1. mgr., eða segi á sér deili að öðru leyti ef dómari telur að lífi, heilbrigði eða frelsi vitnisins ellegar náinna vandamanna þess, sbr. 1. eða 2. mgr. 117. gr., yrði stefnt í hættu ef það væri gert uppskátt hvert það er. Þó skal dómari ekki fallast á kröfu um nafnleynd vitnis nema brýna nauðsyn beri til og ekki sé ástæða til að telja að hún geti spillt fyrir vörn ákærða svo að máli skipti. Í því tilviki skal dómara greint skriflega og í trúnaði frá nafni vitnis og öðrum atriðum, sem leynt skulu fara, en gögn með þeim upplýsingum skulu síðan varðveitt þannig að tryggt sé að aðrir fái ekki aðgang að þeim. Sé máli skotið til [æðri dóms]2) skulu þessar upplýsingar á sama hátt fylgja því.

1) L. 76/2019, 24. gr. 2) L. 49/2016, 51. gr.

123. gr. Dómari getur samkvæmt kröfu ákæranda eða vitnis

ákveðið að ákærða verði vikið úr þinghaldi meðan það gefur skýrslu ef dómari telur að nærvera ákærða geti orðið vitninu sérstaklega til íþyngingar og haft áhrif á framburð þess.

Nú er skýrsla tekin af vitni yngra en 15 ára og getur þá dómari kvatt til kunnáttumann sér til aðstoðar við skýrslu- töku. Ákærandi, ákærði og verjandi hans eiga ekki rétt á að vera viðstaddir í dómsal eða annars staðar þar sem dómþing er háð ef dómari telur að nærvera þeirra geti orðið vitninu sérstaklega til íþyngingar og haft áhrif á framburð þess. Á sama hátt getur dómari ákveðið að ákærði og málflytjendur skuli víkja úr þinghaldi ef skýrsla er tekin af vitni án þess að það þurfi að skýra frá nafni sínu í heyranda hljóði, sbr. 8. mgr. 122. gr.

Ef ákærða er óheimilt að vera viðstaddur skýrslutöku skv. 1. mgr. eða ákærða og málflytjendum skv. 2. mgr. skal dóm- ari sjá til þess að þeir geti fylgst með skýrslutöku um leið og hún fer fram. Jafnframt er honum rétt að leggja fyrir vitnið þær spurningar sem þeir óska. [Dómstólasýslan]1) setur nán- ari reglur2) um tilhögun skýrslutöku samkvæmt þessari grein.

1) L. 53/2017, 2. gr. 2) Rgl. 190/2009.

124. gr. Eftir kröfu aðila skal dómari láta vitni staðfesta fram-

burð sinn með eiði eða drengskaparheiti þegar það hefur lok- ið skýrslugjöf. Vitni verður þó ekki látið staðfesta framburð sinn ef:

a. það hefur ekki náð 15 ára aldri, b. það á við svo mikla andlega vanheilsu að stríða að það

beri ekki skyn á eða er ófært um að meta helgi eða þýðingu staðfestingar,

c. það er undir ákæru fyrir rangan framburð eða hefur ver- ið sakfellt fyrir slíkt brot,

d. það færist undan staðfestingu og ákvæði 117. gr. og 1. mgr. 118. gr. eiga við,

e. dómari telur það svo tengt aðila eða hafa slíka hags- muni af málsúrslitum að staðfesting sé óviðeigandi.

Áður en vitni staðfestir framburð sinn brýnir dómari fyrir því helgi og þýðingu staðfestingar, bæði fyrir úrslit máls og vitnið sjálft lagalega og siðferðislega.

Ef vitni lýsir því yfir að gefnu tilefni frá dómara að það samrýmist afstöðu þess í trúarefnum að vinna eið og að það trúi á guð fer staðfesting þannig fram að vitnið lyftir upp

hægri hendi og hefur þessi orð eftir dómara: Ég sver það og vitna til guðs míns að ég hef sagt það sem ég veit sannast og réttast og ekkert dregið undan.

Ef ekki eru skilyrði til eiðvinningar skv. 3. mgr. vinnur vitni heit og fer staðfesting þannig fram að vitnið lyftir upp hægri hendi og hefur þessi orð eftir dómara: Ég lýsi því yfir og legg við drengskap minn og heiður að ég hef sagt það sem ég veit sannast og réttast og ekkert dregið undan.

Eiður og heitvinning hafa sömu þýðingu að lögum. 125. gr. Ef ákærandi boðar vitni á dómþing eða það er kvatt þang-

að er honum skylt, sé þess óskað, að sjá því fyrir fram fyrir fé til greiðslu kostnaðar af ferð og dvöl á þingstað.

Ef vitni krefst þess að fullnægðum skyldum sínum ákveð- ur dómari því greiðslu vegna útlagðs kostnaðar af rækslu vitnaskyldu og þóknun fyrir atvinnumissi sem má telja skipta það máli miðað við efnahag þess og aðstæður. Ákærandi skal sjá um að vitni sé greiddur kostnaður og þóknun um sinn og skal inna greiðslu af hendi svo fljótt sem verða má.

126. gr. Dómari metur sönnunargildi vitnisburðar við úrlausn

máls. Í því sambandi skal meðal annars hugað að afstöðu vitnis til ákærða og eftir atvikum brotaþola, hagsmunum þess af málsúrslitum, þroska þess, áreiðanleika skynjunar þess á atvikum, minni, ástandi og hegðun þess við skýrslugjöf, ör- yggi þess og skýrleika í svörum og samræmi í frásögn.

XIX. kafli. Matsgerðir. 127. gr. Skoðunar- og matsgerðir, lýsingar á hlutum og aðrar rann-

sóknargerðir í því sambandi kallast hér einu nafni matsgerðir eða mat og athafnir sem lúta að þeim að meta.

Dómari leggur sjálfur mat á atriði sem krefjast almennrar þekkingar og menntunar eða lagaþekkingar.

Ef opinber starfsmaður er skipaður í eitt skipti fyrir öll til að meta tiltekin atriði getur aðili snúið sér beint til hans ef honum er skylt að framkvæma matið eða hann er fús til þess án dómkvaðningar, enda sé það í verkahring hans.

128. gr. Ef ekki verður farið svo að sem segir í 2. eða 3. mgr. 127.

gr. kveður dómari einn eða tvo matsmenn, ef honum þykir þörf á, til að framkvæma mat eftir skriflegri beiðni aðila. Í beiðni skal koma skýrlega fram hvað eigi að meta, hvar það er sem meta á og hvað aðili hyggst sanna með mati. Ákær- andi eða ákærði geta hvor um sig beiðst mats eftir að mál hefur verið höfðað. Enn fremur getur lögregla eða ákærandi beiðst mats á rannsóknarstigi.

Aðilar skulu kvaddir á dómþing þar sem matsbeiðni er tekin fyrir og skal dómari greina þeim frá því hvern hann hafi í hyggju að kveðja til matsstarfa.

Þann einn má dómkveðja til að framkvæma mat sem er orðinn 20 ára að aldri, er að öllu leyti óaðfinnanlegt vitni um það atriði sem á að meta og hefur nauðsynlega kunnáttu til að leysa starfann af hendi eða annars þá kunnáttu sem bestr- ar er kostur. Maður getur ekki skorast undan að verða við kvaðningu ef honum væri skylt og heimilt að bera vitni um matsatriði og breytir engu þótt nauðsyn beri til að hann fari í aðra þinghá en þar sem hann á heimili til að rækja starfann. Dómara er þó rétt að taka rökstudda undanfærslu til greina, enda sé þá kostur jafnhæfs manns til starfans.

Dómari getur dómkvatt matsmann sem er búsettur utan lögsagnarumdæmis hans.

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 21

Dómkvaðning skal bókuð í þingbók. Í henni skal greina skýrt hvað skuli metið, hvenær mati skuli lokið og hverj- um eigi að gefa kost á að gæta hagsmuna sinna við fram- kvæmd þess. Dómari getur að eigin frumkvæði bætt atriðum við matsbeiðni og skulu þau jafnframt færð til bókar. Enn fremur skal tekið fram að matsmanni beri að vinna verk sitt af bestu vitund og semja rökstudda matsgerð sem hann megi vera viðbúinn að þurfa að gefa skýrslu um fyrir dómi, sbr. þó 2. mgr. 130. gr.

Ef matsmaður deyr, forfallast, reynist óhæfur til starfans eða vanrækir það kveður dómari annan í hans stað að kröfu matsbeiðanda.

129. gr. Matsbeiðandi tilkynnir matsmanni um dómkvaðningu og

lætur honum í té endurrit af bókun um hana. Matsmaður tilkynnir aðilum svo fljótt sem verða má og

með sannanlegum hætti hvar og hvenær verði metið. Dóm- ara ber að veita matsmanni leiðbeiningar eftir föngum um matsatriði. Matsmanni er rétt að afla sér gagna til afnota við matið en aðilum, sem eru viðstaddir, skal þá gefinn kostur á að tjá sig um þau eftir þörfum. Ef vitnaleiðsla reynist nauð- synleg til skýringar á matsatriði er dómara rétt að láta hana þegar fara fram.

Þeim sem hefur umráð þess sem matsgerð lýtur að er skylt að veita matsmanni aðgang að því nema hann megi skorast undan vitnaskyldu um matsatriði eða sé óheimilt að bera vitni um það.

Matsmaður framkvæmir starf sitt þótt aðilar mæti ekki þegar metið er nema upplýsingar vanti sem þeir hefðu mátt veita.

130. gr. Matsmaður skal semja skriflega og rökstudda matsgerð

þar sem þau sjónarmið eru greind sem álit hans er reist á, sbr. þó 2. mgr. Matsgerð skal fengin dómara í hendur nema farið hafi verið fram á mat á rannsóknarstigi, en þá skal hún afhent matsbeiðanda. Matsmanni er þó rétt að krefjast áður greiðslu skv. 3. mgr.

Dómari getur ákveðið að matsmaður, sem dómkvaddur er eftir að mál hefur verið höfðað, þurfi ekki að semja skriflega matsgerð skv. 1. mgr. heldur skuli hann mæta fyrir dóm áður en aðalmeðferð fer fram og gefa þar skýrslu um niðurstöðu matsins, sbr. 2. mgr. 132. gr.

Matsmaður á rétt á hæfilegri þóknun fyrir störf sín sam- kvæmt reikningi og endurgreiðslu útlagðs kostnaðar úr hendi ákæruvaldsins. Ef annar hvor aðili telur að fjárhæð sú sem matsmaður fer fram á sé ósanngjörn getur hann krafist úr- skurðar dómara um hana. Matsmanni er rétt að krefjast greiðslu fyrir fram vegna ferðakostnaðar samkvæmt ákvörð- un dómara.

131. gr. Aðili getur krafist yfirmats þar sem tekin verði til end-

urmats þau atriði sem hafa áður verið metin. Yfirmatsmenn skulu vera fleiri en matsmenn voru en að öðru leyti gilda ákvæði 128.–130. gr. um yfirmat.

132. gr. Matsmanni sem skilað hefur skriflegri matsgerð ber að

koma fyrir dóm til að gefa skýrslu til skýringar og staðfest- ingar á matsgerð og um atriði sem tengjast henni ef aðili krefst þess eða dómari telur annars ástæðu til. Ef matsmaður hefur ekki skilað slíkri matsgerð er honum skylt að koma fyr- ir dóm og skýra frá niðurstöðu mats, svo og að svara spurn- ingum um atriði sem tengjast því.

Ákvæðum XVIII. kafla verður beitt um skýrslugjöf mats- manns eftir því sem þau geta átt við.

133. gr. Dómari leysir úr ágreiningi sem lýtur að dómkvaðningu

og hæfi matsmanns með úrskurði. Dómari getur enn fremur úrskurðað um atriði sem varða framkvæmd matsgerðar, svo sem hvort það hafi verið metið sem skyldi meta samkvæmt dómkvaðningu eða hvort matsgerð sé nægilega rökstudd, ef til álita kemur að endurskoða hana eða framkvæma endur- mat.

Dómari leggur mat á önnur atriði varðandi matsgerð, þar á meðal sönnunargildi hennar, þegar leyst er að öðru leyti úr máli.

XX. kafli. Skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn. 134. gr. Aðilar leggja fram þau skjöl og önnur sýnileg sönnunar-

gögn sem þeir vilja að tekið verði tillit til við úrlausn máls. Ákærandi leggur fram þau skjöl og önnur sýnileg sönnun-

argögn sem aflað hefur verið við rannsókn og sönnunargildi hafa að hans mati, þar á meðal þau sem hafa að geyma fram- burð ákærða og vitna fyrir dómi og hjá lögreglu. Þó er ein- ungis heimilt að leggja fram skýrslur sem vitni hafa gefið hjá lögreglu eða eftir atvikum öðrum stjórnvöldum ef ætlunin er að leiða þau fyrir dóm eða ekki er kostur á að fá þau fyrir dóm til að gefa skýrslu. Ef ástæða er til skal ákærandi enn fremur leggja fram lista með nöfnum þeirra sem hafa gefið skýrslu hjá lögreglu eða öðrum stjórnvöldum.

Að öðru leyti en því sem greinir í 2. mgr. má ekki leggja fram skjöl eða annars konar gögn ef þau hafa að geyma fram- burð ákærða eða annarra sem skylt er að koma fyrir dóm sem vitni.

Óheimilt er að leggja fram skjöl eða annars konar gögn ef þau hafa að geyma upplýsingar um það sem sakborningi og verjanda hans hefur farið á milli, svo og upplýsingar sem 2. mgr. 119. gr. tekur til.

135. gr. Nú er skjal eða annað sýnilegt sönnunargagn í vörslum

manns sem ekki er aðili að máli og getur þá ákærandi eða ákærði krafist þess að fá það afhent til framlagningar, enda megi ætla að það hafi sönnunargildi í málinu og vörslumanni sé skylt og heimilt að bera vitni um efni þess. Verði maður ekki við áskorun um að afhenda skjal eða annars konar gagn skal ákærandi leggja hald á það samkvæmt úrskurði dómara.

Vörslumaður getur krafist þess að dómari aflétti haldi skv. 1. mgr. með úrskurði. Að öðrum kosti skal aflétta því þegar þess er ekki lengur þörf og í síðasta lagi þegar máli er end- anlega lokið nema þær ástæður eigi við sem greindar eru í a- eða b-lið 1. mgr. 72. gr.

136. gr. Nú hefur skjal sem hald verður lagt á skv. 1. mgr. 135. gr.

að geyma atriði sem hlutaðeiganda væri óskylt eða óheimilt að bera vitni um og getur þá dómari ákveðið að skjalið verði lagt fyrir hann í trúnaði og gegn þagnarskyldu og annaðhvort að hann taki afrit af því úr skjalinu sem er skylt og heimilt að láta uppi eða geri skýrslu um þau atriði.

Ef eigandi eða vörslumaður skjals sem hald verður lagt á skv. 1. mgr. 135. gr. gerir sennilegt að það baki sér tjón eða óhagræði að það verði gert getur dómari ákveðið að láta við það sitja að skjalið verði afhent fyrir dómi til afritunar. Það sama á við ef skjal er verðmætt fyrir hlutaðeiganda eða sér- stök hætta er á því að það glatist eða spillist ef það er látið af hendi.

22 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Frumrit skjala, sem ákvæði 1. og 2. mgr. taka til, skulu afhent hlutaðeiganda um leið og afnotum er lokið.

Ákvæði 1.–3. mgr. gilda um önnur sýnileg sönnunargögn eftir því sem átt getur við.

137. gr. Dómari metur sönnunargildi skjala og annarra sýnilegra

sönnunargagna með hliðsjón af atvikum hverju sinni.

XXI. kafli. Öflun sönnunargagna fyrir öðrum dómi. 138. gr. Nú óskar aðili að leiða vitni, fá matsmann kvaddan ellegar

afla skjala eða annarra sýnilegra sönnunargagna fyrir öðrum dómi en þar sem mál er rekið og leggur hann þá skriflega beiðni um það fyrir dómara í málinu. Í beiðni skal greint frá ástæðum fyrir henni, hvar sé óskað að gagnaöflun fari fram, hver gögn þurfi að senda hlutaðeigandi dómi, hverjum eigi að gera aðvart um þinghald þar og um hverja gagnaöflun sé nánar að tefla. Ef óskað er að leiða vitni skal þannig greint frá nafni þess, kennitölu og heimili, svo og þeim atriðum ná- kvæmlega sem vætti á að varða. Sé óskað dómkvaðningar matsmanns skal beiðni um hana að jafnaði fylgja.

Beiðni skv. 1. mgr. skal tekin fyrir í þinghaldi í málinu. Ef dómari telur skilyrðum 1. mgr. 112. gr. fullnægt til að verða við beiðni bókar hann ákvörðun sína um það í þingbók. Úr- skurður skal kveðinn upp ef krafist er.

139. gr. Ef gagnaöflun á að fara fram fyrir öðrum dómi hér á

landi sendir dómari í málinu hlutaðeigandi dómi skriflegt er- indi ásamt beiðni aðila, frumritum eða afritum nauðsynlegra gagna og endurritum úr þingbók.

Nú á gagnaöflun að fara fram fyrir dómi í öðru ríki og aflar þá dómari í málinu þýðingar á þeim gögnum sem um ræðir í 1. mgr. Dómari sendir skriflegt erindi sitt og önnur gögn ásamt þýðingum til hlutaðeigandi dóms, eftir atvikum fyrir milligöngu stjórnvalda.

140. gr. Þegar gagnaöflun eftir fyrirmælum þessa kafla fer fram

fyrir dómi hér á landi skal farið eftir ákvæðum II. og XVIII.– XX. kafla eftir því sem átt getur við. Dómari, sem gagnaöflun fer fram fyrir, tekur ákvarðanir og úrskurðar um atriði varð- andi framkvæmd hennar.

Ef sérstakt tilefni verður til þess meðan á gagnaöflun stendur fyrir öðrum dómi getur aðili óskað eftir því að frekari gagna verði aflað þar en var beiðst í byrjun. Ákveður hlutað- eigandi dómari hvort orðið verði við slíkri ósk.

141. gr. Eftir því sem átt getur við skal ákvæðum 140. gr. beitt

þegar [skriflegra]1) sönnunargagna er aflað í héraði í tengsl- um við rekstur máls fyrir [æðri dómi].1)

Þá skal ákvæðum 140. gr. einnig beitt eftir því sem get- ur átt við þegar gagna er aflað fyrir héraðsdómi hér á landi í tengslum við rekstur máls erlendis.

1) L. 49/2016, 52. gr.

4. þáttur. Saksókn og meðferð máls fyrir héraðsdómi. XXII. kafli. Almennar reglur um saksókn.

142. gr. Sérhver refsiverð háttsemi skal sæta ákæru nema annað sé

sérstaklega ákveðið í lögum. 143. gr. Ef maður er saksóttur fyrir fleiri en eitt brot skal það gert

í einu máli eftir því sem við verður komið.

Ef fleiri menn en einn eru sóttir til saka fyrir þátttöku í sama verknaði skal það gert í einu máli nema annað þyki hagkvæmara.

144. gr. Nú er það gert að skilyrði fyrir því að sakamál sé höfð-

að að krafa sé um það gerð og skal það þá því aðeins gert að brotaþoli eða einhver brotaþola krefjist þess. Sé brotaþoli lát- inn hafa maki, börn, aðrir niðjar, foreldrar eða systkini hins látna rétt til að krefjast málshöfðunar í hans stað. Ef nánustu vandamenn brotaþola eru samkvæmt framansögðu fleiri en einn og ekki á eitt sáttir um hvort mál skuli höfðað ákveður ákærandi hvort það skuli gert.

Ekki á að taka til greina kröfu um málshöfðun skv. 1. mgr. ef sá sem hana gerir vill undanskilja einhvern af þeim sem sekur kann að vera um hina refsiverðu háttsemi. Kröfu um málshöfðun má afturkalla allt þar til dómur er kveðinn upp í málinu í héraði. Sá sem hefur afturkallað kröfu getur ekki borið hana fram að nýju nema það sé gert innan þeirra tíma- marka sem greind eru í 3. mgr. og ákærandi geti á það fallist.

Heimild til þess að bera fram kröfu um málshöfðun skv. 1. mgr. fellur niður sé krafa ekki gerð innan sex mánaða frá því að sá sem heimildina hefur fékk vitneskju um þann sem sekur kann að vera um hina refsiverðu háttsemi. Nú andast brota- þoli áður en fresturinn er liðinn og getur þá sá sem kemur í hans stað ávallt borið fram kröfu innan þriggja mánaða frá andlátinu. Nú kunna fleiri að vera sekir og frestur til þess að krefjast málshöfðunar á hendur einhverjum þeirra er liðinn og skal þá því aðeins taka til greina kröfu um málshöfðun á hendur hinum að ákærandi geti á það fallist.

145. gr. Þegar ákærandi hefur fengið gögn máls í hendur og geng-

ið úr skugga um að rannsókn sé lokið athugar hann hvort sækja skuli sakborning til sakar eða ekki. Ef hann telur það sem fram er komið ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis læt- ur hann við svo búið standa en ella höfðar hann mál á hendur sakborningi skv. 152. gr., sbr. þó 146. gr.

146. gr. Málsókn fellur niður ef sakborningur gengst undir eða

honum eru ákveðin viðurlög skv. XXIII. kafla, sbr. þó 3. mgr. 148. gr. og 4. mgr. 149. gr.

Falla má frá saksókn með því að fresta ákæru skilorðs- bundið samkvæmt almennum hegningarlögum.

Enn fremur má falla frá saksókn þegar svo stendur á sem hér segir:

a. ef brot er smávægilegt eða fyrirsjáanlegt er að um- fang málsins verði í verulegu ósamræmi við þá refsingu sem vænta má,

b. ef sakborningur og brotaþoli hafa komist að samkomu- lagi og sakborningur hefur efnt það fyrir sitt leyti,

c. ef sakborningur virðist vera ósakhæfur og ekki er nauð- synlegt að gera kröfu um að hann verði beittur öryggisráð- stöfunum,

d. ef brot hefur valdið sakborningi sjálfum óvenjulega miklum þjáningum eða aðrar sérstakar ástæður mæla með því að fallið sé frá saksókn, enda verði að telja að almanna- hagsmunir krefjist ekki málshöfðunar.

Nú kemur til greina að sækja mann til sakar í einu máli út af fleiri brotum og er þá heimilt að falla frá saksókn vegna þeirra brota sem ætla má að skipti engu eða óverulegu máli við ákvörðun viðurlaga. Enn fremur má falla frá saksókn ef maður, sem búið er að dæma fyrir brot, verður uppvís að því

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 23

að hafa framið annað eða önnur brot áður en hann var dæmd- ur, enda megi ætla að ekki verði um frekari refsingu að ræða þótt sakfellt yrði fyrir þau brot.

[Í málum þar sem héraðssaksóknari eða lögreglustjóri fer með ákæruvald getur hann fallið frá saksókn. Nú telur hann ástæðu til að falla frá saksókn skv. 2.–4. mgr. en vafa leika á heimild til þess og skal hann þá senda ríkissaksóknara málið til ákvörðunar.]1)

1) L. 47/2015, 15. gr.

147. gr. Nú er mál fellt niður skv. 145. gr. eða fallið er frá saksókn

skv. 2.–4. mgr. 146. gr. og er þá ekki skylt að gefa þeim sem hlut á að máli kost á að tjá sig áður en sú ákvörðun er tekin. Hins vegar skal ákærandi sem ákvörðunina tók tilkynna hana sakborningi og ef því er að skipta brotaþola, enda liggi fyrir hver hann er. [Héraðssaksóknara og lögreglustjóra er skylt að rökstyðja í stuttu máli ákvörðun sína um að fella mál niður sé þess óskað. Ákvörðun um að falla frá saksókn ber að rök- styðja með því að vísa til viðeigandi ákvæðis í 146. gr. en ekki er skylt að færa frekari rök fyrir henni.]1)

[Sá sem ekki vill una ákvörðun héraðssaksóknara eða lög- reglustjóra skv. 1. mgr. getur kært hana til ríkissaksóknara innan eins mánaðar frá því að honum var tilkynnt um hana. Skal ríkissaksóknari taka afstöðu til kærunnar innan þriggja mánaða frá því að hún barst honum en ekki er skylt að rök- styðja þá afstöðu sérstaklega nema ákvörðun héraðssaksókn- ara eða lögreglustjóra sé felld úr gildi.]1)

. . . 1)

[Ríkissaksóknari getur fellt ákvörðun héraðssaksóknara eða lögreglustjóra skv. 1. mgr. úr gildi að eigin frumkvæði ef hann telur hana andstæða lögum eða fjarstæða að öðru leyti, enda sé það gert innan þriggja mánaða frá því að hún var tekin.]1)

1) L. 47/2015, 16. gr.

XXIII. kafli. Lok máls án ákæru. 148. gr. Nú stendur lögregla mann að broti sem heyrir undir

ákæruvald lögreglustjóra, hann gengst skýlaust við brotinu og lögregla telur að hæfileg viðurlög við því séu einvörð- ungu sekt sem fari ekki fram úr tiltekinni fjárhæð samkvæmt reglugerð sem [ráðherra]1) setur skv. 1. mgr. 151. gr. Get- ur þá lögregla ákveðið viðurlög við broti samkvæmt henni. Lögregla gerir sakborningi ljós þau viðurlög sem við broti liggja og afleiðingar þess að sekt sé ekki greidd með því að afhenda honum skýrslu þar sem fram kemur stutt lýsing á broti, hvar og hvenær það er framið, þau refsiákvæði sem það varðar við, hvaða sekt og vararefsing liggur við broti og að unnt sé að krefjast fjárnáms ef sekt greiðist ekki eða hon- um kunni að vera gert að afplána vararefsingu. Ef því er að skipta skal jafnframt kynna sakborningi og tiltaka í skýrsl- unni hversu mörgum punktum brotið varði samkvæmt reglu- gerð um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlaga- brota. Sakborningur undirritar skýrsluna og fær afhent afrit hennar. Lögregla getur boðið sakborningi að ljúka þegar máli með greiðslu sektar á vettvangi. Geri sakborningur það ekki skal honum settur tiltekinn frestur í skýrslunni til að greiða hana. [Rafræn undirritun sakbornings telst fullgild undirritun samkvæmt þessari grein. Hafi skýrsla verið undirrituð raf- rænt er lögreglu heimilt að afhenda hana sakborningi með rafrænum hætti. Ráðherra skal kveða nánar á um framkvæmd rafrænnar undirritunar og afhendingar skýrslu í reglugerð.]2)

Nú er sekt sem ákveðin er skv. 1. mgr. ekki greidd og má

þá í stað saksóknar vegna brotsins fullnægja sektinni með fjárnámi eftir því sem segir í 2. mgr. 151. gr.

Nú telur lögreglustjóri eða héraðssaksóknari að saklaus maður hafi verið látinn gangast undir viðurlög samkvæmt þessari grein eða að málalok hafi verið fjarstæð að öðru leyti og getur hann þá innan mánaðar frá því að honum barst vitn- eskja um þau fellt gerðina úr gildi, enda sé þá ekki liðið ár frá málalokum.

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) L. 34/2017, 1. gr.

149. gr. Nú berst lögreglustjóra kæra um brot sem heyrir undir

ákæruvald hans eða lögregla stendur mann að slíku broti og lögreglustjóri telur viðurlög við brotinu ekki fara fram úr sekt að tiltekinni fjárhæð samkvæmt reglugerð sem [ráðherra]1)

setur skv. 1. mgr. 151. gr., sviptingu réttinda eða upptöku eigna. Getur lögreglustjóri þá bréflega, innan mánaðar frá því að honum barst kæran, gefið sakborningi kost á að ljúka mál- inu með því að gangast undir hæfileg viðurlög ásamt greiðslu sakarkostnaðar. Gangist sakborningur undir ákvörðun viður- laga hafa þau málalok sama gildi um ítrekunaráhrif og dóm- ur, ef því er að skipta. Hafni sakborningur þessum málalok- um eða sinni ekki boði lögreglustjóra skal tekin ákvörðun um saksókn eftir almennum reglum.

Nú hefur sakborningur gengist skriflega undir ákvörðun sektar og sakarkostnaðar skv. 1. mgr. en ekki greitt og má þá í stað saksóknar vegna brotsins fullnægja ákvörðuninni með fjárnámi eftir því sem segir í 2. mgr. 151. gr.

Ríkissaksóknari lætur lögreglustjórum í té skrá yfir brot sem heimild skv. 1. mgr. nær til, ásamt leiðbeiningum um sektarfjárhæð og önnur viðurlög fyrir hverja tegund brots. Ber að láta ríkissaksóknara í té skýrslur um málalok skv. 1. mgr. eftir þeim reglum sem hann ákveður.

Nú telur [ríkissaksóknari]2) að saklaus maður hafi verið látinn gangast undir viðurlög samkvæmt þessari grein eða að málalok hafi verið fjarstæð að öðru leyti og getur hann þá innan [tveggja mánaða]2) frá því að honum barst vitneskja um þau fellt gerðina úr gildi, enda sé þá ekki liðið ár frá mála- lokum.

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) L. 47/2015, 17. gr.

150. gr. Nú eru skilyrði til að ljúka máli samkvæmt því sem segir í

1. mgr. 149. gr. og [héraðssaksóknari eða]1) lögreglustjóri tel- ur að hæfileg viðurlög við brotinu séu einvörðungu sekt sem fari ekki fram úr að tiltekinni fjárhæð samkvæmt reglugerð sem [ráðherra]2) setur skv. 1. mgr. 151. gr. Getur þá [héraðs- saksóknari eða]1) lögreglustjóri gefið sakborningi kost á að ljúka málinu með greiðslu tiltekinnar sektar, en í sektarboði skal koma fram stutt lýsing á broti, hvar og hvenær það var framið og þau refsiákvæði sem það varðar við. Einnig skal koma fram í sektarboði hverjar geta orðið afleiðingar þess að því er ekki sinnt.

Hafni sakborningur sektarboði skv. 1. mgr. skal tekin ákvörðun um saksókn eftir almennum reglum.

Sinni sakborningur ekki sektarboði skv. 1. mgr. innan 30 daga eftir að það hefur [sannanlega borist honum eða]3) ver- ið birt skv. 156. gr. getur [héraðssaksóknari eða]1) lögreglu- stjóri sent málið héraðsdómara til ákvörðunar sektar og vara- refsingar. Dómari tekur ákvörðun um viðurlög með áritun á sektarboð [héraðssaksóknara eða]1) lögreglustjóra. Slík árit- un hefur sömu áhrif og dómur. Ekki er þörf á að kveðja sak- borning fyrir dóm áður en máli verður lokið á þennan hátt.

24 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Telji dómari hæfileg viðurlög við broti fara fram úr því sem greinir í 1. mgr. eða fyrirliggjandi gögn ekki nægileg til að sýnt sé fram á sök sakbornings hafnar hann málalokum skv. 3. mgr. með áritun sektarboðs. Er dómari ekki bundinn af slíkri ákvörðun ef til málshöfðunar kemur vegna brotsins.

Nú hefur máli verið lokið með ákvörðun viðurlaga skv. 3. mgr. og getur sakborningur þá krafist þess að málið verði tekið upp á ný, enda færi hann fram varnir sem gætu hafa haft áhrif á úrslit þess. Kröfu um endurupptöku skal beint til þess dómstóls þar sem máli var lokið innan fjögurra vikna frá því að sakborningi varð kunnugt um sektarákvörðun. Dóm- ari ákveður með úrskurði hvort krafa verður tekin til greina. Fallist dómari á kröfuna fellur ákvörðun um viðurlög skv. 3. mgr. úr gildi og sætir málið upp frá því meðferð samkvæmt almennum reglum, þó án þess að ákæra hafi verið gefin út. Eftir því sem við getur átt fer að öðru leyti um kröfu um end- urupptöku samkvæmt þessari málsgrein og meðferð máls, sé krafan tekin til greina, eftir ákvæðum XXIX. kafla.

Nú telur [ríkissaksóknari]1) að sakborningur hafi verið lát- inn sæta fjarstæðum málalokum og getur hann þá krafist end- urupptöku málsins fyrir hlutaðeigandi dómstóli. Um meðferð þeirrar kröfu og málsins upp frá því fer eftir 5. mgr.

1) L. 47/2015, 18. gr. 2) L. 162/2010, 194. gr. 3) L. 78/2015, 23. gr.

151. gr. [Ráðherra]1) ákveður í reglugerð2) sem hann setur að feng-

inni tillögu ríkissaksóknara þau viðurlög, þar á meðal hámark sektar, sem lögregla getur ákveðið vegna brota skv. 1. mgr. 148. gr. Enn fremur það hámark sektar sem lögreglustjóri getur ákveðið vegna brota skv. 1. mgr. 149. gr. og það há- mark sektar sem miðað skal við í 1. mgr. 150. gr. Ráðherra getur einnig sett nánari reglur um meðferð mála skv. 148.– 150. gr.

[Um fullnustu sektar sem lögregla hefur ákveðið skv. 1. mgr. 148. gr. og ákvörðunar skv. 1. mgr. 149. gr. fer eftir lög- um um fullnustu refsinga.]3)

1) L. 162/2010, 194. gr. 2) Rg. 205/2009, sbr. 1049/2012, 418/2018 og 551/

2020. 3) L. 15/2016, 101. gr.

XXIV. kafli. Ákæra, fyrirkall og birting. 152. gr. Ákærandi höfðar sakamál með útgáfu ákæru. Í henni skal

greina svo glöggt sem verða má: a. þann dómstól sem málið er höfðað fyrir, b. nafn ákærða, kennitölu eða fæðingardag og heimili eða

dvalarstað, c. hver sú háttsemi er sem ákært er út af, hvar og hve-

nær brotið er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skil- greiningu og loks heimfærslu þess til laga og stjórnvaldsfyr- irmæla, ef því er að skipta,

d. röksemdir sem málsóknin er byggð á, ef þörf krefur, svo sem ef mál er flókið eða umfangsmikið, en röksemda- færslan skal þá vera gagnorð og svo skýr að ekki fari á milli mála hverjar sakargiftir eru,

e. kröfur um refsingu og önnur viðurlög, svo sem svipt- ingu réttinda og upptöku eigna, svo og kröfu um greiðslu sak- arkostnaðar,

f. einkaréttarkröfur og kröfur allsherjarréttar eðlis skv. XXVI. kafla.

Þegar ákæra hefur verið gefin út á hendur manni nefnist hann ákærði.

153. gr. Ákærandi getur breytt eða aukið við ákæru með útgáfu

framhaldsákæru til að leiðrétta augljósar villur eða ef upp-

lýsingar, sem ekki lágu fyrir þegar ákæra var gefin út, gefa tilefni til. Framhaldsákæru skal gefa út svo fljótt sem verða má eftir að þörfin á henni er kunn, en þó í síðasta lagi tveim- ur vikum fyrir aðalmeðferð máls skv. 166. gr., nema ákærði samþykki að það sé gert síðar.

Ákærandi getur allt fram til þess að dómur er upp kveð- inn afturkallað ákæru sem hann hefur gefið út eða fallið frá einstökum ákæruatriðum.

Nú hefur máli verið vísað frá dómi eða það verið fellt nið- ur og verður þá nýtt mál um sama sakarefni ekki höfðað síðar en þremur mánuðum frá því að málinu var endanlega lokið á þann hátt. Skal fresturinn reiknast frá því að málinu var vís- að frá dómi eða það var fellt niður í fyrsta sinn, eftir atvikum fyrir [æðri dómi].1)

1) L. 49/2016, 53. gr.

154. gr. Ákæra skal send héraðsdómi ásamt þeim sýnilegu sönn-

unargögnum sem ákæruvaldið hyggst leggja fram í málinu. Ákæru á að fylgja skrá yfir gögnin og skulu þau vera í nægi- lega mörgum eintökum. Jafnframt á að fylgja tilkynning um það hver fari með málið fyrir ákæruvaldið, hvaða vitni það óskar eftir að verði leidd í málinu og hvaða sönnunargagna það telji nauðsynlegt að afla að öðru leyti. Tekið skal fram hvort halda beri upplýsingum um nafn og önnur persónuein- kenni einstakra vitna og lögreglumanna leyndum fyrir öðrum en dómara málsins, sbr. 2. mgr. 56. gr. og 3. mgr. 65. gr.

155. gr. Eftir að héraðsdómi hefur borist ákæra ákveður dómari

stað og stund þinghalds þar sem málið verður þingfest. Skal þingfesting fara fram svo fljótt sem verða má. Samhliða gefur dómari út fyrirkall á hendur ákærða sem greini stað og stund þingfestingar ásamt áskorun til hans um að sækja þing. Jafn- framt skal greina þann fyrirvara sem birta skal ákæru ásamt fyrirkalli fyrir ákærða áður en mál verður þingfest og má sá fyrirvari ekki vera skemmri en þrír sólarhringar. Telji dómari skilyrði til að mál verði dæmt að ákærða fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr., skal þess skilmerkilega getið í fyrirkalli að fjarvist ákærða kunni að verða metin til jafns við játningu hans og að dómur kunni að ganga um málið þótt hann sæki ekki þing. Ella skal þess getið í fyrirkalli að lögregla megi færa ákærða fyrir dóm, með valdi ef með þarf, sinni hann því ekki.

Ef dómari telur að gallar séu á málatilbúnaði sem varðað geta frávísun skal hann benda ákæranda á þá. Hins vegar má hann ekki synja um útgáfu fyrirkalls af þeim sökum, enda er hann óbundinn af slíku áliti sínu við úrlausn máls.

Þegar dómari hefur gefið út fyrirkall skv. 1. mgr. sendir hann það ásamt ákæru til ákæranda sem hlutast til um birt- ingu skv. 156. gr.

156. gr. Ákæra ásamt fyrirkalli, hér eftir nefnd í einu lagi ákæra,

skal birt fyrir ákærða sjálfum, sé þess kostur, en annars fyr- ir lögmanni hans eða öðrum lögráða manni sem fengið hef- ur skriflegt umboð frá honum til að taka við birtingu ellegar fyrir heimilismanni eða öðrum sem dvelur eða hittist fyrir á skráðu lögheimili hans. Þeim sem birt er fyrir er skylt að segja á sér deili.

Ákæra skal birt af einum lögreglumanni, fangaverði eða öðrum starfsmanni Fangelsismálastofnunar ellegar stefnu- votti nema hún sé birt á dómþingi af dómara. Skal sá sem birtingu annast votta hana með áritun á ákæru eða sérstöku vottorði. Þeim sem ákæra er birt skal afhent afrit af henni.

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 25

Sé hún birt fyrir öðrum en ákærða sjálfum ber þeim, að við- lagðri sekt, að koma afriti ákæru í hendur hans, en sé þess ekki kostur þá í hendur þess sem telja má líklegastan til að koma afriti til skila í tæka tíð. Skal sá sem birtingu annast benda þeim sem birt er fyrir á þessa skyldu.

Ef óvíst er um dvalarstað ákærða má birta ákæru í Lög- birtingablaði með hæfilegum fyrirvara áður en mál verður þingfest og má sá fyrirvari ekki vera skemmri en einn mán- uður.

Við birtingu ákæru skal ákærði spurður hvort hann óski eftir verjanda og þá hverjum ef því er að skipta. Skal af- stöðu ákærða getið í vottorði um birtinguna. Ákærði getur þó frestað að taka ákvörðun um verjanda þar til mál er þingfest.

Ákærandi skal endursenda dómara ákæru ásamt birtingar- vottorði að birtingu lokinni. Að þremur sólarhringum liðnum frá birtingu ákæru er ákæranda skylt að láta þeim sem þess óskar í té afrit af henni með þeim takmörkunum sem greindar eru í 1. mgr. 16. gr.

157. gr. Hafi ákærði óskað eftir skipun verjanda við birtingu

ákæru skal dómari taka ákvörðun um skipunina. Dómari sendir verjanda jafnskjótt afrit af gögnum máls og tilkynn- ir honum hvenær það verði þingfest.

XXV. kafli. Almenn meðferð máls fyrir dómi. 158. gr. Mál er þingfest þegar ákæra og önnur málsgögn af hálfu

ákæruvaldsins eru lögð fram á dómþingi. Þingfesta má mál þótt fyrirkall hafi ekki verið gefið út ef ákærði sækir þing.

Nú er skylt eða heimilt að skipa ákærða verjanda og það hefur ekki verið gert fyrir þingfestingu máls og skal það þá gert við þingfestingu eða svo fljótt sem verða má. Ef skilyrði eru til þess að skipa brotaþola réttargæslumann skal það gert við þingfestingu eða ef það er ekki unnt, svo sem vegna þess að ekki hefur náðst til brotaþola, svo fljótt sem verða má.

159. gr. Við þingfestingu athugar dómari hvort gallar séu á máli

sem geta varðað frávísun þess án kröfu. Þá þegar eða hvenær sem er eftir það getur dómari vísað máli frá dómi með úr- skurði þótt engin krafa hafi komið fram um það ef hann telur svo bersýnilega annmarka á því sem ekki verði bætt úr undir rekstri þess að dómur verði ekki kveðinn upp um efni þess. Ef því er að skipta getur dómari kveðið á um frávísun máls að hluta og leyst úr efni þess að öðru leyti í dómi. Áður en máli verður vísað frá dómi skal ákæranda þó gefinn kostur á að tjá sig um málefnið munnlega, svo og ákærða hafi hann sótt þing í málinu.

Nú kemur fram krafa um frávísun máls að öllu leyti eða hluta við þingfestingu eða síðar undir rekstri þess og skal dómari þá á sama hátt gefa ákæranda og ákærða kost á að tjá sig um kröfuna. Dómari tekur afstöðu til kröfu um frávísun málsins með úrskurði áður en fjallað verður frekar um efni þess.

Nú hrindir dómari frávísunarkröfu og er hann þá ekki bundinn af þeim úrskurði ef nýjar upplýsingar koma fram síðar undir rekstri máls um þau atriði sem úrskurðað var um.

Nú fellir [Landsréttur]1) úr gildi úrskurð um frávísun máls að einhverju leyti eða öllu og skal þá héraðsdómari taka mál- ið upp á ný eins og það stóð þegar hann tók það til úrskurðar.

1) L. 49/2016, 44. gr.

160. gr. Nú sækir ákærandi ekki þing við þingfestingu máls eða

á síðari stigum þess og verður þá ekkert aðhafst í því frekar

á því stigi. Skal þá dómari ákveða nýtt þinghald og tilkynna ákæranda um það, en verði heldur ekki sótt þing af hans hálfu í það sinn ber að fella málið niður.

161. gr. Nú kemur ákærði ekki fyrir dóm við þingfestingu máls

þótt honum hafi verið löglega birt ákæra og þess getið í fyrir- kalli að mál kunni að vera dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr., [eða hann sækir ekki þing á síðari stigum þess],1) og má þá leggja dóm á málið ef ekki er kunnugt um að ákærði hafi lögmæt forföll og svo stendur á:

a. að brot þykir ekki varða þyngri viðurlögum en [sex mánaða fangelsi],1) upptöku eigna og sviptingu réttinda og dómari telur framlögð gögn nægileg til sakfellingar eða

b. að ákærði hefur komið fyrir dóm við rannsókn máls, játað skýlaust þá háttsemi sem honum er gefin að sök og dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa að játningin sé sannleikanum samkvæm, enda verði ekki dæmd þyngri refs- ing en [eins árs]1) fangelsi.

Slíkum dómi getur ákærði ekki áfrýjað, en þess í stað get- ur hann leitað eftir endurupptöku skv. XXIX. kafla.

1) L. 78/2015, 24. gr.

162. gr. Nú kemur ákærði ekki fyrir dóm við þingfestingu máls

og því verður ekki lokið samkvæmt því sem í 1. mgr. 161. gr. segir og ákveður dómari þá nýtt þinghald. Skal ákærandi leggja fyrir lögreglu að færa ákærða fyrir dóm nema kunnugt sé um að hann hafi haft lögmæt forföll, en í því tilviki skal lögregla boða hann til nýs þinghalds og eftir atvikum færa hann fyrir dóm með valdi, sbr. c-lið 3. mgr. 90. gr.

163. gr. Við þingfestingu máls skal ákærði spurður hvort hann

játi efni ákæru rétt og honum kynnt efni framlagðra skjala ef hann er viðstaddur. Ella skal það gert í þinghaldi þegar ákærði kemur fyrst fyrir dóm eftir þingfestingu.

Nú sækir ákærði þing og játar þá háttsemi sem honum er gefin að sök og má þá ákærandi gefa honum kost á að ljúka máli með því að gangast undir sekt sem greiðist innan tiltekins tíma að viðlagðri vararefsingu, ásamt sakarkostnaði. Fallist ákærði á slík málalok og dómari telur viðurlög hæfileg getur hann lokið máli með ákvörðun sinni um þau viðurlög. Með sama hætti má og leysa úr kröfum á hendur ákærða um sviptingu ökuréttar og upptöku eigna.

Nú telur [ríkissaksóknari]1) að saklaus maður hafi fallist á viðurlög skv. 2. mgr. eða að ákærði hafi verið látinn undir- gangast fjarstæð málalok að öðru leyti og getur hann þá kært málið til [Landsréttar]2) til ónýtingar á ákvörðuninni.

1) L. 47/2015, 20. gr. 2) L. 49/2016, 44. gr.

164. gr. Nú verður máli ekki lokið skv. 2. mgr. 163. gr., ákærði

játar skýlaust alla þá háttsemi sem honum er gefin að sök og dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa að játningin sé sannleikanum samkvæm. Tekur dómari þá málið þegar til dóms nema annar hvor aðila krefjist þess að fram fari aðal- meðferð í því skv. 166. gr.

Verði máli lokið skv. 1. mgr. þarf ekki að færa fram önnur sönnunargögn en þegar hafa verið lögð fram. Aðili getur þó óskað eftir að leggja fram sýnileg sönnunargögn. Skal aðil- um gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

165. gr. Ef máli verður ekki lokið samkvæmt því sem að fram-

an greinir skal gefa ákærða kost á að leggja fram skriflega

26 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

greinargerð af sinni hálfu innan hæfilegs frests. Í greinargerð skulu greindar kröfur og röksemdir ákærða, svo og þau gögn sem hann leggur fram og þau vitni sem hann óskar eftir að verði leidd í málinu. Leggi ákærði ekki fram greinargerð skal hann láta uppi hvort hann hyggst leggja fram sönnunargögn og leiða vitni í málinu og þá hver þau séu.

Dómari getur frestað máli til að aðilar geti aflað frekari sönnunargagna ef þeir óska eftir því eða hann telur þess þörf.

Dómari ákveður hvort mál verði munnlega flutt eða skrif- lega. Dómari skal ekki ákveða skriflegan flutning máls nema aðilar óski þess og hann telji hættu á að málið skýrist ekki nægilega með munnlegum málflutningi.

Þegar aðilar hafa lýst því yfir að öflun sýnilegra sönnun- argagna sé lokið ákveður dómari þing til aðalmeðferðar máls með hæfilegum fyrirvara. Ef tilefni gefst skal hann jafnframt taka ákvörðun um það hvort aðalmeðferð fari fram fyrir lukt- um dyrum, hvort vitni skuli gefa skýrslu án þess að það þurfi að skýra frá nafni sínu í heyranda hljóði og hvort ákærði og málflytjendur skuli víkja úr þinghaldi meðan vitni gef- ur skýrslu. Dómara er rétt að inna aðila eftir því hve langan tíma þeir þurfi fyrir málflutningsræður við aðalmeðferð og ákveður dómari síðan lengd hennar í ljósi þess.

Heimilt er að taka skýrslu af ákærða eða vitnum áður en aðalmeðferð hefst, enda verði sá sem skýrslu á að gefa fyrir- sjáanlega fjarverandi vegna lögmætra forfalla.

166. gr. Við aðalmeðferð máls fara að jafnaði fram í einni lotu

skýrslutökur og munnlegur flutningur máls. Ákærði á rétt á að vera við aðalmeðferð máls. Dómari getur þó ákveðið að hann víki af þingi meðan skýrsla er tekin af öðrum sem eru ákærðir í málinu eða meðan vitni gefur skýrslu, sbr. 123. gr.

Aðalmeðferð hefst með því að ákærandi gerir stuttlega grein fyrir ákæru og hvaða gögnum hún er studd, en síðan gefst ákærða kostur á að gera stuttar athugasemdir af sinni hálfu. Því næst skal tekin skýrsla af ákærða. Ef hann játar að hafa framið það brot sem hann er ákærður fyrir ákveður dóm- ari í samráði við málflytjendur hvort og þá að hve miklu leyti þörf er frekari sönnunarfærslu. Síðan eru teknar skýrslur af vitnum og gengið á vettvang ef því er að skipta.

Að loknum skýrslutökum fer fram munnlegur flutningur máls. Ákærandi talar fyrst, því næst sá sem fer með kröfu skv. XXVI. kafla ef því er að skipta og síðan ákærði. Að því loknu geta þeir í sömu röð fært fram andsvör af sinni hálfu. Flytji verjandi málið fyrir ákærða er honum sjálfum heimilt að taka stuttlega til máls í lok aðalmeðferðar. Dómari stýrir málflutningi og gætir þess að ræðumaður haldi sig við efn- ið og að málflutningur sé glöggur og fari ekki út fyrir þau mörk sem sæmandi er í þinghaldi. Dómari getur takmarkað málfrelsi eða stöðvað málflutning þess sem lagar sig ekki að áminningum hans eða fer að mun fram úr þeim tíma sem hef- ur verið áætlað að málflutningur hans muni taka. Að loknum málflutningi er málið tekið til dóms.

167. gr. Nú er mál skriflega flutt og skal þá taka skýrslur af ákærða

og vitnum áður en málflutningur hefst. Síðan skal gefa ákær- anda kost á að skila sókn til viðbótar ákæru. Að því búnu gefst ákærða kostur á að skila vörn til viðbótar greinargerð ef því er að skipta. Skriflegum andsvörum má skila einu sinni af hálfu hvors aðila. Að loknum málflutningi er málið tekið til dóms.

168. gr. Nú telur dómari eftir dómtöku máls nauðsynlegt að fram

komi frekari gögn ellegar að spyrja þurfi ákærða eða vitni nánar. Skal hann þá kveðja aðila fyrir dóm og eftir atvik- um leggja spurningar fyrir þá og beina því til ákæranda að afla frekari gagna eða leiða tiltekin vitni fyrir dóm. Fresta má málinu eftir þörfum, en að því búnu gefur dómari aðilum kost á að gera athugasemdir til viðbótar fyrri málflutningi sínum og tekur málið til dóms á ný.

169. gr. Nú hafa fleiri mál verið höfðuð gegn ákærða fyrir sama

dómstóli og getur dómari þá ákveðið, ef hann telur það hag- kvæmt, að sameina mál þessi og reka þau og dæma sem eitt mál.

Nú hefur mál verið höfðað í einu lagi gegn fleiri en ein- um og getur dómari þá eftir ósk aðila eða af sjálfsdáðum ákveðið að skilja málið í sundur og dæma sérstaklega mál eins eða fleiri ákærðu ef það þykir hentugra og horfa til flýtis og sparnaðar.

170. gr. Mál verður fellt niður ef: a. ákærði fellur frá meðan á málsmeðferð stendur, nema

ákveða megi sekt eða upptöku eigna úr dánarbúi hans, b. ákærandi afturkallar ákæru áður en dómur gengur, c. ákærandi sækir ekki þing eftir því sem fyrir er mælt í

160. gr., d. saksókn er háð kröfu brotaþola og hann fellur frá henni

áður en héraðsdómur er kveðinn upp, nema ákærandi telji rétt að halda málinu áfram vegna almannahagsmuna.

Mál skal fella niður með bókun í þingbók nema ágreining- ur rísi um hvort það verði gert, sem dómari tekur þá afstöðu til með úrskurði. Kveðið skal á um sakarkostnað í bókuninni og hefur sú ákvörðun sama gildi og dómur um það efni.

171. gr. Hraða skal meðferð máls eftir föngum. Ekki skiptir máli hvenær yfirlýsingar, mótmæli og sönn-

unargögn koma fram undir rekstri máls.

XXVI. kafli. Einkaréttarkröfur o.fl. 172. gr. Brotaþoli og hver sá annar sem telur sig hafa öðlast kröfu

að einkarétti á hendur sakborningi vegna refsiverðrar hátt- semi hans getur leitað dóms um hana í sakamáli eftir því sem nánar er ákveðið í þessum kafla.

Ef háttsemi sakbornings er auk refsiábyrgðar talin hafa leitt af sér kröfu allsherjarréttar eðlis getur það stjórnvald sem hlut á að máli leitað dóms um hana á sama hátt og í 1. mgr. greinir.

Sá sem neytir heimildar skv. 1. eða 2. mgr., hér eftir nefndur kröfuhafi, verður ekki aðili að sakamáli nema að því leyti einu sem varðar kröfu hans.

173. gr. Kröfu skv. 1. eða 2. mgr. 172. gr. skal komið á framfæri

við lögreglu meðan á rannsókn máls stendur eða við ákær- anda áður en ákæra er gefin út. Heimilt er og að koma kröfu á framfæri við ákæranda eftir útgáfu ákæru ef fullnægt er skil- yrðum 1. mgr. 153. gr. til útgáfu framhaldsákæru í máli eða ákærði samþykki, enda sé að öðru leyti fullnægt skilyrðum þess að hafa megi slíka kröfu uppi í málinu.

Kröfuhafi skal láta af hendi við lögreglu eða ákæranda skriflega greinargerð um kröfu sína þar sem getið skal eftir- farandi atriða:

a. nafns kröfuhafa, heimilis og kennitölu, svo og sömu atriða varðandi fyrirsvarsmann hans ef því er að skipta,

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 27

b. nafns réttargæslumanns eða annars lögmanns kröfu- hafa í málinu ef hann gætir ekki hagsmuna sinna sjálfur eða fyrirsvarsmaður hans,

c. dómkrafna kröfuhafa, sem skulu úr garði gerðar á sama hátt og í stefnu í einkamáli,

d. skýringa á aðild kröfuhafa að kröfunni ef um annan er að ræða en brotaþola,

e. málsástæðna sem krafa er reist á, f. tilvísunar til helstu lagaákvæða eða réttarreglna sem

málatilbúnaður er studdur við. Með greinargerð skv. 2. mgr. skulu fylgja þau gögn sem

varða málatilbúnað kröfuhafa og ekki liggja þegar fyrir í sakamálinu.

Ef kröfu er komið á framfæri við lögreglu áður en rann- sókn máls er lokið skal hún kynnt sakborningi og leitað af- stöðu hans til hennar sé þess kostur. Berist krafa síðar getur ákærandi falið lögreglu að fara með hana á sama veg.

Þegar ákvörðun hefur verið tekin um saksókn skal ákær- andi gæta að því hvort krafan sé réttilega úr garði gerð og henni fylgi nauðsynleg gögn, en hann getur veitt kröfuhafa skamman frest til að bæta úr slíkum annmörkum á henni. Ákærandi getur kröfunnar í ákæru eða eftir atvikum fram- haldsákæru og lætur greinargerð um hana og önnur gögn fylgja ákærunni til héraðsdóms, sbr. 154. gr.

174. gr. Ef krafa skv. 1. eða 2. mgr. 172. gr. er höfð uppi í sakamáli

skal dómari láta afrit af greinargerð um hana fylgja ákæru ásamt fyrirkalli til birtingar fyrir ákærða. Þegar birt hefur verið skal dómari tilkynna kröfuhafa um stað og stund þegar málið verður þingfest.

Við þingfestingu máls skal leggja fram greinargerð um kröfuna ásamt meðfylgjandi gögnum. Nú sækir kröfuhafi ekki þing við þingfestingu eða þegar málið er tekið fyrir á síðari stigum og skal þá krafan felld niður nema hann hafi lögmæt forföll eða ákærandi hafi tekið að sér að mæta fyrir hans hönd í þinghaldinu.

Undir rekstri máls skal dómari gæta að því af sjálfsdáðum á sama hátt og í einkamáli hvort einhverjir þeir annmarkar séu á kröfu sem valdið gætu því að vísa beri henni frá dómi. Telji hann svo vera eða krefjist ákærði þess að kröfunni verði vísað frá dómi skal aðilum málsins gefinn kostur á að tjá sig um það á dómþingi ásamt kröfuhafa. Ef dómari vísar kröf- unni frá dómi eða hafnar kröfu ákærða um frávísun skal hann gera það með úrskurði.

Kröfuhafi hefur einn forræði á kröfunni á sama hátt og ef hann hefði hana uppi í einkamáli. Honum er heimilt á öllum stigum máls að falla frá henni en dómari getur þá gert honum eftir kröfu ákærða að greiða ómaksþóknun vegna kostnaðar sem sérstaklega hefur fylgt því að halda uppi vörnum gegn kröfunni. Kröfuhafi og ákærði geta gert dómsátt um kröfuna eftir sömu reglum og gilda um slíka sátt í einkamáli án tillits til þess hvort hún hafi verið höfð uppi á þann hátt sem greinir í 173. gr.

Verði kröfu ekki vísað frá dómi, sé ekki fallið frá henni eða hún felld niður ellegar gerð sátt um hana skal dómari tilkynna kröfuhafa á sannanlegan hátt um þinghöld í málinu.

175. gr. Nú viðurkennir ákærði ekki kröfu sem gerð er á hendur

honum skv. 1. eða 2. mgr. 172. gr. og dómari telur að með- ferð hennar geti leitt til teljandi tafa eða óhagræðis við rekstur máls og getur hann þá á öllum stigum þess fram til munnlegs

málflutnings ákveðið að skilja hana frá öðrum þáttum máls- ins og víkja henni til meðferðar fyrir dómi í sérstöku einka- máli. Áður en slík ákvörðun er tekin skal þó dómari gefa að- ilum og kröfuhafa kost á að tjá sig um það atriði.

Nú stendur svo á sem í 1. mgr. segir og um er að ræða kröfu um skaðabætur og má dómari þá ákveða að láta við það sitja að einvörðungu verði dæmt um bótaskyldu í sakamálinu. Samhliða getur hann ákveðið að víkja kröfu um bótafjárhæð til meðferðar fyrir dómi í sérstöku einkamáli skv. 1. mgr.

Taki dómari ákvörðun um að víkja kröfu til meðferðar í einkamáli skv. 1. eða 2. mgr. skal krafan tekin til meðferð- ar fyrir sama dómstóli eins og einkamál hefði verið þingfest um hana. Hafi ákærði ekki lagt fram greinargerð í sakamál- inu skv. 1. mgr. 165. gr. skal hann í fyrsta þinghaldi í einka- málinu fá frest til að taka þar til varna. Að öðru leyti verður málið rekið upp frá því eftir almennum reglum um meðferð einkamála.

176. gr. Nú er kröfu skv. 1. eða 2. mgr. 172. gr. ekki vísað frá

dómi, frá henni fallið, hún felld niður, sátt gerð um hana eða henni vikið til meðferðar í einkamáli og á þá kröfuhafi rétt á að láta málið til sín taka að því er hana varðar, þar á með- al að leggja fram gögn til stuðnings henni. Kröfuhafa er og heimilt að beina því til dómara að tilteknar spurningar verði við munnlega sönnunarfærslu lagðar fyrir ákærða, vitni eða kröfuhafa sjálfan um atriði sem sérstaklega varða kröfuna, svo og að flytja málið munnlega um hana eina.

Nú er sakamál fellt niður, því vísað frá dómi eða ákærði sýknaður með dómi án þess að það hafi verið vegna þess að hann sé talinn ósakhæfur og skal þá dómari vísa kröfu skv. 1. eða 2. mgr. 172. gr. af sjálfsdáðum frá dómi. Skal það gert í dómi eða að öðrum kosti með úrskurði, þar á meðal ef málið er fellt niður.

Ef leyst er úr kröfu að efni til skal afstaða tekin til henn- ar á sama hátt og gert yrði í einkamáli. Dæma má ákærða til greiðslu málskostnaðar vegna kröfunnar, enda hafi þess verið krafist, nema um sé að ræða kröfu brotaþola sem hefur fengið sér skipaðan réttargæslumann.

XXVII. kafli. Afbrigðileg meðferð máls fyrir dómi. 177. gr. Að því leyti sem mál koma til úrlausnar fyrir héraðsdómi

samkvæmt þessum lögum, án þess að handhafi ákæruvalds hafi höfðað mál eftir því sem mælt er fyrir um í 1. gr. eða farið sé með þau eftir XV. kafla, skulu þau rekin samkvæmt ákvæðum þessa kafla, þar á meðal þau mál sem getið er sér- staklega í 1. mgr. 2. gr.

178. gr. Mál skv. 177. gr. skal lagt fyrir héraðsdóm með skriflegri

kröfu, þar sem greina skal frá eftirfarandi: a. nafni þess sem leggur málið fyrir dóm ásamt heimili,

svo og kennitölu ef ekki er um stjórnvald að ræða, b. hver fari með málið af hálfu hans, c. hvert málefnið eða erindið sé ásamt nafni, heimilis-

fangi og eftir atvikum kennitölu þess sem krafan beinist að, d. hvers sé krafist í málinu, e. hver atvik séu að baki kröfunni, f. á hvaða rökum og réttarreglum krafan sé reist. Kröfunni skulu fylgja nauðsynleg gögn. Henni skal beint

til viðeigandi héraðsdóms, sbr. 51. gr. Þegar dómara hefur borist krafa skal hann kanna hvort

lagaheimild standi til að taka hana til meðferðar. Telji hann svo ekki vera skal hann þegar í stað vísa málinu frá dómi

28 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

með úrskurði, en ella ákveður hann stað og stund til þing- halds til að þingfesta málið. Dómari tilkynnir þessa ákvörðun þeim sem kröfuna gerði og telst hann upp frá því sóknarað- ili máls. Skal ákvörðunin jafnframt tilkynnt varnaraðila með sannanlegum hætti sé um hann að ræða nema krafa sé gerð um aðgerð við rannsókn sakamáls og vitneskja varnaraðila um hana gæti spillt fyrir rannsókn, sbr. 1. mgr. 104. gr.

179. gr. Ef sóknaraðili mætir ekki á dómþingi þegar þingfesta á

mál verður það ekki gert. Ella verður málið þingfest með því að gögn þess eru lögð þar fram.

Standi enginn til varnaraðildar í máli, hafi varnaraðili ekki verið kvaddur á dómþing eða hann sækir ekki þing sam- kvæmt kvaðningu skal gefa sóknaraðila kost á að gera munn- lega grein fyrir málinu og leggja fram frekari gögn. Jafnframt má veita honum frest til að afla frekari gagna. Að lokinni gagnaöflun skal krafa sóknaraðila tekin til úrlausnar.

Ef varnaraðili sækir þing við þingfestingu máls skulu hon- um fengin afrit af skjölum þess. Má veita honum frest til að kynna sér málsgögn og undirbúa málsvörn, en að öðru jöfnu skal síðan fara fram munnleg sókn og vörn í málinu. Að því búnu leysir dómari úr kröfu sóknaraðila með úrskurði.

Meðferð mála samkvæmt þessum kafla fer að öðru leyti eftir ákvæðum laga þessara um almenna meðferð mála eftir því sem við getur átt.

XXVIII. kafli. Dómsúrlausnir héraðsdóms. 180. gr. Hvorki má dæma ákærða fyrir aðra hegðun en þá sem í

ákæru greinir né heldur dæma aðrar kröfur á hendur honum. Þó má sakfella ákærða þótt aukaatriði brots, svo sem stað- ur og stund þess, séu ekki skýrt eða rétt greind, enda telji dómari að vörn hafi ekki verið áfátt þess vegna. Dómari get- ur gefið aðilum færi á að tjá sig um atriði að þessu leyti, ef þurfa þykir. Með sömu skilyrðum er dómara og rétt að dæma eftir öðrum refsiákvæðum en fram koma í ákæru, þó aldrei aðrar kröfur en þar greinir.

Að öðru leyti er dómari óbundinn af kröfum aðila og yfir- lýsingum nema þær varði kröfu skv. XXVI. kafla.

181. gr. Að því leyti sem önnur ákvæði laga þessara mæla ekki á

annan veg og ágreiningur er ekki uppi tekur dómari afstöðu til atriða sem varða rekstur máls með ákvörðun sem verður eftir atvikum skráð í þingbók. Slík atriði má einnig leiða til lykta með ákvörðun þótt ágreiningur sé um þau ef ágrein- ingsefnið sætir ekki kæru til [Landsréttar].1)

Dómari leysir úr öðrum atriðum sem ráða þarf til lykta fyrir dómtöku máls með úrskurði. Úrskurð skal kveða upp þegar í stað í þinghaldi ef unnt er en að öðrum kosti svo fljótt sem verða má.

Úrskurður skal vera skriflegur og skráður í þingbók eða dómabók. Dómari skal færa rök fyrir niðurstöðu sinni í úr- skurði án þess að greina frekar en þörf er á samhengis vegna frá atvikum máls eða rökstuðningi aðila. Niðurstaðan skal síðan dregin saman í úrskurðarorðum. [Í stað skriflegs úr- skurðar getur dómari látið við það sitja að skrá úrskurðar- orð í þingbók og færa munnlega rök fyrir niðurstöðu sinni nema úrskurður lúti að aðgerðum skv. IX.–XIV. kafla eða feli í sér lokaniðurstöðu máls. Ef úrskurður er kærður til æðra dóms skal dómari semja skriflegan úrskurð samkvæmt fram- ansögðu.]2)

Feli úrskurður í sér lokaniðurstöðu máls, sem rekið er eft- ir ákvæðum XXV. eða XXVII. kafla, skulu forsendur fylgja

úrskurðarorðum með sama hætti og ef um dóm væri að ræða. Ef máli er vísað frá dómi án kröfu eða það er fellt niður má dómari þó láta við það sitja að greina í forsendum úrskurðar frá þingfestingardegi máls, ákæru, ákærða, kröfum hans og rökstuðningi fyrir niðurstöðu.

Dómari getur breytt ákvörðun sinni um atriði varðandi rekstur máls, svo og úrskurði sem felur ekki í sér lokanið- urstöðu þess.

1) L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 78/2015, 25. gr.

182. gr. Þegar máli lýkur með viðurlagaákvörðun dómara skv. 2.

mgr. 163. gr. skal hún færð í þingbók og skýrlega tekið þar fram að með henni sé málinu lokið með því að ákærði sæti nánar tiltekinni refsingu og eftir atvikum öðrum refsikennd- um viðurlögum. Skal einnig tekið fram hvernig fari um sak- arkostnað.

Viðurlagaákvörðun hefur sömu áhrif og dómur, þar á meðal um ítrekunaráhrif ef því er að skipta.

183. gr. Nú verður mál ekki fellt niður, því vísað frá dómi eða lok-

ið með viðurlagaákvörðun skv. 182. gr. og skal þá saminn skriflegur dómur þar sem forsendur fylgja dómsorðum.

Í dómi skal greina dómstól og nafn dómara eða nöfn ef fleiri en einn dæma málið, svo og stað og stund dómsupp- kvaðningar. Síðan skal greina svo stutt og glöggt sem verða má:

a. nafn, kennitölu eða fæðingardag og heimili ákærða, b. hver hafi gefið út ákæru og hvenær og hvert meginefni

hennar sé, c. hvers krafist sé í málinu, d. hver málsatvik séu í aðalatriðum, [án þess að gerð sé

grein fyrir framburði ákærða og vitna nema að því leyti sem þörf krefur til úrlausnar máls],1)

e. [við hvaða sönnunargögn og rök ákæra sé studd og andsvör ákærða við þeim eftir því sem þörf krefur],1)

f. röksemdir dómara fyrir því hvað teljist sannað í málinu og með hverjum hætti,

g. röksemdir dómara fyrir niðurstöðu um önnur atriði máls, þar á meðal um viðurlög,

h. sakarkostnað. Í dómsorðum skulu niðurstöður máls dregnar saman. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. má í máli sem farið er með skv.

164. gr. láta nægja að skírskota í dómi til ákæru í stað þess að lýsa málsatvikum og geta þess jafnframt að málið sé dæmt samkvæmt skýlausri játningu ákærða. Það sama má gera í öðrum tilvikum þar sem ekki er deilt um verknaðarlýsingu í ákæru. Í máli sem farið er með skv. 161. gr. má á sama hátt í dómi skírskota til ákæru og taka fram að ákærði hafi ekki sótt þing þótt þess hafi verið getið í fyrirkalli að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum.

Samkvæmt kröfu ákæruvaldsins getur dómari ákveðið í dómi að ákvörðun um missi réttinda komi þegar til fram- kvæmda og án tillits til áfrýjunar ef það telst nauðsynlegt til verndar lífi, heilsu eða eignum einstakra manna eða almenn- ings, óviðurkvæmilegt má telja að dómfelldi haldi réttindum að gengnum dómi eða lög bjóða að áfrýjun fresti ekki áhrif- um réttindamissis. Á sama hátt má ákveða í dómi að áfrýj- un fresti ekki dómsákvæðum skv. 62., 63., 65. eða 67. gr. almennra hegningarlaga. Ákæruvaldið getur gert kröfu um dómsákvæði sem þessi allt fram að dómtöku máls.

1) L. 78/2015, 26. gr.

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 29

184. gr. Dómur skal kveðinn upp svo fljótt sem unnt er. Hafi dóm-

ur ekki verið kveðinn upp í máli sem var munnlega flutt innan fjögurra vikna frá því að það var dómtekið skal það flutt að nýju nema dómari og aðilar telji það óþarft.

Ef dómur er fjölskipaður og mál munnlega flutt skulu allir dómendur hafa hlýtt á flutning þess. Geti þeir ekki allir lokið dómi á mál skal nefna dómara í stað þess sem hefur misst við og endurtaka munnlegan flutning máls. Dómendur ræða um niðurstöðu máls fyrir luktum dyrum og ræður afl atkvæða úrslitum um hvert atriði. Nú verður dómari í minni hluta um eitthvert atriði og skal hann þá allt að einu taka þátt í álykt- un um önnur atriði, en ágreiningsatriðis skal þá getið í dómi. Formaður dóms stýrir atkvæðagreiðslu og sér um samningu dóms.

185. gr. Dómari tilkynnir aðilum hvar og hvenær dómur verði

kveðinn upp nema farið hafi verið með mál skv. 161. gr. Við uppkvaðningu skal lesa upp dómsorð á dómþingi. Eins skal farið að við uppkvaðningu úrskurðar sem felur í sér lokanið- urstöðu máls.

Endurrit af dómi eða úrskurði skal að öðru jöfnu vera til reiðu við uppkvaðningu hans.

Ef ákærði sækir þing við uppkvaðningu dóms telst dóm- urinn birtur fyrir honum, enda standi honum þegar til boða endurrit dómsins. [Þó nægir að lesa upp dómsorð ef mál hef- ur verið dæmt skv. 1. mgr. 164. gr. en þá skal endurrit dóms- ins liggja fyrir innan viku frá uppkvaðningu hans.]1) Nú verð- ur dómur ekki birtur á [framangreindan]1) hátt á dómþingi og ákærða eru þar gerð önnur eða þyngri viðurlög en sekt eða upptaka eigna sem svarar til áfrýjunarfjárhæðar í einkamáli og skal þá ákærandi birta honum dóm. Fer þá um birtingu dóms eftir því sem segir í 156. gr. Ella þarf ekki að birta dóm þótt ekki sé sótt þing af hálfu ákærða við uppkvaðningu hans.

Ekki má fullnægja ákvæði í dómi um refsingu og önnur viðurlög fyrr en afráðið er hvort honum verði áfrýjað, sbr. þó 5. mgr. 183. gr. Með sama skilorði frestar áfrýjun fullnustu dóms um refsingu og önnur viðurlög.

1) L. 78/2015, 27. gr.

186. gr. Dómur er bindandi um úrslit sakarefnis fyrir ákærða,

ákæruvaldið og aðra um þau atriði sem þar eru dæmd að efni til.

Krafa sem dæmd hefur verið að efni til verður ekki borin aftur undir sama eða hliðsettan dómstól framar en í lögum þessum segir. Nýju máli um slíka kröfu skal vísað frá dómi.

Dómur er bindandi fyrir dómara þegar hann hefur ver- ið kveðinn upp. Dómara er þó heimilt að leiðrétta ritvillur, reikningsskekkjur, nafnskekkjur og aðrar bersýnilegar villur í dómi, enda láti hann aðilum sem hafa fengið endurrit af dómi í té nýtt endurrit án tafar.

Dómur hefur fullt sönnunargildi um þau málsatvik sem í honum greinir þar til það gagnstæða er sannað.

5. þáttur. Endurupptaka og málskot. XXIX. kafli. Endurupptaka útivistarmáls í héraði.

187. gr. Nú hefur ákærði ekki sótt þing við þingfestingu máls fyr-

ir héraðsdómi og því hefur verið lokið með dómi samkvæmt því sem segir í 161. gr. Getur hann þá innan fjögurra vikna frá því að dómur var birtur fyrir honum eða dómur var kveð- inn upp ef birtingar var ekki þörf skv. 3. mgr. 185. gr. krafist

þess að málið verði tekið upp á ný fyrir héraðsdómi, enda berist beiðni hans um endurupptöku innan þess frests.

Ákærði getur ekki beiðst endurupptöku ef dómi hefur þegar verið áfrýjað . . . 1) af ákæruvaldsins hálfu að því er hann varðar.

Þegar frestur skv. 1. mgr. er liðinn verður mál ekki tekið upp á ný nema með ákvörðun [endurupptökunefndar sam- kvæmt lögum um dómstóla, sbr. XXXIV. kafla].1)

1) L. 49/2016, 54. gr.

188. gr. Skriflegri beiðni ákærða um endurupptöku skal beint til

þess dómstóls þar sem útivistardómur gekk. Í henni skal skýrlega greint frá því hvaða mál hún varðar, hverra breyt- inga ákærði krefjist á fyrri málsúrslitum og á hvaða sönnun- argögnum, rökum og réttarreglum sú krafa sé byggð.

Ef beiðni er ófullnægjandi, hún berst röngum dómstóli eða dómari telur að skilyrðum 187. gr. sé ekki fullnægt synjar hann þegar í stað um endurupptöku, en úrskurður skal kveð- inn upp um synjunina ef krafist er. Að öðrum kosti boðar dómari ákæranda og ákærða fyrir dóm til að taka beiðnina fyrir.

Sæki ákærði ekki þing þegar beiðni hans er tekin fyrir telst hún fallin niður.

Haldi ákærandi uppi andmælum gegn beiðni um endur- upptöku skal leyst úr þeim með úrskurði áður en lengra er haldið. Að öðrum kosti tekur dómari málið upp á ný með bókun í þingbók.

189. gr. Nú hefur mál verið endurupptekið og falla þá niður rétt-

aráhrif dóms þar til því er lokið á ný í héraði. Frá þessu getur dómari þó vikið samkvæmt kröfu ákæranda, enda standi svo á sem um ræðir í 5. mgr. 183. gr.

Upphaflegum dómi í málinu verður ekki áfrýjað til [Landsréttar]1) eftir að það er endurupptekið nema endur- upptöku ljúki með því að dómurinn standi óhaggaður skv. 2. mgr. 190. gr. og ákæruvaldið áfrýi.

1) L. 67/2018, 1. gr.

190. gr. Þegar endurupptaka er ráðin verður farið með mál eftir

almennum reglum laga þessara frá því stigi þegar það var upphaflega þingfest.

Hverfi ákærði frá kröfu um endurupptöku eða falli þing- sókn niður af hans hálfu á ný án þess að hann hafi lagt fram greinargerð skv. 1. mgr. 165. gr. lýkur henni með bókun dóm- ara í þingbók um að upphaflegur dómur standi óhaggaður nema ákærandi krefjist þess að málið sæti frekari meðferð.

Mál verður ekki endurupptekið öðru sinni eftir ákvæðum þessa kafla.

191. gr. Nú hefur mál verið endurupptekið án þess að því hafi ver-

ið lokið samkvæmt því sem segir í 2. mgr. 190. gr. eða að það hafi verið fellt niður. Skal þá dómari ákveða ákærða viðurlög skv. 182. gr. eða leggja á það dóm á nýjan leik nema því verði vísað frá dómi með úrskurði. Fellur þá fyrri dómur sjálfkrafa úr gildi.

Þegar máli lýkur samkvæmt því sem segir í 1. mgr. skal dómari kveða í einu lagi á um sakarkostnað vegna málsins í heild.

Áfrýja má dómi til [Landsréttar]1) eftir endurupptöku máls samkvæmt almennum reglum laga þessara.

1) L. 67/2018, 1. gr.

30 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

XXX. kafli. [Kæra til Landsréttar.]1) 1)

L. 49/2016, 57. gr.

192. gr. Úrskurðir héraðsdómara um eftirfarandi sæta kæru til

[Landsréttar],1) sbr. þó 2. mgr.: a. hvort hann víki sæti í máli, b. hvort loka eigi þinghaldi eða leggja bann við opinberri

frásögn af því sem þar fer fram, c. synjun um að láta af hendi afrit af gögnum eða veita

leyfi til að hlýða á upptöku úr þinghaldi, d. atriði varðandi réttindi sakbornings, verjanda hans eða

lögmanns við rannsókn máls, [svo og skipun verjanda eða synjun um skipun hans],2)

e. atriði varðandi réttindi brotaþola eða réttargæslumanns hans við rannsókn máls, [svo og skipun réttargæslumanns eða synjun um skipun hans],2)

f. atriði varðandi skýrslutöku af sakborningi, brotaþola eða öðrum vitnum við rannsókn máls,

g. heimild til að leggja hald á muni eða hvort því verði aflétt,

h. heimild til leitar og annarra aðgerða skv. X. kafla, svo og framkvæmd þeirra aðgerða,

i. heimild til aðgerða skv. XI. kafla, j. heimild til réttarkrufningar, k. kyrrsetningu á eignum, l. gæsluvarðhald og aðrar ráðstafanir skv. XIV. kafla, þar

á meðal tilhögun gæsluvarðhaldsvistar, m. synjun um að fara með rannsóknarmál án þess sakborn-

ingur eða annar sá sem það varðar verði kvaddur fyrir dóm, n. atriði varðandi skýrslugjöf ákærða eða vitnis fyrir

dómi, o. atriði varðandi matsgerðir, p. heimild til að leggja fram sönnunargagn, skyldu til að

láta það af hendi til framlagningar í máli eða hald til að fylgja þeirri skyldu eftir,

q. synjun um heimild til að afla sönnunargagna fyrir öðr- um dómi,

r. synjun um endurupptöku máls sem lokið hefur verið með áritun sektarboðs,

s. að frestur skuli veittur, t. að máli sé vísað frá dómi, u. að kröfu skv. XXVI. kafla sé vísað frá dómi, v. hvort mál verði fellt niður, w. málefni sem sæta meðferð skv. XXVII. kafla, x. synjun um endurupptöku dæmds máls, y. réttarfarssekt,

[z. sölu haldlagðra og kyrrsettra eigna og muna].3)

Eftir að aðalmeðferð máls er hafin verður úrskurði héraðs- dómara ekki skotið til æðra dóms nema úrskurður sé um:

a. frávísun máls, niðurfellingu þess eða frestun, b. þvingunarráðstafanir skv. IX., X., XI., XII. og XIV.

kafla, c. hvort vitni eða matsmaður verði leiddur fyrir dóm,

spurning verði lögð fyrir hann eða honum gert að svara henni, d. atriði sem varða annars hagsmuni manns sem ekki á

aðild að málinu. Úrskurður héraðsdómara verður ekki kærður ef athöfn

sem þar er kveðið á um hefur þegar farið fram eða ástand sem leitt hefur af úrskurðinum er þegar um garð gengið.

Nú hefur úrskurður verið kærður og svo fer sem í 3. mgr. segir eftir þann tíma en áður en dómur er felldur í kærumál- inu og skal þá vísa því frá [Landsrétti].1)

1) L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 52/2010, 5. gr. 3) L. 118/2019, 2. gr.

193. gr. Héraðsdómari leiðbeinir þeim sem ekki nýtur aðstoðar

lögmanns um rétt til að kæra úrskurð og um kærufrest. Nú vill maður kæra úrskurð og skal hann þá lýsa því yfir

innan þriggja sólarhringa frá því að hann fékk vitneskju um úrskurðinn. Sé kæru lýst yfir á dómþingi má kærandi láta við það sitja að bókað verði um hana í þingbók, þar á meðal í hvaða skyni kært er. Að öðrum kosti skal hann afhenda hér- aðsdómara skriflega kæru þar sem greint skal frá því hvaða úrskurður sé kærður, kröfu um breytingu á honum og ástæð- ur sem kæra er reist á. Skriflegri kæru skulu fylgja ný gögn sem kærandi hyggst bera fyrir sig, enda sé í kæru getið hvað sanna eigi með þeim.

Sé ekki kært innan þess frests sem settur er í 2. mgr. get- ur sá sem kæra vill leitað eftir leyfi [Landsréttar]1) til þess, en afhenda skal hann héraðsdómara skriflega kæru áður en það verður gert. Um þá leyfisbeiðni og meðferð hennar fer samkvæmt því sem segir í 200. gr.

Kæra úrskurðar um aðgerðir skv. IX., X., XI., XII. og XIV. kafla frestar ekki framkvæmdum í máli. Þegar öðruvísi stendur á frestar kæra framkvæmdum við rannsókn eða máls- meðferð nema héraðsdómari fallist á kröfu um annað.

1) L. 49/2016, 44. gr.

194. gr. [Ef héraðsdómari hefur ekki samið úrskurð skriflega, sbr.

3. mgr. 181. gr., skal hann gera það innan viku eftir að hann fær vitneskju um kæru. Telji dómari annmarka vera á kæru getur hann gefið kæranda skamman frest til að lag- færa hana.]1) Að öðrum kosti sendir héraðsdómari kæruna til [Landsréttar]2) svo fljótt sem verða má ásamt endurrit- um úr þingbók og öðrum gögnum málsins sem varða kæru- efnið nema hann telji rétt að fella sjálfur úrskurð sinn úr gildi. Gögnin sendir héraðsdómari [á því formi eða í þeim fjölda eintaka sem Landsréttur ákveður]3) ásamt athugasemd- um sínum ef hann vill.

Nú hefur kæru ekki verið lýst yfir í þinghaldi að viðstödd- um gagnaðila kæranda og skal héraðsdómari þá tilkynna gagnaðilanum tafarlaust um hana, enda hafi ekki verið far- ið með málið án þess að honum væri kunngert um það. [Ef skipaður hefur verið lögmaður til að gæta hagsmuna gagn- aðilans skv. 2. mgr. 84. gr. skal þó tilkynna þeim lögmanni um kæruna og kemur hann fram fyrir hönd gagnaðilans við meðferð kærumálsins.]4) Hafi héraðsdómari ekki þegar sent [Landsrétti]2) kærumálið getur hann um leið gefið gagnaðil- anum kost á að afhenda sér skriflega greinargerð sem geymi kröfur hans og röksemdir. Heimilt er að láta skrifleg gögn fylgja þeirri greinargerð, enda sé þess getið þar hvað sanna eigi með þeim. Hafi greinargerð ekki verið afhent héraðs- dómara áður en hann sendir [Landsrétti]2) málsgögnin skal henni beint til réttarins.

Aðilar kærumáls geta hvor eða hver fyrir sitt leyti sent [Landsrétti]5) greinargerð með því efni sem greinir í 2. mgr. ásamt nýjum gögnum innan sólarhrings eftir að málið hefur borist réttinum. Aðili skal samhliða því senda gagnaðila sín- um afrit af greinargerðinni [og nýjum gögnum],5) enda hafi ekki verið farið með málið fyrir héraðsdómi án þess að hon- um væri kunngert það.

1) L. 78/2015, 28. gr. 2) L. 49/2016, 44. gr. 3) L. 76/2019, 25. gr. 4) L. 103/2016,

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 31

4. gr. 5) L. 49/2016, 55. gr.

195. gr. Að liðnum fresti skv. 3. mgr. 194. gr. eða þegar greinar-

gerðir hafa borist [Landsrétti]1) getur hann lagt [úrskurð]1) á kærumál. Tekið skal tillit til greinargerða eða gagna sem ber- ast eftir að fresturinn er liðinn svo framarlega sem málinu er þá ekki lokið.

[Landsréttur]1) leggur [úrskurð]1) á kærumál á grundvelli skriflegra gagna en getur þó ákveðið að það verði munnlega flutt. [Úrskurður]1) skal kveðinn upp svo fljótt sem kostur er.

[Landsréttur]1) skal tilkynna héraðsdómara og aðilum kærumáls sem hafa látið það til sín taka fyrir réttinum um úrslit þess.

Að öðru leyti en að framan greinir verður reglum um áfrýjunarmál beitt um kærumál eftir því sem átt getur við.

1) L. 49/2016, 56. gr.

XXXI. kafli. [Áfrýjun til Landsréttar.]1) 1) L. 49/2016, 67. gr.

196. gr. Með þeim takmörkunum sem leiðir af öðrum ákvæðum

laga þessara er heimilt að áfrýja héraðsdómi til [Landsrétt- ar]1) til þess að fá:

a. endurskoðun á ákvörðun viðurlaga, b. endurskoðun á niðurstöðum sem byggðar eru á skýr-

ingu eða beitingu réttarreglna, c. endurskoðun á niðurstöðum sem byggðar eru á mati á

sönnunargildi [gagna eða]2) munnlegs framburðar fyrir hér- aðsdómi,

d. ómerkingu á dómi og heimvísun máls, e. frávísun máls frá héraðsdómi. Við áfrýjun dóms er jafnframt heimilt að leita endurskoð-

unar á úrskurðum sem kveðnir hafa verið upp og ákvörðun- um sem teknar hafa verið undir rekstri máls í héraði.

Nú er héraðsdómi áfrýjað í einhverjum þeim tilgangi sem um ræðir í 1. mgr. og er þá um leið heimilt að leita endurskoð- unar á niðurstöðum hans um kröfu skv. XXVI. kafla, enda hafi verið leyst úr henni að efni til og ákærði eða kröfuhafi hafi krafist endurskoðunar fyrir sitt leyti. Verði héraðsdómi ekki áfrýjað samkvæmt framansögðu er ákærða og kröfuhafa hvorum um sig heimilt að áfrýja sérstaklega úrlausn dómsins um kröfuna að efni til en um það málskot fer eftir reglum um áfrýjun dóms í einkamáli.

1) L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 49/2016, 58. gr.

197. gr. Ríkissaksóknari getur áfrýjað héraðsdómi ef hann telur

ákærða hafa ranglega verið sýknaðan eða refsingu eða önn- ur viðurlög ákveðin að mun of væg, sbr. þó 1. mgr. 198. gr. Hann getur einnig áfrýjað dómi ákærða til hagsbóta.

Ákærði sem sakfelldur hefur verið í héraði getur áfrýjað héraðsdómi, sbr. þó 1. mgr. 198. gr. Nú er ákærði látinn og getur þá maki hans, börn, aðrir niðjar, foreldrar eða systkini áfrýjað dómi fyrir hans hönd.

198. gr. Áfellisdómi verður aðeins áfrýjað ef ákærði hefur verið

dæmdur í fangelsi ellegar til að greiða sekt eða sæta upptöku eigna sem nær áfrýjunarfjárhæð í einkamáli. Ríkissaksókn- ara er ávallt heimilt að áfrýja dómi um sýknu ákærða.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má áfrýja héraðsdómi með leyfi [Landsréttar]1) sem veita má ef úrslit málsins hafa verulegt almennt gildi eða varða mikilvæga hagsmuni ellegar ekki er

útilokað samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að dómi kunni að verða breytt svo að einhverju nemi.

1) L. 49/2016, 44. gr.

199. gr. Ef ákærði er staddur við uppkvaðningu héraðsdóms skal

dómari kynna honum rétt hans til áfrýjunar og frest til að lýsa henni yfir. Þegar annars er þörf á að birta dóm skv. 3. mgr. 185. gr. skal sá sem birtir kynna ákærða þetta. Skal getið að þessa hafi verið gætt með bókun í þingbók eða í birtingar- vottorði.

Ákærði skal lýsa yfir áfrýjun héraðsdóms í bréflegri til- kynningu sem berast verður ríkissaksóknara innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, hafi birtingar verið þörf skv. 3. mgr. 185. gr., en ella innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu hans. Í tilkynningunni skal tekið nákvæmlega fram í hverju skyni áfrýjað sé og hverjar dómkröfur ákærða séu, þar á með- al varðandi kröfur skv. XXVI. kafla ef því er að skipta, svo og hvern hann vill fá skipaðan sem verjanda fyrir [Landsrétti]1)

eða hvort hann óskar eftir að flytja mál sitt sjálfur. Ríkissak- sóknara er skylt að veita ákærða leiðbeiningar um gerð til- kynningar ef eftir því er leitað en jafnframt ber honum að benda á hvernig bæta megi úr annmörkum á efni hennar ef um þá er að ræða. Þegar tilkynning hefur borist frá ákærða innan framangreinds frests telst héraðsdómi áfrýjað af hans hálfu.

Nú hyggst ríkissaksóknari áfrýja héraðsdómi og skal hann þá gefa út áfrýjunarstefnu innan fjögurra vikna frá uppkvaðn- ingu dómsins.

Hvort sem ákærði eða ríkissaksóknari áfrýjar héraðsdómi getur gagnaðili, þar á meðal kröfuhafi ef krafa skv. XXVI. kafla hefur verið dæmd að efni til, ávallt gert kröfu fyrir [Landsrétti]1) um breytingar á niðurstöðum dómsins án þess að áfrýja fyrir sitt leyti, enda komi sú krafa fram í greinargerð hans skv. 203. gr.

Hafi hvorki ákærði né ríkissaksóknari áfrýjað innan þeirra fresta sem mælt er fyrir um í 2. og 3. mgr. skal litið svo á að héraðsdómi sé unað af beggja hálfu. Þrátt fyrir það getur [Landsréttur]1) orðið við umsókn um leyfi til að áfrýja héraðs- dómi sem berst næstu þrjá mánuði eftir lok áfrýjunarfrests, enda sé fullnægt skilyrðum 2. mgr. 198. gr. og dráttur á áfrýj- un nægilega réttlættur. Beiðni um slíkt áfrýjunarleyfi frestar ekki fullnustu héraðsdóms um refsingu og önnur viðurlög.

1) L. 49/2016, 44. gr.

200. gr. Nú vill ákærði leita leyfis [Landsréttar]1) til að áfrýja hér-

aðsdómi og skal hann þá senda ríkissaksóknara tilkynningu skv. 2. mgr. 199. gr. ásamt skriflegri umsókn um leyfið þar sem rökstutt skal ítarlega hvernig ákærði telur að skilyrðum fyrir áfrýjunarleyfi sé fullnægt. Leiti ákærði áfrýjunarleyfis skv. 2. mgr. 198. gr. verður umsókn hans ásamt tilkynningu um áfrýjun að berast ríkissaksóknara innan áfrýjunarfrests sem þar með telst rofinn.

Leiti ríkissaksóknari áfrýjunarleyfis skal hann beina til [Landsréttar]1) skriflegri umsókn um það. Skal hún vera sama efnis og um ræðir í 1. mgr. Sé leitað áfrýjunarleyfis skv. 2. mgr. 198. gr. verður umsóknin að berast réttinum innan áfrýj- unarfrests sem þar með telst rofinn.

[Landsréttur]1) gefur öðrum málsaðilum kost á að tjá sig um umsókn um áfrýjunarleyfi. Þegar meðferð umsóknar er lokið tilkynnir rétturinn aðilunum skriflega um niðurstöðuna. Sé leyfið veitt verður ekki krafist rökstuðnings fyrir þeirri

32 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

ákvörðun en sé umsókn hafnað skal greint frá ástæðum þess í tilkynningu til aðilanna.

1) L. 49/2016, 44. gr.

201. gr. Ríkissaksóknari er sóknaraðili máls fyrir [Landsrétti],1)

hvort sem hann hefur sjálfur áfrýjað héraðsdómi eða ákærði. Þegar áfrýjun er ráðin gefur ríkissaksóknari út áfrýjunar-

stefnu þar sem skal greina: a. heiti og númer sem málið bar fyrir héraðsdómi, fyrir

hverjum héraðsdómstóli var leyst úr því og hvenær dómur var kveðinn upp,

b. nafn ákærða, kennitölu eða fæðingardag og heimili, svo og hver komi fram fyrir hans hönd við áfrýjun skv. 2. mgr. 197. gr. ef því er að skipta,

c. hver áfrýi héraðsdómi og nákvæmlega í hverju skyni það sé gert,

d. ef því er að skipta hvert sé nafn, kennitala og heimili þess sem haft hefur uppi kröfu skv. XXVI. kafla sem dæmd hefur verið að efni til fyrir héraðsdómi,

e. að málið verði tekið til meðferðar fyrir [Landsrétti]1) í samræmi við tilkynningar sem aðilunum verði á síðari stig- um sendar þaðan.

Hafi ríkissaksóknari áfrýjað héraðsdómi skal hann svo fljótt sem verða má fá áfrýjunarstefnu birta fyrir ákærða. Skal ákærða um leið gefinn kostur á að bera fram ósk um verjanda eða greina ella frá ósk sinni um að fá að flytja mál sitt sjálfur.

Hafi krafa skv. XXVI. kafla verið dæmd að efni til í héraði skal ríkissaksóknari láta birta áfrýjunarstefnu fyrir þeim sem með kröfuna fer. Sé um brotaþola að ræða skal honum um leið gefinn kostur á að bera fram ósk um réttargæslumann þá þegar eða með tilkynningu til [Landsréttar].1)

Að því búnu sem að framan greinir sendir ríkissaksókn- ari [Landsrétti]1) áfrýjunarstefnuna með sönnun fyrir birtingu hennar ásamt endurriti af héraðsdómi og tilkynningu ákærða um áfrýjun ef því er að skipta. [Landsréttur]1) skipar ákærða verjanda nema hann hafi óskað eftir að flytja mál sitt sjálf- ur, enda sé hann hæfur til þess að mati réttarins. Ef því er að skipta skipar [Landsréttur]1) enn fremur brotaþola rétt- argæslumann ef skilyrði eru til þess. Að því búnu tilkynnir [Landsréttur]1) eftir því sem við á ríkissaksóknara, ákærða, verjanda, brotaþola eða réttargæslumanni að málið hafi borist réttinum og hvaða auðkenni það hefur hlotið, svo og að til- kynnt verði frekar á síðara stigi um fresti hvers um sig til að leggja fram greinargerð í málinu af sinni hálfu.

1) L. 49/2016, 44. gr.

202. gr. Þegar áfrýjun er ráðin skal héraðsdómstóllinn, þar sem

leyst var úr máli, verða við beiðni ríkissaksóknara um að af- henda honum dómsgerðir.

[Þegar ríkissaksóknara hafa borist dómsgerðir skv. 1. mgr. og verjandi hefur verið skipaður skal ríkissaksóknari í sam- ráði við verjanda búa til málsgögn en til þeirra teljast endur- rit, sem og [hljóðupptökur]1) af munnlegum framburði fyrir héraðsdómi og afrit þeirra málsskjala sem aðilarnir telja þörf á við úrlausn málsins eins og áfrýjun er háttað. [Ríkissak- sóknari skal afhenda verjanda málsgögn.]1) Landsrétti skulu síðan afhent málsgögn í þeim fjölda eintaka sem hann tel- ur þörf á, svo og dómsgerðir. [Héraðsdómstóll skal afhenda Landsrétti hljóð- og myndupptökur af munnlegum framburði í málinu.]1)]2)

[Landsréttur]3) setur nánari reglur4) um frágang málsgagna og dómsgerða.

1) L. 76/2019, 26. gr. 2) L. 49/2016, 59. gr. 3) L. 53/2017, 3. gr. 4) Rgl. 1/2018.

203. gr. Þegar málsgögn hafa verið afhent skal [Landsréttur]1)

veita þeim aðila sem áfrýjað hefur tiltekinn frest til að skila skriflegri greinargerð og gögnum sem hann kann enn að telja vanta og hann hyggst byggja mál sitt á fyrir [Landsrétti].1)

Þegar greinargerð og gögn hafa borist skal gagnaðila veittur frestur til að skila greinargerð og gögnum af sinni hálfu. Ef því er að skipta skal að lokum veita kröfuhafa skv. XXVI. kafla frest til að skila greinargerð og gögnum. Þegar greinar- gerð er skilað til [Landsréttar]1) skal sá sem það gerir senda öðrum þeim sem að framan er getið afrit af henni, svo og af gögnum sem fylgja henni.

Í greinargerð málsaðila skal koma fram: a. hvers krafist sé fyrir [Landsrétti],1)

b. hvort hann felli sig við lýsingu málsatvika í héraðs- dómi og röksemdir fyrir niðurstöðu en ef svo er ekki skal getið á stuttan og gagnorðan hátt í hverjum atriðum hann sé ósammála og hvernig hann rökstyðji í meginatriðum kröfur um breytingar á niðurstöðum héraðsdóms,

c. athugasemdir við málatilbúnað gagnaðila ef þeirra er þörf,

d. hvort hann hyggist enn leggja ný gögn fram fyrir [Landsrétti]1) á síðara stigi og hver þau séu þá í meginatrið- um,

[e. hvort hann telji nauðsynlegt að afla munnlegra skýrslna eða viðbótarskýrslna fyrir Landsrétti, og þá hverra, ásamt rökstuðningi þar að lútandi, þar á meðal fyrir því hvers vegna ekki sé nægilegt að byggja á upptökum, sbr. 3. mgr. 13. gr.; jafnframt hvaða upptökur af skýrslum fyrir héraðsdómi hann telur nauðsynlegt að spila við aðalmeðferð málsins fyr- ir Landsrétti].2)

Málsaðilum er heimilt að leggja frekari gögn fyrir [Lands- rétt]1) en þau skulu þá afhent réttinum og kynnt gagnaðila ekki síðar en einni viku fyrir flutning máls. Frá þessu getur [Landsréttur]1) vikið ef sérstaklega stendur á, enda séu að- ilar á það sáttir að ný gögn komi fram með skemmri fyr- irvara. Ríkissaksóknara er þó jafnan heimilt að leggja fram nýtt sakavottorð ákærða við upphaf málflutnings.

1) L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 49/2016, 60. gr.

204. gr. [Ef höfð er uppi í máli fyrir Landsrétti krafa um ómerk-

ingu héraðsdóms, frávísun frá héraðsdómi, frávísun frá Landsrétti eða niðurfellingu máls, eða Landsréttur telur að vera kunni á máli ágallar sem geti leitt til sömu niðurstöðu þótt slík krafa sé ekki gerð, skal Landsréttur að jafnaði inn- an mánaðar frá því að máli er úthlutað láta flytja mál um formsatriði þess áður en það er tekið til frekari meðferðar að efni til. Dómsformaður getur ákveðið að mál verði flutt síðar um formsatriði sérstaklega eða í einu lagi um formsatriði og efni. Landsréttur getur þó hvenær sem er kveðið upp dóm um frávísun máls frá réttinum vegna galla á málatilbúnaði þar fyrir dómi án þess að málflutningur fari áður fram. Á sama hátt getur Landsréttur hvenær sem er, án þess að málflutn- ingur fari áður fram, ómerkt héraðsdóm ef verulegir gallar hafa verið á meðferð máls í héraði og vísað því frá héraðs- dómi ef undirbúningi undir málshöfðun hefur verið áfátt í meginatriðum.]1)

Nú er málatilbúnaði áfátt, án þess að nauðsynlegt þyki þó að vísa máli frá eða ómerkja héraðsdóm, og getur þá [Lands-

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 33

réttur]2) beint því til aðila að afla gagna um tiltekin atriði eða grípa til annarra aðgerða til að ráða bót á því sem áfátt er.

[Ef tilefni er til tekur Landsréttur mál fyrir á dómþingi til að ráða til lykta atriðum varðandi rekstur þess, þ.m.t. gagna- öflun og framlagningu gagna, hvaða skýrslutökur verði heim- ilaðar fyrir Landsrétti og hvaða upptökur verði spilaðar við aðalmeðferð. Skulu aðilar kvaddir fyrir dóm með hæfileg- um fyrirvara í þessu skyni. Dómsformaður tekur að jafnaði einn fyrir mál í þessu skyni og tekur einn ákvarðanir varð- andi rekstur þess sem ekki eru kæranlegar.]1)

1) L. 49/2016, 61. gr. 2) L. 49/2016, 44. gr.

205. gr. Mál skal að jafnaði flutt munnlega fyrir [Landsrétti].1)

Rétturinn getur þó ákveðið að mál verði skriflega flutt ef sérstakar ástæður mæla með því. Hann getur einnig ákveðið að mál verði dómtekið án sérstaks málflutnings ef samhljóða óskir koma fram um það frá aðilum eða dómi er aðeins áfrýj- að um ákvörðun viðurlaga.

[Nú er ákveðinn munnlegur flutningur og skulu þá aðilar tilkynna Landsrétti, að fram komnum greinargerðum þeirra beggja eða allra, hve langan tíma þeir áætli hvor eða hver fyrir sitt leyti að þurfi til að flytja málflutningsræðu og jafn- framt til að taka þær skýrslur og spila þær upptökur sem hvor eða hver um sig hefur óskað eftir fyrir Landsrétti og rétturinn hefur heimilað, sbr. 3. mgr. 204. gr. Landsréttur ákveður hve- nær munnlegur málflutningur fer fram og skal tilkynna það aðilum með hæfilegum fyrirvara. Þá skal jafnframt tilkynna aðilum ákvarðanir Landsréttar um hvort og þá hvaða skýrslur verði teknar fyrir dóminum eða spilaðar þar, hafi Landsrétt- ur ekki þegar ráðið því til lykta, sbr. 3. mgr. 204. gr. Um tilhögun skýrslutöku fer að öðru leyti eftir ákvæðum XVII. og XVIII. kafla. Um leið skal aðilum tilkynnt hve langan tíma þeir fái til að flytja málflutningsræður ef ekki er fall- ist á óskir þeirra í þeim efnum. Landsréttur getur við sama tækifæri beint til aðila að þeir afhendi hvor eða hver um sig með tilteknum fyrirvara stutt yfirlit um atvik máls í tímaröð, helstu röksemdir sínar og tilvísanir í fræðirit og dóma sem þeir hyggjast styðjast við í málflutningi.]2)

. . . 2) 1)

L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 49/2016, 62. gr.

206. gr. [Við upphaf aðalmeðferðar á dómþingi skal gerð grein

fyrir dómsorði héraðsdóms og áfrýjunarstefnu að því leyti sem dómsformaður telur þess þörf til skýringar á málflutn- ingi. Við aðalmeðferð máls skulu að jafnaði fara fram í einni lotu skýrslutökur og munnlegur flutningur. Fyrst er horft og hlustað á upptökur af skýrslum af ákærðu og vitnum fyrir héraðsdómi að því leyti sem Landsréttur hefur þegar ákveð- ið. Því næst eru teknar skýrslur af ákærðu og vitnum sem ekki gáfu skýrslu fyrir héraðsdómi eða málsaðilar hafa óskað eftir að gefi viðbótarskýrslu og Landsréttur telur að geti haft þýð- ingu við úrlausn málsins. Verður svo flutt frumræða af hálfu ákæruvalds, síðan ef því er að skipta af hálfu þess sem gerir kröfu skv. XXVI. kafla og loks af hálfu ákærða nema dóms- formaður hafi ákveðið aðra röð og aðilum verið tilkynnt það með hæfilegum fyrirvara fyrir málflutning. Eftir frumræður eiga aðilar kost á að færa fram stutt andsvör í sömu röð. Flytji verjandi málið af hálfu ákærða getur dómsformaður heim- ilað ákærða sjálfum að koma að stuttum athugasemdum að loknum andsvörum verjanda. Jafnan skal gengið á vettvang í upphafi aðalmeðferðar ef þurfa þykir.]1)

Í málflutningi skal gera grein fyrir þeim atriðum í niður-

stöðum héraðsdóms sem leitað er breytinga á, kröfum í þeim efnum og röksemdum fyrir þeim. Skal forðast málalengingar og málflutningi beint að þeim atriðum einum ásamt nauðsyn- legri frásögn af öðru sem þarf samhengis vegna.

[Dómsformaður]1) stýrir þinghaldi. Hann getur krafist að málflytjendur haldi sér við efnið og láti vera að fjalla um þá þætti máls sem ekki eru til endurskoðunar eða ástæðulaust er af öðrum sökum að gera frekari grein fyrir. [Dómsformað- ur]1) getur stöðvað málflutning ef ræður verða langar úr hófi fram eða sett honum tímatakmörk og við þau bundið enda á málflutning.

Að loknum málflutningi tekur [Landsréttur]2) málið til dóms.

1) L. 49/2016, 63. gr. 2) L. 49/2016, 44. gr.

207. gr. [Að því leyti sem önnur ákvæði laga þessara mæla ekki

á annan veg og ágreiningur er ekki uppi tekur Landsréttur afstöðu til atriða sem varða rekstur máls með ákvörðun. Slík atriði má einnig leiða til lykta með ákvörðun þótt ágreiningur sé um þau ef ágreiningsefnið sætir ekki kæru til Hæstaréttar eða úrlausn um það leiðir ekki til loka máls fyrir dóminum en í slíkum tilvikum skal kveðinn upp rökstuddur úrskurður. Ákvörðun verður ekki rökstudd sérstaklega en um efni henn- ar skal getið í þingbók eftir þörfum.

Landsréttur kveður upp [úrskurð]1) í kærumáli. Feli úr- lausn Landsréttar í áfrýjunarmáli í sér lyktir máls án þess að það hafi verið flutt um efni skal kveðinn upp úrskurður. Úrskurð skal kveða upp svo fljótt sem verða má. Ef mál er aðeins flutt um efni eða samhliða um form og efni kveður Landsréttur upp dóm hver svo sem niðurstaða málsins er.

Dómar og úrskurðir Landsréttar skulu rökstuddir. Ef mál er fellt niður eða því er vísað frá Landsrétti skal þó aðeins getið um ástæður þess í úrskurði eða dómi, svo og um sak- arkostnað ef því er að skipta. Sama gildir ef héraðsdómur er ómerktur og máli vísað heim eða því er vísað frá héraðs- dómi. Sé í dómi kveðið á um önnur málalok en að framan getur skal greina þar frá kröfum aðila eftir því sem þörf er á svo að niðurstaða verði skýr. Að því leyti sem greinargerð um málsatvik er ábótavant í héraðsdómi skal bætt úr því í dómi Landsréttar. Ef og að því leyti sem niðurstöðu héraðsdóms er breytt skal það rökstutt í dómi Landsréttar. Fallist Landsrétt- ur á niðurstöðu héraðsdóms en ekki á röksemdir fyrir henni greinir hann frá rökum sínum eftir því sem þörf þykir.]2)

Um [dóma og úrskurði Landsréttar]2) gilda að öðru leyti ákvæði 183. gr. eftir því sem getur átt við.

1) L. 117/2016, 75. gr. 2) L. 49/2016, 64. gr.

208. gr. Refsing og önnur viðurlög á hendur ákærða verða ekki

þyngd með dómi [Landsréttar]1) nema þess hafi verið krafist af hálfu ákæruvalds. Ákvæðum héraðsdóms um kröfu skv. XXVI. kafla verður heldur ekki breytt nema þess hafi verið krafist af þeim sem breyting er til hagsbóta, hvort sem það er ákærði eða kröfuhafi. Að öðru leyti getur [Landsréttur]1)

ávallt breytt dómi til hagsbóta ákærða þótt hann hafi ekki gert kröfu um það.

. . . 2) 1)

L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 49/2016, 65. gr.

209. gr. Dóm skal kveða upp svo fljótt sem unnt er eftir að mál

er dómtekið og aldrei síðar en þegar fjórar vikur eru liðnar frá því. Verði því ekki komið við og hafi mál verið munnlega

34 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

flutt skal endurtaka málflutning að því leyti sem [Landsrétti]1)

þykir nauðsynlegt. [Strax eftir dómtöku máls skulu dómarar ræða með sér

fyrir luktum dyrum röksemdir og niðurstöðu dóms. Dómsfor- maður er frummælandi á þeim fundi, stýrir honum, ber fram spurningar, stuðlar að því að álit hvers dómara komi þar sem skýrast fram og telur atkvæði þeirra. Afl atkvæða ræður úr- slitum. Að lokinni umræðu semur dómsformaður atkvæði að dómi. Greinist dómarar í meiri og minni hluta semur dóms- formaður atkvæði fyrir þann hluta sem hann heyrir til, en hin- ir dómararnir ákveða hver þeirra semji atkvæði þeirra, myndi þeir meiri hluta. Landsréttardómari sem myndar meiri hluta með sérfróðum meðdómsmanni semur þó atkvæði. Dómari, sem greiðir atkvæði með ómerkingu héraðsdóms eða frávís- un máls og verður í minni hluta, verður einnig að greiða at- kvæði um efni máls. Dómarar ganga í sameiningu frá dómi, með eða án sératkvæða.]2)

Við uppkvaðningu dóms skal lesa upp dómsorð í heyranda hljóði á dómþingi eftir því sem þörf þykir. Ef sératkvæði er í dómi skal þess einnig getið.

1) L. 49/2016, 44. gr. 2) L. 49/2016, 66. gr.

210. gr. Eftir því sem átt getur við fer að öðru leyti um meðferð

og úrlausn sakamála fyrir [Landsrétti]1) eftir ákvæðum þess- ara laga um meðferð máls í héraði.

1) L. 49/2016, 44. gr.

[XXXII. kafli. Kæra til Hæstaréttar.]1) 1)

L. 49/2016, 68. gr.

[211. gr. [Dómsathafnir]1) Landsréttar um eftirfarandi sæta kæru til

Hæstaréttar: a. frávísun frá héraðsdómi eða Landsrétti eða niðurfell-

ingu máls að hluta eða að öllu leyti fyrir héraðsdómi eða Landsrétti [ef ekki er um að ræða staðfestingu á slíkri dóms- athöfn héraðsdóms],1)

b. hvort dómari Landsréttar víki sæti í máli, c. [úrskurð um]1) réttarfarssekt fyrir Landsrétti, d. skyldu vitnis skv. 119. gr. til að svara spurningu. Hæstiréttur getur þó á hvaða stigi máls sem er synjað um

að taka kæruefni til meðferðar ef rétturinn telur kæru tilefnis- lausa eða augljóslega setta fram í þeim tilgangi að tefja fram- gang máls.]2)

1) L. 76/2019, 27. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[212. gr. Dómsformaður leiðbeinir þeim sem ekki nýtur aðstoðar

lögmanns um rétt til að kæra úrskurð og um kærufrest. Nú vill maður kæra úrskurð og skal hann þá lýsa því yf-

ir innan þriggja sólarhringa frá því að hann fékk vitneskju um úrskurðinn. Sé kæru lýst yfir á dómþingi má kærandi láta við það sitja að bókað verði um hana í þingbók, þar á með- al í hvaða skyni kært er. Að öðrum kosti skal hann afhenda Landsrétti skriflega kæru þar sem greint skal frá því hvaða úrskurður sé kærður, kröfu um breytingu á honum og ástæð- ur sem kæra er reist á. Skriflegri kæru skulu fylgja ný gögn sem kærandi hyggst bera fyrir sig, enda sé í kæru getið hvað sanna eigi með þeim.

Sé ekki kært innan þess frests sem settur er í 2. mgr. getur sá sem kæra vill samt sem áður leitað eftir leyfi Hæstaréttar til þess, en afhenda skal hann Landsrétti skriflega kæru áður en það verður gert. Um þá leyfisbeiðni og meðferð hennar fer samkvæmt því sem segir í [216.]1) gr.

Kæra frestar frekari framkvæmdum á grundvelli dómsat- hafnar þar til leyst er úr máli fyrir Hæstarétti.]2)

1) L. 76/2019, 28. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[213. gr. Telji Landsréttur annmarka vera á kæru getur hann gefið

kæranda skamman frest til lagfæringa. Að öðrum kosti send- ir dómsformaður kæruna til Hæstaréttar svo fljótt sem verða má ásamt endurritum úr þingbók og öðrum gögnum máls- ins sem varða kæruefnið nema Landsréttur telji rétt að fella sjálfur úrskurð sinn úr gildi. Gögnin sendir Landsréttur í [sex eintökum]1) ásamt athugasemdum sínum ef hann vill.

Nú hefur kæru ekki verið lýst yfir í þinghaldi að viðstödd- um gagnaðila kæranda og skal Landsréttur þá tilkynna gagn- aðilanum tafarlaust um hana, enda hafi ekki verið farið með málið án þess að honum væri kunngert það. Hafi Landsrétt- ur ekki þegar sent Hæstarétti kærumálið getur hann um leið gefið gagnaðilanum kost á að afhenda Landsrétti skriflega greinargerð sem geymi kröfur hans og röksemdir varðandi kæruefni. Heimilt er að láta skrifleg gögn fylgja þeirri grein- argerð, enda sé þess getið þar hvað sanna eigi með þeim. Hafi greinargerð ekki verið afhent Landsrétti áður en hann sendir Hæstarétti málsgögnin skal henni beint til réttarins.

Aðilar kærumáls geta hvor eða hver fyrir sitt leyti sent Hæstarétti greinargerð með því efni sem greinir í 2. mgr. ásamt nýjum gögnum innan sólarhrings eftir að málið hef- ur borist réttinum. Aðili skal samhliða því senda gagnað- ila sínum afrit af greinargerðinni, enda hafi ekki verið farið með málið fyrir héraðsdómi án þess að honum væri kunngert það.]2)

1) L. 76/2019, 29. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[214. gr. Að liðnum fresti skv. 3. mgr. 213. gr. eða þegar greinar-

gerðir hafa borist Hæstarétti getur rétturinn lagt dóm á kæru- mál. Tekið skal tillit til greinargerða eða gagna sem berast eftir að fresturinn er liðinn svo framarlega sem málinu er þá ekki lokið.

Hæstiréttur leggur dóm á kærumál á grundvelli skriflegra gagna en getur þó ákveðið að það verði munnlega flutt. Dóm- ur skal kveðinn upp svo fljótt sem kostur er.

Að gengnum dómi sendir Hæstiréttur Landsrétti [og eft- ir atvikum héraðsdómara]1) endurrit dóms. [Hæstiréttur til- kynnir aðilum kærumáls sem hafa látið það til sín taka fyrir réttinum um úrslit þess.]1)

Að öðru leyti en að framan greinir verður reglum um áfrýjunarmál beitt um kærumál eftir því sem við getur átt.]2)

1) L. 76/2019, 30. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[XXXIII. kafli. Áfrýjun til Hæstaréttar.]1) 1)

L. 49/2016, 68. gr.

[215. gr. Með þeim takmörkunum sem leiðir af öðrum ákvæðum

laga þessara er unnt að óska eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja landsréttardómi til Hæstaréttar til þess að fá:

a. endurskoðun á ákvörðun viðurlaga, b. endurskoðun á niðurstöðum sem byggðar eru á skýr-

ingu eða beitingu réttarreglna, c. endurskoðun á niðurstöðum sem byggðar eru á mati á

sönnunargildi annarra gagna en munnlegs framburðar fyrir héraðsdómi eða Landsrétti,

d. ómerkingu á héraðsdómi og landsréttardómi og heim- vísun máls,

e. frávísun máls frá héraðsdómi og Landsrétti.

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 35

Við áfrýjun dóms er jafnframt heimilt að leita endurskoð- unar á úrskurðum sem kveðnir hafa verið upp og ákvörðun- um sem teknar hafa verið undir rekstri máls í héraði.

Nú er óskað eftir leyfi til að áfrýja landsréttardómi í ein- hverjum þeim tilgangi sem um ræðir í 1. mgr. og er þá um leið heimilt að leita endurskoðunar á niðurstöðum hans um kröfu skv. XXVI. kafla, enda hafi verið leyst úr henni að efni til og ákærði eða kröfuhafi hafi krafist endurskoðunar fyrir sitt leyti. Verði landsréttardómi ekki áfrýjað samkvæmt fram- ansögðu er ákærða og kröfuhafa hvorum um sig heimilt að óska sérstaklega eftir leyfi Hæstaréttar til áfrýjunar á úrlausn dómsins um kröfuna að efni til en um það málskot fer eftir reglum um áfrýjun dóms í einkamáli.

Hæstiréttur ákveður hvort orðið verði við ósk um áfrýj- unarleyfi [og má takmarka leyfið við tiltekin atriði máls].1)

Slíkt leyfi skal aðeins veita ef áfrýjun lýtur að atriði sem hef- ur verulega almenna þýðingu eða af öðrum ástæðum er mjög mikilvægt að fá úrlausn Hæstaréttar um. Þá getur Hæstirétt- ur veitt slíkt leyfi ef ástæða er til að ætla að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábóta- vant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni. Hafi ákærði verið sýknaður af ákæruefni í héraðsdómi en sakfelldur fyrir Landsrétti skal þó verða við ósk ákærða, eða ákæruvaldsins honum til hagsbóta, um leyfi til áfrýjun- ar nema Hæstiréttur telji ljóst að áfrýjun muni ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar.

Ekki er heimilt að veita leyfi til að áfrýja dómi Lands- réttar til Hæstaréttar til endurskoðunar á mati Landsréttar á sönnunargildi munnlegs framburðar.]2)

1) L. 76/2019, 31. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[216. gr. Ríkissaksóknari getur óskað eftir leyfi til áfrýjunar á

landsréttardómi ef hann telur ákærða hafa ranglega verið sýknaðan eða refsing eða önnur viðurlög ákveðin að mun of væg . . . 1). Hann getur einnig óskað eftir leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar ákærða til hagsbóta.

Ákærði sem sakfelldur hefur verið fyrir Landsrétti get- ur óskað eftir leyfi til að áfrýja landsréttardómi . . . 1). Nú er ákærði látinn og getur þá maki hans, börn, aðrir niðjar, for- eldrar eða systkini óskað eftir leyfi til að áfrýja dómi fyrir hans hönd.]2)

1) L. 76/2019, 32. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[217. gr. Ef ákærði er staddur við uppkvaðningu landsréttardóms

skal dómari kynna honum rétt hans til að óska eftir leyfi til áfrýjunar til Hæstaréttar og frest til að lýsa henni yfir. Þegar annars er þörf á að birta dóm skv. 3. mgr. 185. gr. skal sá sem birtir kynna ákærða þetta. Skal getið að þessa hafi verið gætt með bókun í þingbók eða í birtingarvottorði.

Nú vill ákærði leita leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar og skal hann þá senda ríkissaksóknara skriflega umsókn um leyfið þar sem rökstutt skal ítarlega hvernig ákærði telur að skilyrðum fyrir áfrýjunarleyfi sé fullnægt. Umsókn hans um áfrýjunarleyfi verður að berast ríkissak- sóknara innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, hafi birt- ingar verið þörf skv. 3. mgr. 185. gr., en ella innan fjög- urra vikna frá uppkvaðningu. Umsókn um áfrýjun skal fylgja skrifleg tilkynning um áfrýjun þar sem tekið er nákvæmlega fram í hverju skyni áfrýjað sé og hverjar dómkröfur ákærða séu, þar á meðal varðandi kröfur skv. XXVI. kafla ef því er að skipta, svo og hvern hann vill fá skipaðan sem verjanda fyrir Hæstarétti eða hvort hann óskar eftir að flytja mál sitt

sjálfur. Ríkissaksóknara er skylt að veita ákærða leiðbeining- ar um gerð tilkynningar ef eftir því er leitað en jafnframt ber honum að benda á hvernig bæta megi úr annmörkum á efni hennar ef um þá er að ræða. Þegar tilkynning hefur borist frá ákærða innan framangreinds frests telst áfrýjunarfrestur rofinn.

Leiti ríkissaksóknari áfrýjunarleyfis skal hann beina til Hæstaréttar skriflegri umsókn um það. Skal hún vera sama efnis og um ræðir í 2. mgr. Umsóknin verður að berast réttin- um innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu landsréttardóms, [svo og endurrit af dómi Landsréttar].1)

Hæstiréttur gefur öðrum málsaðilum kost á að tjá sig um umsókn um áfrýjunarleyfi. Þegar meðferð umsóknar er lok- ið tilkynnir rétturinn aðilunum skriflega um niðurstöðuna. Sé leyfið veitt verður ekki krafist rökstuðnings fyrir þeirri ákvörðun en sé umsókn hafnað skal greint frá ástæðum þess í tilkynningu til aðilanna.

Hvort sem ákærði eða ríkissaksóknari hefur óskað eftir áfrýjun landsréttardóms getur gagnaðili, þar á meðal kröfu- hafi, ef krafa skv. XXVI. kafla hefur verið dæmd að efni til, ávallt gert kröfu fyrir Hæstarétti um breytingar á niðurstöð- um dómsins án þess að áfrýja fyrir sitt leyti, enda komi sú krafa fram í greinargerð hans til Hæstaréttar.

Hafi hvorki ákærði né ríkissaksóknari [óskað eftir leyfi til áfrýjunar]1) innan þeirra fresta sem mælt er fyrir um í 2. og 3. mgr. skal litið svo á að landsréttardómi sé unað af beggja hálfu. Þrátt fyrir það getur Hæstiréttur orðið við umsókn um leyfi til að áfrýja landsréttardómi sem berst næstu þrjá mán- uði eftir lok [framangreindra fresta],1) enda sé . . . 2) dráttur á áfrýjun nægilega réttlættur. Beiðni um slíkt áfrýjunarleyfi frestar ekki fullnustu landsréttardóms um refsingu og önnur viðurlög.]3)

1) L. 76/2019, 33. gr. 2) L. 90/2017, 7. gr. 3) L. 49/2016, 68. gr.

[218. gr. Ríkissaksóknari er sóknaraðili máls fyrir Hæstarétti, hvort

sem hann hefur sjálfur áfrýjað [dómi Landsréttar]1) eða ákærði.

Þegar áfrýjun er ráðin gefur ríkissaksóknari út áfrýjunar- stefnu þar sem skal greina:

a. heiti og númer sem málið bar á fyrra dómstigi og hve- nær dómur var kveðinn upp,

b. nafn ákærða, kennitölu eða fæðingardag og heimili, svo og hver komi fram fyrir hans hönd við áfrýjun skv. 2. mgr. 197. gr. ef því er að skipta,

c. hver áfrýjar dómi og nákvæmlega í hverju skyni það sé gert,

d. ef því er að skipta hvert sé nafn, kennitala og heimili þess sem haft hefur uppi kröfu skv. XXVI. kafla sem dæmd hefur verið að efni til á fyrra dómstigi,

e. að málið verði tekið til meðferðar í Hæstarétti í sam- ræmi við tilkynningar sem aðilunum verði á síðari stigum sendar þaðan.

Hafi ríkissaksóknari áfrýjað dómi skal hann svo fljótt sem verða má fá áfrýjunarstefnu birta fyrir ákærða. Skal ákærða um leið gefinn kostur á að bera fram ósk um verjanda eða greina ella frá ósk sinni um að fá að flytja mál sitt sjálfur.

Hafi krafa skv. XXVI. kafla verið dæmd að efni til á fyrra dómstigi skal ríkissaksóknari láta birta áfrýjunarstefnu fyr- ir þeim sem með kröfuna fer. Sé um brotaþola að ræða skal honum um leið gefinn kostur á að bera fram ósk um réttar- gæslumann þá þegar eða með tilkynningu til Hæstaréttar.

36 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Að því búnu sem að framan greinir sendir ríkissaksókn- ari Hæstarétti áfrýjunarstefnuna með sönnun fyrir birtingu hennar ásamt endurriti af dómi á fyrra dómstigi og tilkynn- ingu ákærða um áfrýjun ef því er að skipta. Hæstiréttur skip- ar ákærða verjanda nema hann hafi óskað eftir að flytja mál sitt sjálfur, enda sé hann hæfur til þess að mati réttarins. Ef því er að skipta skipar Hæstiréttur enn fremur brotaþola rétt- argæslumann ef skilyrði eru til þess. Að því búnu tilkynn- ir Hæstiréttur eftir því sem við á ríkissaksóknara, ákærða, verjanda, brotaþola eða réttargæslumanni að málið hafi borist réttinum og hvaða auðkenni það hefur hlotið, svo og að til- kynnt verði frekar á síðara stigi um fresti hvers um sig til að leggja fram greinargerð í málinu af sinni hálfu.]2)

1) L. 76/2019, 34. gr. 2) L. 49/2016, 68. gr.

[219. gr. Þegar áfrýjun er ráðin skal [Landsréttur]1) verða við beiðni

ríkissaksóknara um að afhenda honum dómsgerðir. Þegar ríkissaksóknara hafa borist dómsgerðir skv. 1. mgr.

og verjandi hefur verið skipaður skal ríkissaksóknari í sam- ráði við verjanda annast frágang málsgagna en til þeirra telj- ast afrit þeirra málsskjala og endurrita sem aðilarnir telja þörf á við úrlausn málsins eins og áfrýjun er háttað. Hæstarétti skulu síðan afhent málsgögn í þeim fjölda eintaka sem hann telur þörf á, svo og dómsgerðir.

Hæstiréttur setur nánari reglur2) um frágang málsgagna og dómsgerða.]3)

1) L. 76/2019, 35. gr. 2) Rgl. 433/2018. 3) L. 49/2016, 68. gr.

[220. gr. Þegar málsgögn hafa verið afhent skal Hæstiréttur veita

þeim aðila sem áfrýjað hefur tiltekinn frest til að skila grein- argerð og gögnum sem hann kann enn að telja vanta og hann hyggst byggja mál sitt á fyrir Hæstarétti. Þegar greinargerð og gögn hafa borist skal gagnaðila veittur frestur til að skila greinargerð og gögnum af sinni hálfu. Ef því er að skipta skal að lokum veita kröfuhafa skv. XXVI. kafla frest til að skila greinargerð og gögnum. Þegar greinargerð er skilað til Hæstaréttar skal sá sem það gerir senda öðrum þeim sem að framan er getið afrit af henni, svo og af gögnum sem fylgja henni.

Í greinargerð málsaðila skal koma fram: a. hvers krafist sé fyrir Hæstarétti, b. hvort hann felli sig við lýsingu málsatvika í hinum

áfrýjaða dómi og röksemdir fyrir niðurstöðu en ef svo er ekki skal getið á stuttan og gagnorðan hátt í hverjum atriðum hann sé ósammála og hvernig hann rökstyðji í meginatriðum kröf- ur um breytingar á niðurstöðum hins áfrýjaða dóms,

c. athugasemdir við málatilbúnað gagnaðila ef þeirra er þörf,

d. hvort hann hyggist enn leggja ný gögn fram fyrir Hæstarétti á síðara stigi og hver þau séu þá í meginatriðum.

Málsaðilum er heimilt að leggja frekari gögn fyrir Hæsta- rétt en þau skulu þá afhent réttinum og kynnt gagnaðila ekki síðar en einni viku fyrir flutning máls. Frá þessu getur Hæsti- réttur vikið ef sérstaklega stendur á, enda séu aðilar á það sáttir að ný gögn komi fram með skemmri fyrirvara. Ríkis- saksóknara er þó jafnan heimilt að leggja fram nýtt sakavott- orð ákærða við upphaf málflutnings.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[221. gr. Hæstiréttur getur kveðið upp dóm um frávísun máls frá

réttinum vegna galla á málatilbúnaði þar fyrir dómi án þess

að málflutningur fari áður fram. Á sama hátt getur Hæstirétt- ur ómerkt hinn áfrýjaða dóm ef verulegir gallar hafa verið á meðferð málsins á fyrri stigum þess og vísað því frá dómi ef undirbúningi undir málshöfðun hefur verið áfátt í meginat- riðum.

Nú er málatilbúnaði áfátt, án þess að nauðsynlegt þyki þó að vísa máli frá eða ómerkja hinn áfrýjaða dóm og getur þá Hæstiréttur beint því til aðila að afla gagna um tiltekin atriði eða grípa til annarra aðgerða til að ráða bót á því sem áfátt er.

Áður en málflutningur fer fram getur Hæstiréttur tekið mál fyrir á dómþingi eftir þörfum til að ráða til lykta atriðum varðandi rekstur þess. Skulu aðilar kvaddir fyrir dóm með hæfilegum fyrirvara í þessu skyni.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[222. gr. Mál skal að jafnaði flutt munnlega fyrir Hæstarétti. Rétt-

urinn getur þó ákveðið að mál verði skriflega flutt ef sérstak- ar ástæður mæla með því. Hann getur einnig ákveðið að mál verði dómtekið án sérstaks málflutnings ef samhljóða óskir koma fram um það frá aðilum eða dómi er aðeins áfrýjað um ákvörðun viðurlaga.

Nú er ákveðinn munnlegur flutningur í máli og skulu þá aðilar tilkynna Hæstarétti að fram komnum greinargerð- um þeirra beggja eða allra hve langan tíma þeir áætli hvor eða hver fyrir sitt leyti að þurfi til að flytja málflutnings- ræðu. Hæstiréttur ákveður hvenær munnlegur málflutningur fer fram og tilkynnir það aðilum með hæfilegum fyrirvara. Um leið skal aðilum tilkynnt hve langan tíma þeir fái til að flytja málflutningsræður ef ekki er fallist á óskir þeirra í þeim efnum. Hæstiréttur getur við sama tækifæri beint til aðila að þeir afhendi hvor eða hver um sig með tilteknum fyrirvara stutt yfirlit um atvik máls í tímaröð, helstu röksemdir sínar og tilvísanir í fræðirit og dóma sem þeir hyggjast styðjast við í málflutningi.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[223. gr. Áður en munnlegur flutningur hefst á dómþingi skal gerð

grein fyrir dómsorði hins áfrýjaða dóms og áfrýjunarstefnu að því leyti sem forseti telur þess þörf til skýringar á mál- flutningi. Verður svo flutt frumræða af hálfu ákæruvalds, síð- an ef því er að skipta af hálfu þess sem gerir kröfu skv. XXVI. kafla og loks af hálfu ákærða nema forseti hafi ákveðið aðra röð og aðilum verið tilkynnt það með hæfilegum fyrirvara fyrir málflutning. Eftir frumræður eiga aðilar kost á að færa fram stutt andsvör í sömu röð. Flytji verjandi málið af hálfu ákærða getur forseti heimilað ákærða sjálfum að koma að stuttum athugasemdum að loknum andsvörum verjanda.

Í málflutningi skal gera grein fyrir þeim atriðum í niður- stöðum hins áfrýjaða dóms sem leitað er breytinga á, kröfum í þeim efnum og röksemdum fyrir þeim. Skal forðast mála- lengingar og málflutningi beint að þeim atriðum einum sem ágreiningur er um ásamt nauðsynlegri frásögn af öðrum sem þarf samhengis vegna.

Forseti stýrir þinghaldi. Hann getur krafist að málflytjend- ur haldi sig við efnið og láti vera að fjalla um þá þætti máls sem ekki eru til endurskoðunar eða ástæðulaust er af öðrum sökum að gera frekari grein fyrir. Forseti getur stöðvað mál- flutning ef ræður verða langar úr hófi fram eða sett málflytj- anda tímatakmörk og við þau bundið enda á málflutning.

Að loknum málflutningi tekur Hæstiréttur málið til dóms.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 37

[224. gr. Að því leyti sem taka þarf afstöðu til atriða varðandi

rekstur máls fyrir Hæstarétti ræður hann þeim til lykta með ákvörðun, hvort sem ágreiningur er um þau milli aðila eða ekki, enda leiði ákvörðunin ekki til loka máls fyrir dóminum. Ákvörðun skal ekki rökstudd sérstaklega en um efni hennar skal getið í þingbók eftir þörfum.

Úr öðrum atriðum máls leysir Hæstiréttur með dómi. Ef máli er vísað frá Hæstarétti má láta við það sitja að geta um ástæður þess í dómi, svo og um sakarkostnað. Sama gildir ef hinn áfrýjaði dómur er ómerktur og máli vísað heim í hér- að eða til Landsréttar eða því er vísað frá héraðsdómi eða Landsrétti.

Sé kveðið á um önnur málalok í dómi en getur í 2. mgr. skal greina þar frá kröfum aðila eftir því sem þörf er á svo að niðurstaða verði skýr. Að því leyti sem greinargerð um máls- atvik er ábótavant í hinum áfrýjaða dómi skal bætt úr því í dómi Hæstaréttar. Ef og að því leyti sem niðurstöðu hins áfrýjaða dóms er breytt skal það rökstutt í dómi Hæstaréttar. Fallist Hæstiréttur á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms en ekki á röksemdir fyrir henni greinir hann frá rökum sínum eftir því sem þörf þykir.

Um dóma Hæstaréttar gilda að öðru leyti ákvæði 183. gr. eftir því sem getur átt við.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[225. gr. Refsing og önnur viðurlög á hendur ákærða verða ekki

þyngd með dómi Hæstaréttar nema þess hafi verið krafist af hálfu ákæruvalds. Ákvæðum hins áfrýjaða dóms um kröfu skv. XXVI. kafla verður heldur ekki breytt nema þess hafi verið krafist af þeim sem breyting er til hagsbóta, hvort sem það er ákærði eða kröfuhafi. Að öðru leyti getur Hæstiréttur ávallt breytt dómi til hagsbóta ákærða þótt hann hafi ekki gert kröfu um það.

Hæstiréttur getur ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýj- aða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[226. gr. Dóm skal kveða upp svo fljótt sem unnt er eftir að mál

er dómtekið og aldrei síðar en þegar fjórar vikur eru liðnar frá því. Verði því ekki komið við og hafi mál verið munnlega flutt skal endurtaka málflutning að því leyti sem Hæstarétti þykir nauðsynlegt.

Strax eftir dómtöku máls skulu dómarar ræða með sér fyr- ir luktum dyrum röksemdir og niðurstöðu dóms. Fyrir mál- flutning felur forseti einum dómara að vera frummælandi á þeim fundi en forseti stýrir þar ráðagerðum, ber fram spurn- ingar, stuðlar að því að álit hvers dómara komi þar sem skýr- ast fram og telur atkvæði þeirra. Afl atkvæða ræður úrslitum. Að lokinni umræðu felur forseti frummælandanum að semja atkvæði að dómi. Greinist dómarar í meiri og minni hluta semur frummælandinn atkvæði fyrir þann hluta sem hann heyrir til, en hinir dómararnir ákveða hver þeirra semji at- kvæði þeirra. Dómari, sem greiðir atkvæði með ómerkingu héraðsdóms eða frávísun máls og verður í minni hluta, verð- ur einnig að greiða atkvæði um efni máls. Dómarar ganga í sameiningu frá dómi, með eða án sératkvæða.

Við uppkvaðningu dóms skal lesa upp dómsorð í heyranda hljóði á dómþingi eftir því sem þörf þykir. Ef sératkvæði er í dómi skal þess einnig getið.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[227. gr. Eftir því sem átt getur við fer að öðru leyti um meðferð

og úrlausn sakamála fyrir Hæstarétti eftir ákvæðum þessara laga um meðferð máls í héraði.]1)

1) L. 49/2016, 68. gr.

[XXXIV. kafli.]1) Endurupptaka óáfrýjaðs máls. 1)

L. 49/2016, 68. gr.

[228. gr.]1)

Nú hefur héraðsdómur gengið í sakamáli sem ekki hefur verið áfrýjað og áfrýjunarfrestur er liðinn og getur þá [end- urupptökunefnd samkvæmt lögum um dómstóla]2) orðið við beiðni manns, sem telur sig ranglega sakfelldan eða sakfelld- an fyrir mun meira brot en það sem hann hefur framið, um að málið verði endurupptekið í héraði ef einhverju eftirtal- inna skilyrða er fullnægt:

a. fram eru komin ný gögn sem ætla má að hefðu veru- lega miklu skipt fyrir niðurstöðu málsins ef þau hefðu komið fram áður en dómur gekk,

b. ætla má að lögregla, ákærandi, dómari eða aðrir hafi haft í frammi refsiverða háttsemi í því skyni að fá fram þau málalok sem orðin eru, svo sem ef vitni eða aðrir hafa vís- vitandi borið ranglega fyrir dómi eða fölsuð skjöl verið lögð fram og það hefur valdið rangri niðurstöðu málsins,

c. verulegar líkur eru leiddar að því að sönnunargögn sem færð voru fram í máli hafi verið rangt metin svo að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess,

d. verulegir gallar hafa verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess.

Ef einhver sá sem vinnur að rannsókn eða meðferð saka- mála fær vitneskju eða rökstuddan grun um atriði sem í 1. mgr. getur ber honum að veita dómfellda vitneskju um það.

[Endurupptökunefnd]2) getur orðið við beiðni ríkissak- sóknara um að mál verði tekið upp á ný í héraði ef dómur hefur gengið þar, honum hefur ekki verið áfrýjað, áfrýjun- arfrestur er liðinn og ákærði hefur verið sýknaður eða sak- felldur fyrir mun minna brot en hann var borinn sökum um ef:

a. ákærði hefur eftir að dómur gekk játað að hafa framið það brot sem hann var sakaður um eða önnur gögn hafa kom- ið fram sem geta gefið ótvíræðar vísbendingar um sök hans, eða

b. svo stendur á sem um ræðir í b-lið 1. mgr. Ríkissaksóknari getur beiðst endurupptöku máls til hags-

bóta fyrir dómfellda ef hann telur atvik vera með einhverjum þeim hætti sem greinir í 1. mgr.

[Nú er dómfelldi látinn og getur þá endurupptökunefnd orðið við beiðni maka, barna, foreldra eða systkina hins látna um endurupptöku máls enda sé einhverju skilyrða 1. mgr. fullnægt og sérstaklega standi á. Sá sem fer fram á endurupp- töku nýtur eftir því sem við á sömu réttarstöðu og dómfelldi við meðferð beiðninnar hjá nefndinni.]3)

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 15/2013, 4. gr. 3) L. 78/2015, 29. gr.

[229. gr.]1)

Beiðni um endurupptöku skal vera skrifleg og henni beint til [endurupptökunefndar].2) Í henni skal ítarlega rökstutt hvernig skilyrðum til endurupptöku teljist fullnægt. Gögn því til stuðnings skulu fylgja beiðninni.

Ef dómfelldi leitar endurupptöku og hann er sviptur frelsi er yfirmanni fangelsis skylt að koma beiðni hans á framfæri.

Ef beiðni um endurupptöku er bersýnilega ekki á rökum reist hafnar [endurupptökunefnd]2) henni þegar í stað.

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 15/2013, 5. gr.

38 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

[230. gr.]1)

[Ef beiðni um endurupptöku er ekki hafnað þegar í stað samkvæmt því sem í [3. mgr. 229. gr.]2) segir skulu hún og gögnin, sem henni fylgdu, send til gagnaðila og hann kraf- inn um skriflega greinargerð um viðhorf sín til hennar innan tiltekins frests. Hafi dómfelldi borið fram beiðnina og stað- ið sjálfur að henni getur endurupptökunefnd þó fyrst skipað honum lögmann og gefið honum kost á að gera beiðni á nýjan leik. Við frekari meðferð beiðni um endurupptöku er nefnd- inni skylt að skipa dómfellda eða ákærða lögmann til að gæta réttar hans ef hann óskar eftir því. Nefndin ákveður þóknun lögmanns vegna starfa hans fyrir henni og er sú ákvörðun endanleg.]3)

[Endurupptökunefnd]4) getur ákveðið að beiðni um endur- upptöku fresti réttaráhrifum dóms meðan á meðferð hennar stendur.

Við meðferð beiðni um endurupptöku getur [endurupp- tökunefnd]4) beint því til ríkissaksóknara að hann hlutist til um rannsókn á nánar tilgreindum atriðum eða að aflað verði sönnunargagna fyrir héraðsdómi. Dómfelldi eða ákærði get- ur jafnframt krafist þess að gagna verði aflað fyrir dómi. Um slíka gagnaöflun fer skv. XXI. kafla eftir því sem átt getur við.

[Endurupptökunefnd getur gefið aðilum kost á að tjá sig munnlega um beiðni um endurupptöku máls.]4)

Ef í ljós er leitt að beiðni um endurupptöku hafi gengið of skammt getur sá sem hana bar fram breytt henni því til samræmis.

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 49/2016, 69. gr. 3) L. 78/2015, 30. gr. 4) L. 15/2013,

6. gr.

[231. gr.]1)

[Endurupptökunefnd tekur ákvörðun um hvort mál verði endurupptekið. [Sé beiðni tekin til greina skal fyrri dómur í málinu halda gildi sínu þar til nýr dómur hefur verið kveðinn upp.]2)]3)

Hafi endurupptaka verið heimiluð skal málið sæta með- ferð á ný fyrir héraðsdómi eftir almennum reglum laga þess- ara í samræmi við ákvörðun [endurupptökunefndar]3) skv. 1. mgr. Um áfrýjun á nýjum dómi gilda ákvæði XXXI. [og XXXIII.]4) kafla.

Nú hefur mál verið endurupptekið eftir beiðni dómfellda og má þá hlutur hans aldrei verða lakari en hann var eftir hinum upphaflega dómi.

Kostnaður af beiðni dómfellda um endurupptöku og af nýrri meðferð málsins ef á hana er fallist skal greiddur úr rík- issjóði nema dómfelldi hafi komið henni til leiðar með gögn- um sem hann mátti vita að væru ósönn. Að öðru leyti fer um sakarkostnað eftir almennum reglum.

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 99/2016, 1. gr. 3) L. 15/2013, 7. gr. 4) L. 49/2016, 70.

gr.

[XXXV. kafli.]1) [Endurupptaka máls sem hefur verið dæmt í Landsrétti eða Hæstarétti.]2)

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 49/2016, 72. gr.

[232. gr.]1)

[Endurupptökunefnd samkvæmt lögum um dómstóla get- ur leyft samkvæmt beiðni að mál sem dæmt hefur verið í Landsrétti eða Hæstarétti verði tekið þar til meðferðar og dómsuppsögu að nýju ef fullnægt er þeim skilyrðum sem greinir í 228. gr.

Mál verður ekki endurupptekið í Landsrétti nema frestur til að leita áfrýjunarleyfis til Hæstaréttar sé liðinn eða Hæsti- réttur hafi synjað um áfrýjunarleyfi. Um beiðni um endurupp-

töku máls sem dæmt hefur verið í Landsrétti eða Hæstarétti og meðferð hennar gilda ákvæði 229. gr. og 230. gr. eftir því sem við á.

Endurupptökunefnd tekur ákvörðun um hvort mál verði endurupptekið og gilda ákvæði 1. mgr. 231. gr. um þá ákvörðun.

Nú hefur endurupptaka máls verið heimiluð, annaðhvort að öllu leyti eða að hluta, og skal þá upp frá því fara með það að því marki, sem heimildin nær, eftir almennum regl- um XXXI. kafla eins og áfrýjunarstefna hefði verið gefin út á þeim tíma þegar endurupptaka var ráðin.

Að því leyti sem endurupptaka máls hefur verið heimiluð skal nýr dómur ganga í því fyrir Landsrétti án tillits til þess hvort niðurstöðu sé breytt frá fyrra dómi.

Ákvæði 3. og 4. mgr. 231. gr. gilda um mál sem endur- upptekið er fyrir Landsrétti eða Hæstarétti.]2)

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 49/2016, 71. gr.

6. þáttur. Sakarkostnaður og réttarfarssektir. [XXXVI. kafli.]1) Sakarkostnaður.

1) L. 49/2016, 68. gr.

[233. gr.]1)

Til sakarkostnaðar teljast óhjákvæmileg útgjöld vegna rannsóknar sakamáls og meðferðar þess, þar á meðal:

a. þóknun verjanda og réttargæslumanns, svo og ann- ar kostnaður vegna varnar sakbornings og réttargæslu fyrir brotaþola,

b. kostnaður og þóknun vitna, c. kostnaður við sérfræðilegar álitsgerðir, matsgerðir og

afnot af aðstöðu eða munum annarra manna, d. kostnaður af birtingu ákæru, kvaðninga og annarra til-

kynninga. Þóknun dómtúlks, þýðanda eða kunnáttumanns skv. 12.

gr. telst ekki til sakarkostnaðar. Af sakamáli greiðast heldur engin dómsmálagjöld.

1) L. 49/2016, 68. gr.

[234. gr.]1)

Í dómi, viðurlagaákvörðun eða úrskurði, ef máli lýkur á þann veg, skal kveða á um hvort ríkissjóður eða ákærði skuli bera sakarkostnað. Sé ákærða gert að greiða sakarkostnað, hvort sem er að öllu leyti eða að hluta, skal tiltaka þá heildar- fjárhæð sem honum ber að greiða. Sé ríkissjóði gert að greiða sakarkostnað skal fjárhæðin ekki tilgreind. Í báðum tilvikum skal þóknun verjanda og réttargæslumanns þó ávallt greind sérstaklega með tiltekinni fjárhæð.

Ákærandi skal taka saman yfirlit um þau útgjöld sem hlot- ist hafa af málinu fram að þingfestingu þess og teljast til sak- arkostnaðar. Skal það yfirlit lagt fram í málinu þegar það er þingfest. Ef sakarkostnaður fellur til eftir þingfestingu skal ákærandi leggja fram yfirlit um þau viðbótarútgjöld áður en málinu lýkur, þó í síðasta lagi við upphaf aðalmeðferðar. Ef til álita kemur að vísa máli frá dómi eða ljúka því með öðrum hætti án dóms getur dómari beint því til ákæranda að leggja fram yfirlit um slík viðbótarútgjöld telji hann ástæðu til.

1) L. 49/2016, 68. gr.

[235. gr.]1)

Nú er ákærði sakfelldur fyrir það brot eða þau brot sem honum eru gefin að sök og skal honum þá gert að greiða sak- arkostnað. Ef ákærði er sakfelldur fyrir sum brotin en sýkn- aður af öðrum getur dómari gert honum að greiða ákveðið hlutfall sakarkostnaðar en ákveðið að kostnaðurinn greiðist að öðru leyti úr ríkissjóði. Þó skal aldrei gera ákærða að

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 39

greiða kostnað sem lögregla, ákæruvald, verjandi eða rétt- argæslumaður hafa valdið vegna vanrækslu eða skeytingar- leysis.

Nú er ákærði sýknaður af kröfu um refsingu og önnur viðurlög eða mál gegn honum fellur niður af hvaða ástæðu sem er og verður honum þá ekki gert að greiða sakarkostnað nema hann hafi orðið valdur að kostnaðinum með vísvitandi og ólögmætu framferði við rannsókn máls eða meðferð þess.

1) L. 49/2016, 68. gr.

[236. gr.]1)

Nú er höfðað mál gegn tveimur eða fleiri mönnum sam- an og þeir sakfelldir og skal þá hvorum eða hverjum þeirra gert að greiða einum sér þóknun verjanda síns ef hann hefur fengið skipaðan annan verjanda en hinn eða hinir. Þá menn sem saman eru um verjanda skal dæma óskipt til að greiða þóknun hans.

Nú hafa báðir ákærðu eða allir tekið þátt í broti með vit- und og vilja hvors eða hvers annars og eru sakfelldir í sama máli. Skal þá venjulega gera þeim óskipt að greiða annan sak- arkostnað en þóknun verjanda. Ef sammæli einhverra þeirra eða allra um brot hefur ekki verið slíkt skiptir dómari sakar- kostnaði hlutfallslega milli þeirra.

Nú eru tveir eða fleiri menn hafðir fyrir sökum og ann- ar eða sumir þeirra sýknaðir, en hinn eða hinir sakfelldir, og skal þá ríkissjóður bera þann hluta kostnaðar sem telja má að aðeins komi við hinum sýknaða eða sýknuðu nema telja megi hinn sakfellda eða hina sakfelldu beinlínis hafa valdið honum. Ef ekki liggur nákvæmlega fyrir hve háa fjár- hæð ríkissjóður skuli bera af þessum sökum metur dómari í hvaða hlutfalli eða hlutföllum hinn sakfelldi eða hinir sak- felldu skuli bera sakarkostnað á móti ríkissjóði.

1) L. 49/2016, 68. gr.

[237. gr.]1)

Nú áfrýjar ákærði héraðsdómi og hann er sýknaður með öllu eða að hluta með dómi [Landsréttar]2) eða viðurlög eru þar milduð. Skal þá kostnaður af áfrýjun felldur á ríkissjóð eða honum skipt samkvæmt því sem segir í 1. mgr. [235. gr.]2)

Nú áfrýjar ríkissaksóknari héraðsdómi og viðurlög eru ekki þyngd svo að neinu nemi með dómi [Landsréttar].2) Skal þá kostnaður af áfrýjun felldur á ríkissjóð.

Kærumálskostnaður verður ekki [úrskurðaður]3) fyrir [Landsrétti]2) nema máli sé þá lokið með [úrskurði].3)

Eftir því sem við á fer að öðru leyti um sakarkostnað fyrir [Landsrétti]2) samkvæmt því sem mælt er fyrir í [233.–236. gr.]2)

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 49/2016, 73. gr. 3) L. 76/2019, 36. gr.

[238. gr.]1)

[Nú áfrýjar ákærði dómi á fyrra dómstigi og hann er sýkn- aður með öllu eða að hluta með dómi Hæstaréttar eða viður- lög eru þar milduð og skal þá kostnaður af áfrýjun felldur á ríkissjóð eða honum skipt samkvæmt því sem segir í 1. mgr. 235. gr.

Nú áfrýjar ríkissaksóknari dómi á fyrra dómstigi og viður- lög eru ekki þyngd svo að neinu nemi með dómi Hæstaréttar og skal þá kostnaður af áfrýjun felldur á ríkissjóð.

[Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur fyrir Hæstarétti nema máli sé þá lokið með dómi.]2)

Eftir því sem við á fer að öðru leyti um sakarkostnað fyrir Hæstarétti samkvæmt því sem mælt er fyrir í 233.–236. gr.]3)

1) L. 49/2016, 68. gr. 2) L. 76/2019, 37. gr. 3) L. 49/2016, 74. gr.

[239. gr. Lagt skal út fyrir sakarkostnaði úr ríkissjóði. Sakarkostn-

aður sem sakfelldum manni er gert að greiða samkvæmt dómi, úrskurði eða viðurlagaákvörðun skal innheimtur hjá honum, eftir atvikum með fjárnámi og nauðungarsölu. Skal hann bera kostnað af þeim aðgerðum, svo og aðgerðum vegna fullnustu refsingar og annarra viðurlaga á hendur hon- um, til viðbótar sakarkostnaði.

Nú liggur nægilega ljóst fyrir að sakfelldur maður hefur hvorki eignir né tekjur til að standa straum af sakarkostnaði sem honum hefur verið gert að greiða og ber þá að falla frá kröfu á hendur honum um greiðslu kostnaðarins.]1)

1) L. 17/2018, 2. gr.

[XXXVII. kafli.]1) Réttarfarssektir. 1)

L. 49/2016, 68. gr.

[240. gr.]1)

Dómari ákveður sektir samkvæmt reglum þessa kafla af sjálfsdáðum og renna þær í ríkissjóð. Þó má höfða sjálfstætt mál vegna brota sem varða sektum samkvæmt þessum kafla.

Ef refsing liggur að auki eftir öðrum lögum við broti sem ákvæði þessa kafla taka til má hafa kröfu um hana uppi í öðru máli án tillits til ákvörðunar um réttarfarssekt.

1) L. 17/2018, 2. gr.

[241. gr.]1)

Ákveða má sekt á hendur ákæranda, verjanda eða réttar- gæslumanni fyrir:

a. að valda af ásetningi óþörfum drætti á máli, b. að brjóta gegn banni skv. 1. eða 2. mgr. 11. gr., c. að viðhafa ósæmileg ummæli, skrifleg eða munnleg,

fyrir dómi um dómara eða aðra menn, d. að misbjóða virðingu dóms á annan hátt með framferði

sínu í þinghaldi. Ákærða eða öðrum þeim sem gefur skýrslu fyrir dómi má

ákveða sekt fyrir brot gegn b-, c- eða d-lið 1. mgr. Ákveða má sekt á hendur öðrum en þeim sem ákvæði 1.

og 2. mgr. taka til fyrir að brjóta gegn banni skv. 1. eða 2. mgr. 11. gr., að hlýða ekki fyrirskipunum dómara sem miða að því að halda uppi reglu á dómþingi eða að koma þar ann- ars hneykslanlega eða ósæmilega fram.

Nú telur dómari að brotið hafi verið gegn 1.–3. mgr. en brot er smávægilegt að hans dómi. Getur hann þá ákveðið að víta þann brotlega í stað þess að gera honum sekt.

Fyrir [æðri dómi]2) má ákveða sekt á hendur ákæranda eða verjanda ellegar þeim báðum í senn fyrir tilefnislaust málskot. Enn fremur má gera ákæranda, verjanda eða rétt- argæslumanni sekt fyrir vítaverða vanrækslu eða önnur glöp við meðferð máls í héraði eða við undirbúning eða meðferð máls fyrir [æðri dómi].2) Ákvæði 1.–4. mgr. taka til meðferð- ar máls fyrir [æðri dómi]2) eftir því sem við getur átt.

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 49/2016, 75. gr.

[242. gr.]1)

Nú gengur dómur í máli og skal þá sekt á hendur ákær- anda, ákærða, verjanda eða réttargæslumanni ákveðin þar. Ef máli lýkur með öðrum hætti skulu sektir á hendur þeim ákveðnar í úrskurði.

Sektir á hendur öðrum en þeim sem greindir eru í 1. mgr. skulu ákveðnar í úrskurði jafnskjótt og brot er framið.

1) L. 17/2018, 2. gr.

7. þáttur. Ýmis ákvæði. [XXXVIII. kafli.]1) Sakaskrá o.fl.

1) L. 49/2016, 68. gr.

[243. gr.]1)

Ríkissaksóknari skal halda sakaskrá fyrir allt landið þar sem skráð eru úrslit sakamála.

40 Nr. 88 2008 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020

Ríkissaksóknari skal setja nánari reglur2) um gerð og varð- veislu sakaskrár, þar á meðal hvað skuli skráð í henni um mál sem lýkur án saksóknar, svo og um sakavottorð.

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) Rgl. 680/2009, sbr. rgl. 800/2009, rgl. 398/2014 og rgl.

419/2018.

[244. gr.]1)

Lögreglu er heimilt að skrá og varðveita upplýsingar um brotaferil einstakra manna og atriði sem varða einkahagi þeirra. Skal [ráðherra]2) setja fyrirmæli í reglugerð3) um þetta, þar á meðal um að upplýsingum um brotaferil einstakra manna og aðra einkahagi þeirra skuli eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf við rannsókn sakamála.

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 162/2010, 194. gr. 3) Rg. 577/2020.

[245. gr.]1)

Ákærandi skal leggja sakavottorð ákærða fram í sakamáli við þingfestingu máls nema hann telji óþarft að líta til saka- ferils hans við úrlausn málsins.

Hver og einn á rétt á að fá afhent sakavottorð eða upplýs- ingar um eigin sakaferil úr sakaskrá. [Um miðlun upplýsinga úr sakaskrá fer að öðru leyti eftir ákvæðum III. kafla laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi og reglum ríkissaksóknara.]2)

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 75/2019, 37. gr.

[XXXIX. kafli.]1) Bætur vegna sakamáls. 1)

L. 49/2016, 68. gr.

[246. gr.]1)

Maður sem borinn hefur verið sökum í sakamáli á rétt til bóta skv. 2. mgr. ef mál hans hefur verið fellt niður eða hann verið sýknaður með endanlegum dómi án þess að það hafi verið gert vegna þess að hann var talinn ósakhæfur.

Dæma skal bætur vegna aðgerða skv. IX.–XIV. kafla laga þessara ef skilyrði 1. mgr. eru fyrir hendi. Þó má fella niður bætur eða lækka þær ef sakborningur hefur valdið eða stuðl- að að þeim aðgerðum sem hann reisir kröfu sína á.

Nú hefur maður ekki verið borinn sökum í sakamáli og á hann þó engu síður rétt til bóta ef hann hefur beðið tjón af þeim aðgerðum sem taldar eru upp í 2. mgr. Þó má fella nið- ur bætur eða lækka þær ef hann hefur valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisir kröfu sína á.

Maður sem hlotið hefur saklaus dóm í sakamáli, þolað refsingu eða refsikennd viðurlög á rétt til bóta. Þó má lækka bætur ef hann hefur átt sök á því að hann var ranglega dæmd- ur.

Bæta skal fjártjón og miska samkvæmt þessari grein ef því er að skipta.

1) L. 17/2018, 2. gr.

[247. gr.]1)

Sömu reglur gilda um aðilaskipti að bótakröfu skv. [246. gr.]2) og um kröfu um bætur fyrir líkamstjón samkvæmt skaðabótalögum.

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 17/2018, 3. gr.

[248. gr.]1)

Sækja skal bótakröfu skv. [246. gr.]2) í einkamáli á hend- ur ríkinu en veita skal stefnanda, enda sé um einstakling að ræða, gjafsókn í héraði. Að öðru leyti fer um málsókn eftir almennum reglum.

Nú hefur ríkið verið dæmt til greiðslu bóta og á það þá endurkröfu um þær á hendur lögreglumanni, ákæranda eða öðrum ef telja má þá hafa með ásetningi eða stórkostlegu gá- leysi valdið þeim aðgerðum sem krafa var reist á eða fram- kvæmt þær með sama hætti.

Nú er rannsókn eða meðferð sakamáls tekin upp á ný og það kemur í ljós að manni hafi ranglega verið greiddar bætur skv. [246. gr.]2) Ber honum þá að endurgreiða bæturnar.

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 17/2018, 3. gr.

[249. gr.]1)

Maður sem hefur orðið fyrir þeim aðgerðum sem taldar eru í [246. gr.]2) getur í stað bóta krafist vottorðs ríkissak- sóknara um að í ljós hafi komið að hann hafi verið órétti beitt- ur. Telji ríkissaksóknari að maður eigi rétt á slíku vottorði ber að láta honum það í té.

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 17/2018, 3. gr.

[XL. kafli.]1) Gildistaka, brottfall laga o.fl. 1)

L. 49/2016, 68. gr.

[250. gr.]1)

[Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða VII og VIII.]2)

1) L. 17/2018, 2. gr. 2) L. 156/2008, 1. gr.

[251. gr.]1) . . . 1)

L. 17/2018, 2. gr.

[252. gr.]1) . . . 1)

L. 17/2018, 2. gr.

Ákvæði til bráðabirgða. I. Mál sem höfðað hefur verið fyrir gildistöku laga þessara

á grundvelli heimilda í 1. eða 2. gr. eldri laga, sem ekki eiga sér samsvörun í 1. eða 2. gr. laga þessara, skulu þrátt fyrir það rekin áfram fyrir dómi en eftir því sem átt getur við skal farið með þau og úr þeim leyst eftir fyrirmælum þessara laga.

Nú hefur fyrir gildistöku laga þessara verið lagt fyrir hér- aðsdómara mál sem eftir þann tíma ætti að sæta meðferð eftir XXVII. kafla og skal þá farið svo með það eftir því sem átt getur við.

Mál sem réttilega hefur verið höfðað fyrir gildistöku laga þessara skal rekið áfram fyrir sama dómstóli þótt fara ætti með það á öðru varnarþingi eftir reglum VI. kafla.

II. Önnur mál en þau sem um ræðir í 1. og 2. mgr. ákvæðis til

bráðabirgða I og höfðuð hafa verið fyrir gildistöku laga þess- ara skulu eftir því sem átt getur við rekin áfram fyrir dómi eftir reglum þeirra að öðru leyti en því sem hér segir:

a. . . . 1)

b. Hafi mál verið úthlutað einum dómara til meðferðar eftir fyrirmælum eldri laga skal sú skipan standa þrátt fyrir ákvæði 3. gr.

c. Ákærða skal ekki gefinn kostur á að leggja fram grein- argerð skv. 165. gr. ef tími til aðalmeðferðar máls hefur þegar verið ákveðinn fyrir gildistöku laga þessara.

d. Leyst skal úr einkaréttarkröfu, sem réttilega hefur ver- ið höfð uppi samkvæmt eldri lögum, þótt hún fullnægi ekki skilyrðum XXVI. kafla.

1) L. 156/2008, 2. gr.

III. Hafi verið krafist atbeina dómara til rannsóknaraðgerðar

fyrir gildistöku laga þessara en því máli hefur ekki verið lok- ið skal eftir því sem átt getur við farið með kröfu um hana eftir ákvæðum XV. kafla upp frá því.

IV. Lögreglurannsókn sem stendur yfir við gildistöku laga

þessara skal upp frá því fara eftir ákvæðum þeirra en ekki haggar það gildi þess sem þegar hefur verið gert.

Eftir gildistöku laga þessara má framkvæma rannsókn- araðgerð eftir reglum 2. þáttar þótt úrskurður dómara eða

Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 88 2008 41

ákvörðun hans um heimild til hennar hafi verið kveðinn upp eða tekin eftir eldri lögum.

Úrskurður um að maður sæti gæsluvarðhaldi, sem kveð- inn var upp fyrir gildistöku laga þessara, skal standa órask- aður svo lengi sem ákveðið var að gæsluvarðhald stæði. Frá því að lög þessi öðlast gildi verður maður þó ekki látinn sæta einangrun í gæsluvarðhaldi nema til þess standi heimild í 98. gr.

V. Ákvæðum XXIX. kafla verður beitt um endurupptöku

máls sem lokið hefur verið á grundvelli 126. gr. eldri laga fyrir gildistöku laga þessara.

Fyrirmæli eldri laga um kæruheimildir til Hæstaréttar gilda um úrskurði og ákvarðanir héraðsdómara sem kveðn- ir hafa verið upp eða teknar hafa verið fyrir gildistöku laga þessara. Að öðru leyti gilda ákvæði laga þessara um meðferð kærumála.

Nú hefur dómur verið kveðinn upp í héraði fyrir gildis- töku laga þessara og skal þá áfrýjunarfrestur fara eftir ákvæð- um eldri laga. Verði slíkum dómi síðan áfrýjað eða hafi héraðsdómi verið áfrýjað fyrir gildistöku laga þessara skal ákvæðum þeirra beitt um meðferð málsins frá þeim tíma eft- ir því sem átt getur við.

Reglur [XXXIV. og XXXV. kafla]1) gilda um endurupp- töku máls þótt það hafi verið dæmt fyrir gildistöku laga þess- ara.

1) L. 49/2016, 77. gr.

VI. Ákvæði 16. gr. um aðgang að gögnum taka aðeins til mála

sem ólokið er við gildistöku laga þessara. Um gögn mála sem lokið hefur verið fyrir þann tíma skal beitt reglum eldri laga.

Fyrirmæli [XXXIX. kafla]1) gilda um skaðabætur vegna atvika sem gerast eftir gildistöku laga þessara. Reglum eldri laga skal beitt um bætur fyrir það sem gerst hefur fyrir þann tíma.

1) L. 49/2016, 77. gr.

VII. . . . 1) 1)

L. 47/2015, 21. gr.

[VIII. Héraðssaksóknari skal taka við sókn máls sem höfðað

hefur verið fyrir 1. janúar [2016]1) af lögreglustjóra . . . 2) ef

þá er ekki lengur heimild fyrir ákæruvaldi lögreglustjórans í ákvæðum III. kafla, sbr. ákvæði til bráðabirgða VII.]3)

1) L. 103/2014, 1. gr. 2) L. 82/2011, 5. gr. 3) L. 156/2008, 4. gr.

[IX. Eftir 15. júlí 2015 er ráðherra heimilt að skipa héraðs-

saksóknara og skal hann hefja undirbúning að stofnun emb- ættis héraðssaksóknara. Heimilt er að bjóða embættismönn- um og öðrum starfsmönnum ríkissaksóknara, embættis sér- staks saksóknara og öðrum þeim sem starfað hafa að verkefn- um sem færð verða undir embætti héraðssaksóknara starf hjá embættinu. Þó er ráðherra heimilt að flytja embættismenn frá ríkissaksóknara og embætti sérstaks saksóknara á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, til embættis héraðssaksóknara. Við ráðstöfun starfa eða embætta samkvæmt þessu ákvæði þarf ekki að gæta að skyldu til þess að auglýsa laus störf til umsóknar, sbr. 7. gr. laga nr. 70/1996. Skulu ný embætti taka við þeim réttind- um og skyldum sem einstakir embættismenn hafa áunnið sér, þ.m.t. samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996.]1)

1) L. 47/2015, 22. gr.

[X. Þrátt fyrir ákvæði 61. gr. og 1. mgr. 62. gr. getur lögregla

ákveðið fram til 1. október 2020 að skýrslugjöf sakbornings og vitna fari fram á fjarfundi. Skýrslugjöf sakbornings og lykilvitna skal fara fram á fjarfundi með hljóði og mynd.

Þrátt fyrir ákvæði þessara laga getur dómari ákveðið fram til 1. október 2020 að aðalmeðferð og önnur þinghöld, þ.m.t. skýrslugjöf sakbornings, ákærða og vitna, fari fram á fjar- fundi, enda verði þinghaldi háttað þannig að allir viðkom- andi aðilar heyri þau orðaskipti sem fara fram. Telst það full- nægjandi mæting af hálfu málsaðila. Skýrslugjöf sakborn- ings, ákærða og lykilvitna skulu þó fara fram á fjarfundi með hljóði og mynd.

Skjöl og sýnileg sönnunargögn sem leggja skal fram vegna reksturs máls samkvæmt lögum þessum teljast fram til 1. október 2020 afhent dómstól berist þau honum sannan- lega rafrænt innan tilskilins frests, enda verði dómstól sendur í pósti og án ástæðulauss dráttar tilskilinn fjöldi eintaka skjal- anna og annarra sýnilegra sönnunargagna. Málsaðila er skylt að afhenda gagnaðila samtímis og með sama hætti skjöl og sýnileg sönnunargögn sem þannig eru afhent dómstól.]1)

1) L. 32/2020, 5. gr.